Category Archives: Cork

Beamish

Þegar ég sé Beamish þá fæ ég Cork nostalgíu. Ég hef raunar aldrei smakkað þessa bjórtegund og tel engar sérstakar líkur á að ég geri það. En á hverjum degi sem ég gekk í skólann sá ég bruggverksmiðjuna.

Fyrst þegar þýsku skiptinemarnir komu til Cork keyptu þeir sér Guinness á kránni. Þeir gerðu þetta af því að þeir vissu að þetta var írskt. Þegar þeir voru búnir að vera í smá tíma í borginni skiptu þeir yfir í Beamish. Guinness er frá Dublin og maður drekkur ekki svoleiðis ef maður vill vera eins og innfæddur í Cork.

En já, það væri gaman að rölta um miðborg Cork.

Ár frá Cork

Það er ár síðan ég vaknaði eldsnemma, eða sofnaði varla, og náði í leigubíl út á flugvöll í Cork.

Ég bara sakna hennar töluvert og vona að ég muni snúa aftur næst þegar Íslendingar fá að fara til útlanda.

Írlandshandbók

Í dag keypti ég mér ferðahandbók um Írland en þegar ég fór að skoða hana þá eyddi ég meiri tíma í að lesa um Cork heldur en Derry. En ég hlakka samt til að fara þarna “norður”.

Corkað í dag

Í dag sendi ég smá skrif til Cork og fór líka í bankann til að reyna að innleysa ávísun frá leigusalanum þarna úti. Það mun víst taka allt að tvær til þrjár vikur að fá peningana. Þá gæti verið liðið hálft ár frá því að ég fór þaðan.

Naomh Pádraig

Það er alveg merkilegt hvað er mikið vitlaust í þessarri frétt á Mbl um dag heilags Patreks. Raunar fréttin uppruninn á BB en það er lítil afsökun. Heilagur Patrekur, eða Naomh Pádraig, var líklega fæddur í Englandi eða Skotlandi. Hann var líklegast kristinn áður en hann var hnepptur í þrældóm af Írum, pabbi hans á að hafa verið djákni en afi hans prestur.

Það er villandi að segja að hann eigi að hafa útrýmt öllum snákum á Írlandi heldur á hann að hafa rekið þá á brott. Við höfum engar heimildir fyrir því að dánardagur hans, sem er oft sagður vera 17. mars 461, hafi verið haldinn hátíðlegur fljótlega eftir dauða hans. Ég held að það sé líka ósennilegt hann notið vinsælda um allt Írland fyrr en töluvert seinna því það eru margir svæðisbundnir dýrlingar sem voru í aðalhlutverki annars staðar.

Það eru annars til nokkuð margar skemmtilegar sögur af Patreki og ég mundi endurtaka einhverjar þeirra ef ég gæti flett þeim upp til að staðfesta. Reyndar var ein mjög einföld og ég segi hana eftir minni.

Guð segir við heilagan Patrek: “ég vil að þú farir og kristnir Íra”. Patrekur svarar því að Írar séu nú alveg óþolandi og ólýðandi og hann vilji ekki fara. Guð sendir þá leiðinlegan mann til að búa í næsta húsi við Patrek og Patrekur segir: “Jæja, þá er væntanlega bara eins gott að fara til Írlands”.

Þetta virkar betur með írskum hreim, jafnvel lélegum.

Raunar eru hátíðahöldin eins og þau eru í dag að miklu leyti upprunin í Bandaríkjunum og voru bara seinna flutt inn til Írlands. Það er þó enginn að lita neinar ár grænar. En mér þætti gaman að vera í Cork núna. Rölta niður götuna hans Patreks og hitta vini mína þar. En því miður hefði það verið of mikið vesen og of dýrt. Ég er hins vegar í grænum Írlandsbol í tilefni dagsins.

Gengisbrask

Seinni hluti Erasmusstyrksins er kominn í hús. Sökum hærra gengis hef ég grætt um fimm þúsund krónur á seinagangi Íra. Ég á enn eftir að fá tryggingagreiðsluna mína fyrir Arcadia Hall til baka. Spurning hvort að gengishækkunin verður eitthvað gengin aftur eða hvort ég græði bara enn meira á því. Spennó.

Írar skila

Loksins skila Írar sínu. Einkunnir í hús. Get loksins farið að ganga frá öllu þessu. Ég er sáttur við einkunnirnar mínar. Marie-Annick gaf mér 65% en hin aðeins lægra. Ég er sáttur við þetta. Ég lagði eiginlega mest á mig hjá henni, hún vakti áhuga minn og ögraði mér.

Skólinn og borgin

Á vefritinu Hugsandi er grein eftir mig um dvöl mína í Cork.

Skólinn og borgin við ánna Lee.

Evrupælingar

Eina huggunin sem ég hef þegar ég er að bíða eftir að fá a) tryggingargreiðsluna mína frá leigusalanum í Cork og b) námsárangurinn minn svo ég geti fengið afganginn af Erasmusstyrknum (og námslánin) er að Evran er að hækka nokkuð stöðugt. Á mánuði hefur hún risið um cirka 10 krónur. Það eru ágætir vextir. Á sama tíma er ég feginn að hún var nokkuð stöðug meðan ég var úti og greinilega í lægri kantinum.

Beðið eftir pósti

Ég er að bíða eftir pósti frá Írlandi. Þá fæ ég pening. Þangað til fæ ég ekki pening. Svona er biðin.