Category Archives: Útvarp

Auðurinn safnaðist á einn

Þann 24. janúar var á dagskrá þáttur sem ég gerði í kúrsinum Munnleg miðlun og útvarp. Hann endaði af einhverjum ástæðum ekki á netinu hjá RÚV þannig að ég tek mér það bessaleyfi að setja hann hingað. Njótið.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Desert Islands Discs mómentið mitt

Í síðastliðinni viku hringdi Guðni Már Henningsson í mig og bauð mér í það sem heitir “Áratugalögin” og er hluti af sunnudagsþætti hans. Ég þáði að sjálfsögðu og var þar núna áðan.

Þetta var síðan vika valkvíða. Ég þurfti að velja lag fyrir hvern áratug lífs míns. Ég pældi og pældi. Ég valdi og hætti við og valdi upp á nýtt. Ég ákvað mig ekki endanlega fyrren núna um hádegisbilið.

Mér fannst rétt að nota viðmið Johnny Rotten við val á lögum sem var: “Mér finnst ekkert að því að vera í Sex Pistols og hlusta á The Bee Gees”. Semsagt: Ekki reyna að vera svalur.

Ég þurfti að velja Queen lag og ákvað að það yrði áttunda áratugslagið mitt.  Ég ætlaði að velja The Fairy Fellers Masterstroke en Eygló stakk upp á ’39 sem mér finnst miklu gáfulegra. Ég útskýrði texta lagsins – vonandi rétt. Eðlis- og stjörnufræðingar mega leiðrétta mig (ég hafði reyndar samband við Sigurð Örn til að fá þýðingu á einu hugtaki).

Níunda áratugslagið mitt var Lets Hear it for the Boy með Deniece Williams úr kvikmyndinni Footloose. Ég valdi það af því að ég man eftir að hafa farið á myndina í bíó og að hafa hlustað á tónlistina úr myndinni þegar ég fór að sofa. Ég var lengi að pæla í að taka The Chauffeur með Duran Duran en skipti síðan um skoðun.

Ástæðan var sú að tíunda áratugslagið mitt varð Ordinary World með Duran Duran. Lagið okkar Eyglóar.

Síðasta lagið sem minnstur vafi var um var Ragnarök með Tý. Það er valið bæði af því að mér er þakkað í bæklingnum með samnefndri plötu og af því að það er æðislega flott útfærsla á þema Völuspár með gríðarlegum skilningi á norrænni hetjuímynd.

Þetta var sumsé æðislega gaman. Ég játa að ég hef einmitt nokkrum sinnum hugsað að það væri gaman að fara í svona Desert Island Discs þátt og þarna fékk ég tækifæri til þess.

Beðið eftir Stormsker

Ég bíð spenntur eftir að heyra viðtalið við Guðna Ágústsson í útvarpsþættinum Miðjunni með Sverri Stormsker. Það að kallinn rauk út og heimtaði að þátturinn yrði ekki endurfluttur hefur gert þetta að skylduhlustun. Flestir sem tjá sig um málið virðast vera á því að Guðni hafi orðið sér til skammar. Ég er spenntur að heyra hvað fór þarna fram þar sem ég, ólíkt Bjarna Harðar, hef mestan áhuga á að dæma viðtalið sjálfur. Sverrir sagði að viðtalið kæmi á netið í dag og ég er búinn að rílóda síðunni nokkrum sinnum en ekkert enn komið.

Skíthæll á Kiss FM?

Ég var að heyra ljóta sögu af útvarpsmanni á Kiss FM. Á þriðjudaginn varð bóndi í Hrútafirði fyrir metangaseitrun. Sama dag var víst einhver skíthæll á Kiss FM að gera grín að þessu. Nú veit ég að blaðamenn DV slysast stundum inn á þessa síðu þannig að ég vona innilega að þeir sjái þetta og kryfji málið.

