Ég verð að taka fram að ég hef ekki séð neitt sem bendir til þess að hinir svokölluðu fagráðherrar séu betri en aðrir ráðherrar. Ég held að vinsældir þeirra hafi fyrst og fremst komið til af því að þau voru ekki stjórnmálamenn en ekki af því að þau hafi staðið sig nokkuð betur en aðrir. Sjálfur tel ég að Ragna hafi verið sérstaklega dugleg að feta í fótspor forvera síns og fyrrverandi yfirmanns þannig að það væri mjög ljúft að losna við hana.
Fagráðherrar út
Leave a comment ?

Ég vil í prinsippinu hafa fagráðherra, sem ekki eru þingmenn, til að skerpa skilin milli löggjafarvalds og framkvæmdarvalds. Það veikir stöðu þingsins þegar allir leiðtogar þess eru handhafar framkvæmdavaldsins. Kerfið er hugsað þannig að handhafar framkvæmdavaldins hafi völd sín í skjóli og umboði þingsins, og þingið ráði ferðinni. Handhafar framkvæmdavaldsins eiga síðan að vera undir stöðugu eftirliti og athugasemdum þingsins. Þetta hefur hins vegar virkað öfugt. Þingmeirihlutinn hefur verið eins og þjónn framkvæmdavaldsins.