Aftur til fortíðar með Óla Tynes

Því miður slysast maður stundum til að lesa fréttir sem Óli Tynes skrifar. Ég man að ég lýsti honum einhverju sinni sem ódýrri eftiröpun af Ólafi Sigurðssyni. Þið getið rétt ímyndað ykkur að það er ekki há einkunn. Fréttin sem ég opnaði af heimskulegri forvitni heitir “Reyndi að gleypa eista gamals kærasta“. Eftir að hafa séð hver höfundur fréttinnar var gúgglaði ég nöfnin og fann upprunalegu fréttina og kemur þá í ljóst að hún er frá árinu 2005. Tynes talar hins vegar um að parið hafi hætt saman í maí á síðasta ári. Er ég að misskilja hlutverk fréttamanna eða er Óli Tynes að misskilja hlutverk sitt? Eða er stærsti misskilningurinn sá að Óli Tynes geti í nokkrum skilningi þess orðs kallast fréttamaður?

  1. Þetta er eldgömul frétt.

    Hvað er hann að pæla …… ?

  2. Svona fer þegar fólk athugar ekki klukkuna og dagsetninguna. Þetta er einnig ofarlega á “MOST SHARE” á vef BBC News núna um stundir útaf einhverjum ástæðum sem eru mér ekki kunnugar.

  3. Kannski er það hérna sem Tynesinn fær efnið í fréttirnar sínar:

    http://www.tntmagazine.com/tnt-today/archive/2010/06/03/woman-who-ripped-off-a-testicle-jailed.aspx

    Þeir virðast allavega hafa fallið í sömu gryfju og hann.

  4. Núna toppaði Vísir.is þetta og kom með frétt frá árinu 2004 núna í morgunsárið.

  5. Sindri Guðjónsson

    V

  6. Sindri Guðjónsson

    Við Óli Tynes eru kollegar. Við erum báðir þýðendur.

  7. Sindri Guðjónsson

    erum kollegar

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>