Biggi í Speglinum

Hann Birgir vinur minn Baldurs var í Speglinum á Rás 1 í gær að spjalla um Vantrú. Viðtalið var mjög vel heppnað. Ég hvet alla til að smella á hlekkinn hérna að ofan og hlusta á formanninn.

Útvarpsstjarnan ég

Ég var víst í útvarpinu áðan, að tala um leiki. Þátturinn sem Eygló og Hjördís gerðu í fyrra.

Í útvarpinu

Ég var í útvarpsviðtali, það mun ekki heyrast fyrren einhvern tímann eftir áramót. Ég var að spjalla um hluti sem maður á ekki að vera að tala um á mínum aldri, held að ég ætti að vera svona 40 árum eldri eða svo til að mega tala um þetta. Gerði mitt besta til að lengja viðtalið með smá upprifjunum.

Kjallarinn hjá Dr. Gunna

Í viðtalinu í Zombie í gær var Dr. Gunni að spyrja Tý hvort þeir væru ekki að flytja til Íslands. Heri spurði í gríni hvort að hann hefði pláss í kjallaranum fyrir þá. Dr. Gunni svaraði þá að það væri ekkert pláss í kjallaranum því Eivör væri þar. Mér þótti það fyndið. Einnig var komment um Bryndísi Schram sem neyddi mig til að bakka úr hljóðverinu svo það heyrðist ekki í mér.

Léttruglað Létt FM

Sigurrós benti mér í gær á klausu hjá Sunnubeib um einhver leiðindakomment frá útvarpskonu um Freddie Mercury. Hún var að tala um að hún skyldi ekki hvers vegna Freddie væri á þeim stalli sem hann er. Svo ég vitni í Sunnu:Það er óumdeilanleg staðreynd að Freddy Mercury var snillingur!

Sáuð þið krakkana sem reyndu að taka Queenlög í Idol? Það er bara ekki samanburður sem söngvarar ættu að fara í. Hann var líka það fjölhæfur að hann gat sungið hvað sem er.

En ég var heima hjá Hildi áðan og þá var lagið ’74-’75 með The Connels í útvarpinu. Þegar laginu líkur byrjar konan að rugla eitthvað um að lagið sé frá sjötíu og eitthvað (það er frá 1993) og sé með hljómsveitinni The Cornels. Það er greinilega ekki spurt hvort fólk hafi vit á tónlist þegar það sækir um vinnu á þessari stöð.

Valtýr Björn ekki með fingurinn á púlsinum

Í morgun hlustaði ég á Skonrokk, entist meiraðsegja að hlusta á beljuna Jónínu Ben í nokkrar mínútur. Þetta var fínt. Valtýr Björn kom í þáttinn að tala um íþróttir (sem mér þótti óþarfa innlegg). Dr. Gunni og Grjóni spurðu hann spurninga um hvernig hann héldi að leikur milli hinna þessara karlaliða við hin og þessi kvennalið myndu fara. Síðan spurðu þeir Valtý hvort svona leikur hefði aldrei farið fram (semsagt karlalið gegn kvennalið), hann sagði að það hefði gerst en langt væri síðan. Þetta þótti mér ekki bera vott um áhuga á því sem er á seyði í íslensku íþróttalífi. Um síðustu helgi átti að fara fram leikur milli kvennaliðs Breðabliks og karlaliðs Snartar Kópaskeri. Ekki veit ég hvernig leikurinn fór (ekki einu sinni hvort hann fór fram) en Valtýr Björn skaut harkalega framhjá með því að vita ekki af leiknum (takið eftir snjallri notkun minni á íþróttalíkingamáli). Hvernig vissi ég annars af því að þessi leikur ætti að fara fram? Ég hlusta á Rás 2.

Vona núna að Skonrokk geti orðið klassísk útvarpsstöð sem fer ekki niður á það stig að þurfa að vera endalaust með machoaulakjaftæði. Og spila meira Queen.