Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 23. október 2007 klukkan 23:23

Að heyra sig hrjóta

Ég hef áður minnst á að í vissum aðstæðum þá get ég heyrt sjálfan mig hrjóta. Áðan þá sofnaði ég með koddann undir hálsinum en ekki höfðinu þannig að ég var í eðalhrotustellingu og varð var við hroturnar í sjálfum mér. Þetta gerist líka þegar ég sofna í lestum. Kannast einhver annar, sem vill viðurkenna það, við þetta fyrirbæri?

Ég tek fram að undir venjulegum kringumstæðum þá hrýt ég voðalega lítið. Allavega samkvæmt vitnisburði þeirra sem þekkja til.

Hins vegar hrýtur Rapha dáltið hérna í næsta herbergi. Angrar mig ekki og mig grunar að það tengist því að hann sé veikur.

Fimmtudagur, 9. ágúst 2007 klukkan 10:45

Varist …

Ég held að Reykjavík verði leiðinlegri þegar Bryndís yfirgefur landið.

Sunnudagur, 8. júlí 2007 klukkan 9:59

Hammersnitseln

Hæjoj, hæjoj, vír hammersnitseln, vír hammersnitseln, vír hammersnitseln.

Miðvikudagur, 28. febrúar 2007 klukkan 22:20

Ef fólk bara hlustaði á Ármann

Þegar ég las greinina í Séð og Heyrt um náungann sem varð óglaður við að sjá vininn á “vinkonu” sinni þá varð mér hugsað til greinarinnar hans Ármanns frá því um daginn.  Bara ef óglaði maðurinn hefði lesið greinina hans Ármanns, þá hefði hann bara áttað sig á að best væri að gera gott úr stöðunni.

Laugardagur, 4. nóvember 2006 klukkan 21:31

Gervifóturinn

Er ég einn um að sjá fyrir mér gervifótinn hennar Heather notaðan í erjunum við Paul?

Fimmtudagur, 26. október 2006 klukkan 18:26

Týndi reikningurinn

Ég fékk undarlegan póst frá Póstinum áðan.  Það var tilkynning um pakka og mér tilkynnt að það vantaði reikning fyrir pakkanum.  Hið skrýtna var hins vegar að reikningurinn fylgdi með í umslaginu.

Þriðjudagur, 22. ágúst 2006 klukkan 10:45

Saddam kl.

Hvernig túlkar maður það að finna post-it miða á borðinu sínu sem stendur “Saddam kl.” á?

Fimmtudagur, 27. júlí 2006 klukkan 0:04

Gott að vita

Vaktstjóri hjá Lögreglunni í Hafnarfirði sagði að ekki væri leyfilegt að kasta mannaskít í hús

Miðvikudagur, 5. apríl 2006 klukkan 23:49

Boutros Boutros Ghali

Ég mundi loksins eftir hinu atriðinu sem pirraði mig í Trivial Pursuit um daginn.  Boutros Boutros Ghali virðist hafa farið framhjá spurningahöfundunum því þeir héldu því fram að aðeins afrískur maður hefði verið aðalritari SÞ.  Mundi þetta þegar ég sá Hans Blix.  Ég játa að ég er undarlegur.

Mánudagur, 6. mars 2006 klukkan 13:51

Kortið sem hvarf

Ég skrapp aðeins niður í Nettó nú rétt í þessu.  Ekki beint frétt en þegar ég var búinn að kvitta og afgreiðslukonan ætlaði að rétt mér kortið þá missti hún það.  Kortið lenti á færibandinu sem var í gangi og hvarf niður með því.  Rétt áður en það fór ofan í sá ég myndina af sjálfum mér glotta í áttina að mér.  Þetta var svo undarlegt að ég gat ekkert annað en hlegið eftir að ég hafði jafnað mig aðeins.  Konan opnaði borðið undir færibandinu og reyndi að finna kortið en það gekk ekki.  Hún fann hins vegar fimm hundruð krónur og töluvert af klinki.  Síðan kom einhver maður að aðstoða en hann gafst fljótt upp og bað mig um að koma seinna.  Ég bíð semsagt eftir símtalinu.

Eldri færslur »