Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 16. janúar 2007 klukkan 15:19

Á nýjan stað

Í morgun fékk ég lykla að nýjum íverustað. Þetta er lítil en notaleg stúdíóíbúð í Vesturbænum. Ég geri ráð fyrir að flytja ekki síðar en á fimmtudag.  Ég giska að þetta verði uppúr hádegi þannig að ef einhverjir eru lausir og viljugir til að flytja með mér þá látið mig vita.  Þetta er ekkert sérstaklega mikið, þannig séð.  Allavega miðað við síðustu flutninga.

Sunnudagur, 14. september 2003 klukkan 21:01

Endurgreitt í flutningasjóðinn mikla

Dagurinn fór í að henda gestinum út. Eva var búin að vera hér í viku og við höfðum fengið nóg af henni. Reyndar var íbúðin hennar og Hildar loksins laus og við vorum að hjálpa þeim að flytja.

Að hjálpa Evu að flytja var auðvelt, ein ferð með þetta litla dót sem hún á. Síðan fórum við Eva og keyptum sjónvarp handa henni. Ég misnotaði afsláttinn minn og hún fékk 20″ sjónvarp á rétt rúmar fimmtán þúsund krónur.

Að hjálpa Hildi var flóknara. Smádrasl, smádrasl, föt, föt, föt, föt, fullt af fötum og meira smádrasl. Annars var það ekki mikið drasl enda flytur enginn í Micru með stóra búslóð. Fjórar ferðir í allt.

Fórum síðan á Eldsmiðjuna sem er í næstu götu við Hildi og Evu (sömu götu og Nils). Mér finnst einsog starfsandinn þar á bæ sé ekki alveg frábær. Undarlegt fyrirkomulag hjá þeim að hafa reyklaust á efstu hæð því reykurinn stígur upp (einsog margir vita) þannig að maður finnur fnykinn, þarf líka að ganga í gegnum reykingasvæðin. Maturinn er samt góður.

Ég stillti síðan sjónvarpið og videoið fyrir þær en í bili verða þær að horfa á það inn í eldhúsi því það eru undarlegar staðsetningar á sjónvarpsinntakinu í stofunni miðað við næsta rafmagnstengil.

Sunnudagur, 14. september 2003 klukkan 21:00

Skrýtinn staður, skrýtin tilfinning

Flutningum er lokið, allt komið á sinn stað, gesturinn farinn. Skrýtin tilfinning. Á vissan hátt finnst mér einsog ég sé að fara sofa hérna í fyrsta skiptið þó ég hafi búið hér í tvær vikur. Myndir væntanlegar og flutningasaga með.

Sunnudagur, 14. september 2003 klukkan 14:10

Partí, partí!

Við héldum partí í gær. Að mestu leyti var þetta fólk sem hafði hjálpað okkur að flytja en gestalistinn í heild var: Árný, Hjörvar, Hildur, Eva, Nils, Hjördís, Danni, Halli og Siggi (aldursdreifing frá árgerð ‘70 til árgerð ‘83). Við föttuðum eftir á hvers vegna Svenni og Hrönn ákváðu að mæta ekki, við höfðum nefnilega ekki hugsað út frá dagsetningunni og Hrönn átti afmæli. Jæja.

Við byrjuðum reyndar daginn á að kaupa tvo klappstóla í viðbót í IKEA svo í heild þá höfum við 10 stóla. Við keyptum líka tólf glös í stíl, eina ruslafötu í viðbót, herðatré, dót undir heita potta sem enginn man hvað heitir (hitaplatti) og drasl undir tímarit. Eva keypti sér bangsa sem ég vil kalla Emil (sænskur).

Við fengum risastórt (eða meðalstórt) blóm frá bókasafnsfræðinördum í innflutningsgjöf. Fleiri eru að spá í gjafir en við klúðrum þessu með því að eiga nær allt í búið þannig að við gátum ekki komið með neinar gjafatillögur.

