Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 31. júlí 2005 klukkan 21:16

Gljástigi og skyldleiki

Í gær fórum við enn og aftur í búðaferðir. Skoða ljós, málningu, ísskápa og allt sem fylgir. Borðuðum kjötbollur og grænmetisbuff í IKEA. Fórum síðan í Húsasmiðjuna þar sem við hittum Þórð. Hann sagði okkur frá gljástigi og sálfræði litana. Ég sagði honum að ég hefði séð að hann væri kominn inn í fjölskylduna í gegnum konuna (heitir meiraðsegja Steinunn Anna) og barnið. Gat reyndar ekki sagt honum hvernig tengslin voru en kíkti áðan, konan hans er barnabarnabarn Önnu systur afa. Minnir mig á að Anna verður 95 ára 12. ágúst.

Laugardagur, 9. ágúst 2003 klukkan 21:43

Sameinað Írland undir minni stjórn

Ég hef komist að því að ég er kominn af Kjarvali Írlandskonungi. Í kjölfarið hef ég ákveðið að taka mér minn réttláta sess sem konungur Írlands. Nú er enginn vafi á því að Írar munu gleðjast og sameina landið undir minni stjórn. Fyrsta verk mitt er að leggja niður kristna trú enda hefur hún fært Írum (svo og öðrum manneskjum) eintóm ömurlegheit.

Nú er spurning hvort ég skyldi taka upp nafn forföðurs míns en ég er náttúrulega svo heppinn að ég er kominn með aukanafnið sem allir almennilegir konungar þurfa að hafa. Vilhjálmur Sigursæli, Óli Gneisti.

Blóð konungsættarinnar er ennþá hreinna vegna þess að svo heppilega vill til að Eygló er einnig komin af þessum kóng.

Mánudagur, 21. júlí 2003 klukkan 3:21

Frændur!

Í Íslendingabókarskoðun minni þá hef ég nokkrum sinnum rekist á sexmenninga í bloggheimum, hingað til hef ég fundið neinn skyldari mér en Særúnu en nú fann ég tvo frændur… og ég á ekkert sameiginlegt með þeim.

Sá sem ég var að fletta upp var Potturinn sjálfur, Tómas Hafliðason, kemur í ljós að Heiða systir ömmu minnar var amma hans. Ég og sjálfstæðismaðurinn Tómas eigum fátt sameiginlegt. Þegar ég skrapp aðeins yfir á síðuna hans sá ég link á “Óla frænda” sem ég kíkti á til að sjá hvort væri líka frændi minn og viti menn, hann var það líka. Ég og kristnibloggarinn Ólafur eigum fátt sameiginlegt.

Hvort ég eða frændur mínir eigi meira sameiginlegt með Þóroddi langafa og Þóreyju langömmu veit ég ekki (þau voru kristin einsog fólk var almennt, síðan minnir mig að það sé haugur af prestum í ættinni ef maður fer aðeins aftur). Ég veit annars lítið um þau hjón, Þórey dó þegar amma var 14 ára (og Heiða 13 ára) en Þóroddur er hins vegar sá langafi minn sem næstur var mér í tíma. Þóroddur dó þó 9 árum áður en ég fæddist. Þóroddur er reyndar jarðsettur hér í Reykjavík, í Fossvogskirkjugarði. Fallegur legsteinn með mynd af honum, þegar ég fór þangað í fyrra tók Eygló einmitt mynd af mér við steininn og ég gaf ömmu síðan myndina.

Ísland er alveg afskaplega lítið.