Munurinn á Davíð og Þorsteini

Hannes Hólmsteinn telur það ósanngjarnt að Blaðamannafélagið sé á móti Davíð Oddssyni en ekki Þorsteini Pálssyni. Óskar Magnússon nefndi eitthvað svipað. Ég sé ákveðinn mun á þessum tveimur ráðningum:

  • Þorsteinn var ritstjóri dagblaðs áður en hann fór af fullum krafti í stjórnmálin.
  • Þorsteinn Pálsson var forsætisráðherra í svona fimm mínútur.
  • Þorsteinn Pálsson gerði ekkert sem forsætisráðherra sem fólk man eftir nema kannski að láta sparka sér úr stjórn.
  • Þorsteinn Pálsson hafði ekki verið í stjórnmálum og dægurþrasi í töluverðan tíma áður en hann varð ritstjóri aftur.
  • Þorsteinn Pálsson setti Ísland ekki á hausinn.

Þetta er bara það sem mér dettur í hug einn tveir og þrír.

  1. Ja persónulega fannst mér það skrýtin ráðstöfun að gera Þorstein að ritstjóra. Það gerir hina ráðninguna ekki betri. En hvorttveggja er til marks um ægivald íhaldsins á íslenskum fjölmiðlum.

  2. Já, það var það og ýmsir nefndu það á sínum tíma þó væntanlega ekki Blaðamannafélagið.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>