Partíið var í okkar stíl og byrjað var á því að horfa á Popppunkt, Doktorinn var of örlátur á stig við Skítamóral í hljómsveitin spreytir sig (og vondur við Trabant sem hefði átt að fá fullt hús stiga) og nýja kerfið treystið of mikið á heppni. Ég og fleiri öskruðum svörin á sjónvarpið.

Næst var dregið fram Party & co og farið að spila, Árný og Hjörvar drógu sig reyndar í hlé enda var minnsta í fyrsta sinn í pössun (hjá ömmu, Helgu). Óli lék Monicu og skipaði í lið (reyndar var Eygló með í ráðum) eftir því hverjir þekktust minnst. Reyndar þurfti að hafa þrjá bókasafnsfræðinörda í liði til að þetta virkaði, það voru semsagt Danni, Halli og Eygló. Hin liðin voru Óli, Hjördís og Hildur og síðan Siggi, Eva og Nils.

Keppnin var hörkuspennandi og stórskemmtileg. Mitt lið náði forskoti til að byrja með en NSE náðu síðan góðum spretti og náði einni fleiri plötu (við reyndar með TradeMark plötu sem er erfiðasta platan þannig að munurinn var ekki það mikill). Lið Eyglóar var lengst af með enga plötu. NSE náði fyrst öllum plötunum en gekk ekki að ná lokareitnum. Harka hljóp í leikin þegar það var níðst á mínu liði með því að láta gefa ekki eftir að við svöruðum í raun rétt varðandi fyrri störf Vigdísar Finnbogadóttur, eftir það kom ekkert annað til greina en að vinna og það hófst en þá höfðu Danni, Halli og Eygló líka náð öllum plötunum þannig að jafnt var það.

Eftir þetta var planað að fara niðrí bæ en það gekk hægt, Siggi fór með Hjördísi, Nils og Danna niður í bæ (og fór sjálfur síðan heim) á meðan við hin biðum í hálftíma eftir að Eygló kláraði úr glasinu sínu. Á meðan Eygló kláraði glasið þá var þulin upp sagan af því hvernig við Eygló byrjuðum saman fyrir Halla, sú er hálfneyðarleg á köflum.

Eva var orðin svoltið hávær á leiðinni út og ég minnti hana á að við ættum nú nágranna, til dæmis bloggaranágranna og nefndi þau Kristján og Stellu á nafn og þá kom í ljós að Halli vinnur með Stellu.

Pöbbarölt hófst í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem ömurleg, ömurleg tónlist var spiluð. Hildur datt útúr hópnum á þeim tíma. Síðan voru hinir ýmsu staðir skoðaðir, oft bara biðraðir reyndar, heilsaði Árna Þorláki á förnum vegi. Enduðum inn á Celtic Cross og Eva litla komst inn þó hún eigi nokkra daga eftir í tvítugsafmælið sitt. Það var ágætt þar, trúbadorinn með nokkur góð lög (þó textinn hafi ekki alltaf verið á hreinu hjá honum). Ég söng vel og vandlega með The Wild Rover, Born to be Wild og Crazy Little Thing Called Love, reyndar sungum við flest eitthvað með. Stólar voru fáir þannig að ég sat á borði, Nils stóð lengi vel og Hjördís var á háum barstól.

Ekki entumst við lengi þar (Eygló búin að vera mjög völt nokkuð lengi) og snerum heim á leið, ég skutlaði Halla og Danna en tók Evu og Eygló með heim (enda er Eva búin að gista hjá okkur þessu vikuna). Ég vaskaði upp og tók til alveg strax. Ég svaf reyndar ekki vel í nótt enda með reykingahöfuðverk (hlakkar til þegar þessi viðbjóður verður bannaður). Eftir á að hyggja hefði líklega verið skemmtilegra að hanga bara heima, vera sinn eigin DJ og spjalla.

Myndirnar komnar inn loksins eftir tæknilega erfiðleika.

