Category Archives: Dylgjur

Enn fleiri fórnarlömb í Afríku?

Baldur McQueen skrifaði um daginn nokkuð sem ég staldraði við:

Í ljósi þess Vatikanið hefur hlaupið frá vandanum með tilfærslu, telja menn fullvíst að mun fleiri fórnarlömb megi finna í Afríku, en þangað hafa margir prestar verið fluttir síðustu ár.

Það er skelfilegt tilhugsun að Afríka hafi verið notuð sem ruslakista fyrir svona menn.

Dagbækur Michael Palin

Ég er að lesa annað bindið að dagbókum Michael Palin. Fyrra bindið fjallaði um aðal Python árin en þetta er frá 1980-1988. Karlinn er stórskemmtilegur og einlægur. Hann talar til að mynda nokkrum sinnum um hvað honum líði kjánalega að tala við og fyrir framan fólk sem telur að það sem hann segi sé merkilegt á þeirri einni forsendu að hann sé frægur grínisti.

Af illa innrættum hægri gerpum

Það er ekki skrýtið að þetta illa innrætta hægri gerpi skuli ekki leyfa fólki að skrifa athugasemdir við bloggfærslur sínar eða vísa á það sem hann er að tala um því þá yrði lygin augljós.

Þolinmæði

Það er voðalega erfitt að hafa rétt fyrir sér en geta ekki komið því til skila. En þolinmæði vinnur þrautir allar.

Múhahahahahaha

Ó, hve ljúft er vort líf.

Kunnáttulaus

Ég hef aldrei lært að láta peningana mína vinna fyrir mér og þarf því bara að gera það sjálfur. Ég er hvorteðer ekki aðdáandi peninga beinlínis. Ef þeir duga þá er ég sáttur. Allt annað er bónus. En ég kann á Google og það kemur sér oft vel.

Annars er svolítið síðan að ég hætti við að skipta um banka enda var ég aðallega pirraður yfir því að SPRON ætlaði að sameinast Kaupþingi. Núna er það víst ekki í spilunum lengur þannig að ég er sáttur.

Húsþrælar

Það þótti ekki falleg einkunn þegar Harry Belafonte kallaði Colin Powell húsþræl. Ástæðan er sú að húsþrælar voru lítils metnir af öðrum þrælum. Með því að vera sérstaklega þjónustulundaðir við meistara sína fengu þeir að vera inn í híbýlum þeirra og þjóna þeim. Fengu gömul föt af þeim og héldu að þeir væru þess vegna meira virði. En í raun voru þeir bara þægari. Það er ekkert virðingarvert við það. Húsbændurnir voru líka alveg líklegir til þess að losa sig við þá þegar þeir komu ekki lengur að gagni. Þeir áttu því afar fáa vinir, þessir þægu húsþrælar.

Vel að lygaratitlinum kominn

Maðurinn á allavega ekki erfitt með ljúga. Hvenær á síðan að verðlauna fólk sem segir sannleikann?

Framsókn

Á ævi minni hef ég fáar ákvarðanir tekið jafn snjallar og að hætta að styðja Framsóknarflokkinn. Þið getið getið ykkur til um að ákvörðunin að styðja þennan flokk til að byrja er akkúrat á hinum endanum á þessum skala.

Annars þá er alveg óendanlega skrýtið að Guðni haldi að hann græði eitthvað á að gera flokkinn kristilegan. Það tókst ekki þegar Halldór reyndi það. Íslendingar kjósa ekki eftir trúarskoðunum, hvorki trúaðir né trúleysingjar. Ég veit bara um einn söfnuð á landinu þar sem kosið er eftir flokkslínum og þar lætur leiðtoginn hjörðina kjósa nafna sinn.

Klikkað fólk

Það er erfitt þegar klikkað fólk hegðar sér á klikkaðan máta án þess að maður megi í raun segja að það sé klikk.