Category Archives: Dylgjur - Page 2

Tæknidýrkun

Ég fór á hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins áðan. Því var haldið fram að tæknin gæti í framtíðinni leyst eitthvað af varðveisluvandamálum okkar. Sumir hefðu væntanlega brotnað niður við heyra af svona tæknidýrkun.

Alarmistar

Nú man ég eftir fullt af fólki sem varaði við kjarnorkuvopnum. Helvítis alarmistar. Við erum ekki dauð. Þetta hefur greinilega verið sauðmeinlaust.

Ummæli sem segja allt…

Ég ætla að biðja þennan mann að drepa engan í dag. Ég tel að þessi ummæli mín segi allt sem segja þarf um þennan mann.

Vefur 0.0

Þeir sem eiga erfitt með gagnrýni ættu kannski að niðurfæra í Vef 0.0 og skrifa bara í dagbók á pappír.

Skjalaeyðing

Þess má annars geta að ég tek að mér að eyða úreltum handbókum ef þess er þörf.

Að hafa rangt fyrir sér

Mér er illa við að hafa rangt fyrir mér. Það hljómar reyndar eins og ég sé góður með mig en ég tel þetta ákaflega góðan kost. Þetta þýðir að ég forðast að fullyrða um það sem ég veit ekki fyrir víst og ég reyni að skoða málin vel áður en ég tjái mig um þau. Ég á svo bágt með að skija fólk sem hoppar af stað og kemur fram með vitleysur sem auðvelt hefði verið að leiðrétta með smávægilegri grunnvinnu.

Ég skil þetta reyndar miklu betur á bloggi en þegar fólk skrifar blaðagreinar og flytur fyrirlestra án þess að vinna heimavinnuna sína þá hristi ég bara höfuðið í vantrú yfir vitleysunni. Raunar er ég líka þannig gerður að ég reyni að leiðrétta mig þegar ég hef rangt fyrir mér af því að þá færi ég mig um leið inn á réttu hliðina. Þetta fólk virðist ekki þjást af slíkum kenndum.

Tek fram að allir geta mislesið stöðu eða túlkað eitthvað rangt. Það er allt annars eðlis og ég er örugglega reglulega í þeim hópi. Ég er ekki að tala um nein svona túlkunaratriði heldur að hafa staðreyndirnar rangar þegar þær eru í raun óumdeildar. Það finnst mér óskiljanlegt.

Hádegisfyrirlestur

Þarna fór klukkutími sem ég fæ aldrei aftur.

Þreytandi rugg og rugl

Ég er allur með því að rugga bátnum og ýfa upp fjaðrir en hvað gæti verið meira þreytandi en fólk sem gerir þetta einungis til að fullnægja eigin athyglissýki? Að lokum hlustar náttúrulega enginn á þetta fólk. Sem betur fer.

Skjalaráð

Mér skilst að það ætti ekki að eyða neinum skjölum og helst prenta þau öll út. Þetta verður til að við finnum frekar áhugaverðar upplýsingar, eða eitthvað annað orð sem merkir það sama af því upplýsingar eru vont orð. Þetta er líka allt menningararfur. Það er líka vont að nota skjalakerfi sem gera ráð fyrir því að með tíð og tíma bætist við flokkar sem ekki var hægt að sjá fyrir þegar kerfið var búið til.

Mjög hjálplegt allt saman.

Soralönd

Þau eru alltaf leiðinleg þessi soralönd þarna sem vilja ekki virða mannréttindi.