Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008 klukkan 11:21

Nýtt Tímarit punktur is

Fyrir áhugasama má benda á að tilraunaútgáfa af vefnum Tímarit punktur is er komin upp. Aðalkosturinn er að geta leitað í öllum textalesnu blöðunum í einu. Kíkið á þetta. Mig grunar að lesendur mínir kunni að meta þetta.

Föstudagur, 2. maí 2008 klukkan 21:36

Glæpsamlegir hugir á steinaldarbókasöfnum

Það er merkilegt að þó að fólkið í Criminal Minds hafi aðgang að ótrúlegustu gagnabönkum en þegar það þarf að finna ákveðna bók þá er haft sambönd við fjögur bókasöfn sem þurfa voðalegan tíma til að fletta upp og finna bókina. Ég kíkti á netið og fann umrædda bók á The Library of Virginia á tveimur mínútum og ég á erfitt með að trúa að það taki langan tíma að finna eintakið. Kannski að það vanti bara bókasafns- og upplýsingafræðing í teymið þeirra.

Miðvikudagur, 23. apríl 2008 klukkan 14:17

Myndskilaboð - Heilsulind hugans

Image017.jpg

Fimmtudagur, 3. apríl 2008 klukkan 11:03

Færeyjingar ódauðlegir…

…í bili.

Miðvikudagur, 19. mars 2008 klukkan 9:32

Skjalaeyðing

Þess má annars geta að ég tek að mér að eyða úreltum handbókum ef þess er þörf.

Mánudagur, 3. mars 2008 klukkan 14:50

Átakafundi lokið

Það lítur út fyrir að Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga lifi af. Ég fór ekki á fundinn enda fékk ég ekki fundarboð. Held samt að ég hafi verið samþykktur inn í félagið.

Föstudagur, 8. febrúar 2008 klukkan 15:16

Æsispennó sjónvarpsefni

Í kvöld er verið að sýna eðalmynd á RÚV, rétt á eftir Gettu Betur:

Bókavörðurinn - Leitin að spjótinu

The Librarian: Quest for the Spear

Bókavörðurinn - Leitin að spjótinu (The Librarian: Quest for the Spear) er bandarísk spennumynd frá 2004. Bókavörður reynir að endurheimta töfragrip sem stolið er af safninu þar sem hann vinnur. Við það nýtur hann aðstoðar konu sem er vel að sér í bardagaíþróttum.

Leikstjóri: Peter Winther
Aðalhlutverk: Noah Wyle, Sonya Walger, Bob Newhart, Kyle MacLachlan og Kelly Hu

Sýnt: Í kvöld 21.15

Aðalhlutverkið er eins og þið sjáið í höndum leikarans Noah Wyle sem er sjónvarpsáhorfendum að góðu kunnur úr þáttunum um Bráðavaktina. Einnig er Kyle MacLachlan áberandi en hann þekkjum við úr sjónvarpsþáttum eins og Aðþrengdar eiginkonur og Tvídrangar. Eðalskemmtun í gegn.

Annars geri ég ráð fyrir einhver gálaus safngestur hafi bara sett spjótið í vitlausa hillu. Krakkar mínir munið að láta bókaverði um að raða bókum (og vopnum) aftur í hillurnar. Týnd bók er glötuð bók!

Föstudagur, 8. febrúar 2008 klukkan 13:58

Íslam og skjalastjórn

Spenntir lesendur sem vilja lesa meira um stóra skjalastjórnardissmálið geta farið á Hugsandi. Sjálfur skammast ég mín reyndar svolítið fyrir að nenna að standa í þessu.

Þeir sem vilja meiri hasar (ef það er hægt) hafa örugglega frekar áhuga á úttekt Matta á Íslamistum með afslætti. Sjálfur hef ég ekki lesið umræddar bækur en umfjöllun Matta er allavega sú áhugaverðasta sem ég hef lesið.

Föstudagur, 1. febrúar 2008 klukkan 13:26

Krossfarinn í Kópavogi

Ég man þegar ég horfði á þætti Terry Jones um krossferðirnar að mér þótti stórskrýtið þegar hann upplýsti að krossfarar hefðu verið gjarnir á að slátra kristnu fólki alveg eins og múslímum. Ekki að ég styðji hið síðarnefnda, mér finnst þetta bara skrýtið. Ef markmið krossferðanna var að útbreiða kristindóm þá hefði verið góð ákvörðun að slátra ekki kristnu fólki. En ætli þetta kristna fólk hafi ekki verið af röngu tegundinni?

Krossfari nútímans á við sama vanda að stríða. Hrafn Sveinbjarnarson ætlar að bjarga skjalamálum þjóðarinnar, sem er þarft verk, en á leiðinni virðist hann ætla að eyða mestri orku í að slátra skjalastjórum. Ekki góð taktík.

Mánudagur, 28. janúar 2008 klukkan 20:55

Hádegishittingur, hálfgildingsvinna og rólegheit Íra

Í dag var eiginlega fyrsti dagurinn í vinnu en þó ekki. Fór í tíma í H.Í. á vegum vinnunnar í upprifjunarskyni.  Á morgun eru síðan námskeið sem heldur áfram á miðvikudag og fimmtudag. Vinnan hefst í alvörunni á föstudag.

Í hádeginu var gaman. Bókasafns- og upplýsingafræðinördarnir hittust. Yfirleitt eru einhver afföll en við Eygló, Nils, Halli, Danni og Hjördís komumst öll. Ægilega gaman og við vorum að tala um að gera þetta reglulega. Það var rætt um margt og þá sérstaklega ritdeila síðustu viku. Mikið hlegið.

Írar eru rólegir. Ég hef ekki ennþá fengið einkunnir. Í dag fékk ég síðan upplýsingar um fasteignamiðlunin sé að bíða eftir síðasta rafmagnsreikningnum til þess að geta borgað mér það sem ég á inni af tryggingargjaldinu. Enginn flýtir sér.

Eldri færslur »