Category Archives: Fjölmiðlar - Page 3

Áskrift að Mogganum

Ég hef aldrei verið með áskrift að Mogganum. Ég kaupi blaðið þegar einhver sem ég þekki deyr eða þegar grein eftir mig birtist þar. Einu sinni vorum við með prufuáskrift að Mogganum í mánuð og fengum aukamánuð þar sem við nýttum símanúmerabirti okkar, sem var þá nýlegt fyrirbæri, til að forðast hringingar frá þeim.

En það sem ég ætlaði að segja er að það skiptir ekki máli hvort fleiri segja upp áskrift en gerast áskrifendur. Mogginn er búinn að missa tiltrú þeirra áskrifenda sem skiptu máli sem er fólkið af  miðjunni og vinstrinu. Núna predikar Mogginn bara yfir kórnum.

Margir fyrri ritstjórar Morgunblaðsins skildu nauðsyn þess að hafa í kringum sig dáltið af vinstrimönnum. Þetta varð til þess að fólk hugsaði með sér að það væri nú greinilega ekki bara hægrisjónarmið í blaðinu. Blaðið var nú samt alltaf mjög hægrisinnað en þeir lögðu sig fram við að halda grímunni til málamynda. Nú hefur öllum áberandi vinstrimönnum á blaðinu verið sagt upp. Það er engin gríma lengur.

Mogginn hefur kannski ekki alltaf verið málgagn Sjálfstæðisflokksins en hann hefur alltaf verið málgagn afla innan flokksins. Það ein sem hefur gerst núna er að ESB armurinn missti stjórnina og Davíðsarmurinn náði henni. Mér þykja það ekki merkileg tíðindi. Það að Davíð sjálfur sé orðinn ritstjóri sýnir hve firrt þetta lið er orðið.

Að skjóta sig í fótinn

Það hefur verið svoltið áhugavert síðustu daga að fylgjast með þessum mönnum miða vandega á fótinn á sér og síðan, þrátt fyrir ótal viðvaranir, skjóta.

Ég var satt best að segja á þeirri skoðun að Davíð yrði ekki ráðinn. Ég hélt að þetta væri eitthvað plott. Fyrst dreifa sögunni af því að ráða Davíð og síðan ráða einhvern næstum því jafn slæman og vona að fólk hugsaði með sjálfu sér: “Ja, allavega höfðu þeir vit á því að ráða ekki Davíð.”

Gagnsemi DV

DV sýnir í dag fram á gagnsemi sína og birtir upplýsingar um Auði Eir og Bjarg. Þetta eru reyndar hlutir sem fjölmargir hafa vitað áratugum saman. Kirkjan og flestir aðrir hefur bara alltaf kosið að trúa ekki fórnarlömbunum. Enginn annar fjölmiðill hefur þorað að fara í þetta mál. Eru vinsældir Auðar þar kannski stórt atriði.

Í blaðinu er líka góð grein um Helga Hóseasson. Endilega kaupið eintak.

Merkileg vinnubrögð hjá Pressunni

Ég sendi í gær ályktun Vantrúar um nýsamþykkt lög til ýmissa fjölmiðla. Ég lét fylgja með umsögn Vantrúar um frumvarpið. RÚV fjallaði um málið og lagði fullmikla áherslu á það sem ég taldi aukaatriði. Á móti er umfjöllun Pressunnar merkileg að því leyti að þar hafa menn lesið það sem ég sendi þeim, ekki bara ályktunina heldur umsögnina líka. Það er virðingarvert.

Birtingarhraði

Síðast þegar ég sendi grein í Morgunblaðið tók það fjóra mánuði að fá hana birta. Í gær sendi ég Fréttablaðinu grein sem birtist í dag. Raunar varðaði Morgunblaðsgreinin ekki málefni líðandi stundar á meðan Fréttablaðsgreinin var alveg í núinu. Þetta er samt frekar mikill munur.

Mogginn sár

Þessi frétt á Mogganum er stórfyndin. Það skín svo yndislega í gegn hve sárir menn eru þar á bæ. Það sem toppar málið er að það er hvorki hægt að blogga við fréttina né senda hana á Facebook. Væntanlega eru Moggamenn hræddir við að hæðst verði, réttilega, af þeim.

Bjálfaleg netkönnun

Á Vísi er netkönnunin “Hefði gengi krónu þolað frekari stýrivaxtalækkun?” Svarmöguleikarnir eru já og nei. Ég tel mig nokkuð vel upplýstan en ég hef ekki grænan grun um hvaða áhrif meiri stýrivaxtalækkun hefði haft á gengi krónunnar. Ég giska að það sama eigi um nær alla lesendur Vísis. Stundum finnst mér að það ætti að kæra blöð sem birta netkannanir til siðanefndar Blaðamannafélagsins.

Keyptir fjölmiðlar

Ef Fréttablaðið og Morgunblaðið bera einhverja virðingu fyrir sjálfum sér sem fjölmiðlum ættu þeir að birta súluritið sem við sjáum hjá Matta, eða eitthvað svipað, og upplýsa um leið hverjir það voru sem borguðu fyrir nafnlausu villandi skattahækkanirnar.

Það hefur rifjast upp fyrir mörgum að svipað mál kom upp 1996 þegar í Morgunblaðinu birtust auglýsingar gegn Ólafi Ragnari Grímssyni. Það er þó rétt að benda á að þá tók Mogginn ekki í mál að birta svona auglýsingar án þess að tilgreina hverjir stóðu að því. Gefum Matthíasi Johannessen ritstjóra orðið:

Höfum haft nokkur óþægindi vegna neikvæðra auglýsinga í Morgunblaðinu um Ólaf Ragnar; um fjörutíu manns hafa sagt blaðinu upp. Fólk er ekki vant slíkum auglýsingum þótt þær tíðkist erlendis og viðbrögð þess byggjast ekki á rökum heldur tilfinningum. Þeir sem bregðast ókvæða við eru, að ég held, flestir stuðningsmenn Ólafs Ragnars en þó eru einhverjir aðrir sem kunna ekki við þessa áróðursaðferð og hafa fengið samúð með Ólafi Ragnari, jafnvel einhverjir sem hafa ákveðið að kjósa hann þótt þeir hafi ætlað að kjósa annan frambjóðanda áður. Mennirnir á bak við þessar auglýsingar eru Sigurður gamli Helgason fyrrum forstjóri Flugleiða, Ómar í Þýzk-íslenzka og Björgúlfur í Hafskipum. Við vildum ekki birta auglýsingarnar nema að því tilskildu að við gætum sagt frá því í frétt hverjir að þeim stæðu. Það var samþykkt.

Ætli það hafi ekki töluvert fleiri en 40 sagt upp Mogganum í þetta skipti. Annars spái ég því að orð Matthíasar eigi eftir að sannast nú. Fólki líkar ekki svona aðferðir og það mun beita atkvæði sínu til að undirstrika þá andúð sína á þeim.

Logi og byssurnar

Mér finnst það til fyrirmyndar að Logi Geirsson skuli koma fram í auglýsingu með augljósan og sterkan hómóerótískan undirtón. Hann með einhverjum gaur sem káfar á vöðvunum hans. Byssurnar maður. Ég hélt að íþróttamenn væru ekki svona hugrakkir.

Ég veit annars ekkert hvað er verið að auglýsa.

Þegar DV hringir

Um daginn var víst fyrirlestur um hvað maður eigi að gera þegar DV hringir. Ég hef raunar reglulega lent í því að DV hringi og aldrei lent illa í því. Í gær hringdi DV og ég er í blaðinu í dag.