Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 7. maí 2008 klukkan 14:42

Hið íslenska Dreyfus-hneyksli

Hver er það sem veit um hvað hið íslenska Dreyfus-hneyksli snerist um?

Sunnudagur, 12. mars 2006 klukkan 2:54

Fé í hvíld

That money was just resting in my account.

Hvaðan kemur þetta?

Þriðjudagur, 15. nóvember 2005 klukkan 10:27

Skynjunin er ekki lengur mín

Anna systir náði svarinu, það var spurt um lagið *Skynjun*. Í því lagi er Björn Jörundur eyrað og Daníel Ágúst augað. Gunni Ben skaut á lagið *Allt* sem er nokkuð góð tilraun enda eru þessi lög nátengd en þar er Daníel eyrað (ég bý í hægra eyranu á þér). Mikið var þessi þraut nú skemmtileg.

Mánudagur, 14. nóvember 2005 klukkan 13:53

Canis mortuus est

Nafnleysinginn hafði þetta, *Miserere Dominus, miserere Dominus, Canis mortuus est* er úr myndinni *A Fish Called Wanda*. Þess má geta að ég á tvær útgáfur af þeirri mynd á dvd. Þarna fékk ég líka afsökun fyrir því að skrifa eitthvað á Latínu eins og er í tísku þessa daganna meðal þjóðfræðinema.

Mánudagur, 14. nóvember 2005 klukkan 13:11

Kvikmyndagetraun

Snögg kvikmyndagetraun. Í hvaða mynd er sungið: *Miskunna þú drottinn, miskunna þú drottinn, hundurinn dauður er*.

Enginn verðlaun eru í boði, ekki einu sinni titill.

Þriðjudagur, 8. nóvember 2005 klukkan 13:53

Himmi raskat er Queendrottningin 2005

Himmi nældi sér í fimm stig af tíu mögulegum. Ölli náði þremur og Tobbi tveimur.

Þriðjudagur, 8. nóvember 2005 klukkan 13:46

Queendrottningin - fimmta og síðasta spurning

Spennan í hámarki og lokaspurningin er barasta dáltið erfið.

1. Himmi er með þrjú stig.
2. Ölli er með þrjú stig.
3. Tobbi er með tvö stig.

Hvaða hljómsveit tók lagið Love of my Life á Freddie Mercury minningartónleikunum? Og hvaða lag þeirrar hljómsveitar kom í kjölfarið?

Tvö stig í boði!

Þriðjudagur, 8. nóvember 2005 klukkan 13:37

Queendrottningin - fjórða spurning

Það er greinilega stemming fyrir keppninni. Himmi með félaga sínum Google skýst upp í annað sætið. Ölli er ennþá efstur með þrjú stig og Tobbi í þriðja með eitt.

Hér kemur fjórða spurningin:

Hvaða hljómsveit stofnaði Roger Taylor árið 1987 og hvaða lag söng Freddie Mercury á fyrstu plötu sveitarinnar?

Hverjir ná stigum?

Þriðjudagur, 8. nóvember 2005 klukkan 13:16

Queendrottningin - þriðja spurning

Þetta er að verða líflegt. Ölli er með þrjú stig en Tobbi með eitt, þetta segir samt ekki alla söguna. Fólk hamast á reloadtakkanum.

Hér kemur spurning númer þrjú (í tveimur liðum):

Hvaða hljómsveit flutti lögin Blag og April Lady? Hver var bassaleikari hljómsveitarinnar?

Tvö stig í boði.

Þriðjudagur, 8. nóvember 2005 klukkan 12:51

Queendrottningin - önnur spurning

Ölli nældi sér í tvö stig með snöggu svari við fyrstu spurningunni. Nú bíða fjölmargir spenntir eftir spurningu númer tvö:

Hvar fæddist Freddie Mercury og hvert var upprunalegt nafn hans?

Sömu reglur og síðast. Svö í kommentakerfið takk fyrir.

Eldri færslur »