Skip to content

Útskrifaður

olima

Óli Gneisti Sóleyjarson meistari

Ég var að fá í hendurnar prófskírteini sem staðfestir að ég er með meistaragráðu í þjóðfræði. Í gríni get ég sagt að ég hafi loks verið að klára MA – tíu árum á eftir áætlun. Ég var ákaflega snemma í röðinni, númer 21, og ákvað að fara skömmu eftir það svo ólétta konan mín gæti komist heim að slaka á (37 vikur í gær). Ég þekkti marga á sviðinu. Einn fyrrverandi kennari, hann Jón Torfi, var þar og síðan ýmsir sem ég hef umgengist í námi, starfi og sem hagsmunafulltrúi nemenda.

Ég ákvað að heiðra tengsl mín við keltneskar þjóðir með klæðaburði mínum. Fyrsti áfanginn sem ég tók á meistarastigi var Menningararfur Skota (þó hann hafi raunar bara kallast Menningararfur) og síðan augljóslega þrír mánuðir á Írlandi.

Ég ákvað að uppfæra strax síðuna mína hér til hliðar (Um Óla) en mig grunar að ég þurfi að uppfæra hana aftur innan skamms.

En já, ég er kátur.

7 Comments

  1. Til lukku Óli.

    Posted on 20-júní-09 at 12:42 | Permalink
  2. Hjartanlegar hamingjuóskir! Njóttu þessa stóra dags.

    Posted on 20-júní-09 at 14:05 | Permalink
  3. Til hamingju með daginn

    Posted on 20-júní-09 at 14:41 | Permalink
  4. Master Óli :-)
    Til hamingju með gráðuna – núna ertu g’zalur.

    Posted on 20-júní-09 at 17:23 | Permalink
  5. Innilega til hamingju með gráðuna.

    Posted on 20-júní-09 at 17:53 | Permalink
  6. Anna Steinunn

    Til hamingju!

    Posted on 20-júní-09 at 18:01 | Permalink
  7. Dagbjört

    Flottur!

    Posted on 21-júní-09 at 20:17 | Permalink

Post a Comment

Your email is never published nor shared. Required fields are marked *
*
*