Áramótaskaupið

Ég var verulega  sáttur við Skaupið. Ég þekkti ekki þann sem lék Sigmund Davíð en hann vann leiksigur.

Áhugaverðast var þó lokatriðið. Áramótaskaupin hafa í gegnum tíðina þjónað þeim tilgangi að gera upp hið liðna og því fylgir ákveðin útrás og hreinsun tilfinninga. Mér fannst eins og að lokaatriðið væri að vinna gegn því. Hlustandi á þetta var mér skapi næst að fara að grenja. Þetta var eiginlega eins og höfundarnir vildu segja að það væri ekki tímabært að gleyma. Við megum ekki við því Engin tilfinningahreinsun strax. En þó þurfum við að halda áfram. Kannski að Páll Óskar komist næst því að vera þetta fjandans sameiningartákn okkar.

  1. Jóhannes Proppé

    Palla á Bessastaði!

  2. Af hverju slapp Sjálfstæðisflokkurinn svona vel?

  3. Kannski er það einmitt til að koma í veg fyrir að við losum okkur við neikvæðar tilfinningar í þeirra garð. Er þó ekki viss.

  4. Helga Kristjánsdóttir

    Sleppa stjórnarandstöðuflokkar yfirleitt ekki vel frá skaupinu?

    ja nema kannski framsókn í þetta sinn.

  5. Við hvorki eigum né þurfum sameiningartákn.

  6. …og já, ég hnaut um silkihanska Sjálfstæðisflokksins. Kannski var þetta vegna þess að Bjarni Ben er svo litlaus að það er eiginlega ekki hægt að gera grín að honum?

  7. Akkúrat. Það er hvergi nokkurs staðar fyndinn flötur á Sjálfstæðisflokknum.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>