Föstudagur, 29. ágúst 2003 klukkan 14:40

Veikur maður erindast

Var að erindast áðan, ók alla leið út í Kringlu (sem tekur lengri tíma en að labba þangað). Byrjaði á að bíða í lengri tíma hjá Landssímanum eftir afgreiðslu til að segja upp símanum og líka til að breyta gsm-áskriftinni minni yfir í frelsi. Síminn er skítafyrirtæki, að ímynda sér að hafa bara tvo af fjórum básum mannaða þegar búðin er að fyllast, rugl.

Næsta stopp var Hagkaup og þar keypti ég spil sem okkur Eygló hefur lengi langað í, Scrabble, fjör framundan.

Að lokum fór í Bónus til að kaupa hakk, kók og mjólk (sem hljómar einsog kókómjólk ef það er sagt hratt). Þegar var búið að skanna allar vörurnar mínar inn þá kom í ljós að pappírinn var búinn í kassanum og verslunarstjórinn hljóp yfir í Eymundsson til að redda því. Gáfulegt.

Föstudagur, 29. ágúst 2003 klukkan 5:51

Flutningaplön

Ég geri ekki ráð fyrir að vera aktívur hér næstu daga, dett líklega úr netsambandi um leið og nýr mánuður hefst. Að vísu mun ég þá geta skroppið á netið í Háskólanum þannig að ég verð ekki alveg einangraður. Nú þegar ég hugsa um það þá veit ég ekki einu sinni hvert ég á að snúa mér til að láta mig í samband við Háskólanetið. Er með netkortið hans Ásgeirs sem ætti að duga fyrir utan að ég er ekki með driverana. Þetta reddast náttúrulega, maður hefur svosem nóg annað að gera í næstu viku annað en að hanga á netinu.

Annars þá er mikil tilhlökkun hjá mér að geta minnkað gjöldin til Landssímans um rúman tvöþúsundkall í viðbót, tveir mánuðir síðan þetta lækkaði einmitt um svipaða upphæð, þarf reyndar að byrja á að borga einhver gjöld vegna þess að ég er að færa símann (redda því á morgun).

Á morgun fer ég að redda sendiferðabíl til að flytja okkur, er reyndar ekki viss um hve stóran bíl þarf. Veit ekki hvað þetta mun kosta en ég ætla að gera verðsamanburð. Fer síðan að minna alla á flutninginn sem eiga að hjálpa okkur.

Á laugardaginn skreppum við Eygló í IKEA og Rúmfatalagerinn til að kíkja á húsgögn. Ég sá skáp sem er alveg tilvalinn undir geisladiska, videospólur og dvd í IKEA bæklingnum og eini gallinn er að hann er líklega ljótur, þurfum að skoða hann til að dæma almennilega.

Á sunnudag verður frágangur á lokastigi og mun ég til að mynda taka í sundur skrifborðið sem þessi talva er á, ætti kannski að gera það á miðnætti um leið og adslið dettur út.

Fyrrihluti mánudags mun skiptast milli skóla og þess að flytja viðkvæmari hluti (raftæki aðallega) á nýtt heimili, um klukkan fimm flytjum við líklega. Er búinn að plana að skilja Eygló eftir til að hún geti þrifið hérna en hef ekki sagt henni planið (reyndar er sumt af því sem ég er að skrifa hér minnisatriði fyrir mig enda hefur andvökunótt farið í plön).

Miðvikudagur, 13. ágúst 2003 klukkan 7:33

Kvart og kvein

Þessa daganna er ég ægilega ófrumlegur, dettur varla í hug að skrifa um annað en hvað ég hlakka til að klára þennan mánuð. Ég á eftir að vinna 12 daga (13 ef sá sem ætlar að vinna fyrir mig á laugardaginn verður ennþá veikur), þar af 8 á dagvakt og síðan 4 notalega daga á kvöldvakt. Gærdagurinn var ekki til að minnka leiðindi mín af vinnunni (vinnan er reyndar ekki svo slæm en þrír mánuðir þarna er nóg fyrir mig), ég var tekinn af notalega kælinum og látinn vera á almenna ganginum. Þetta var aðallega vegna þess að það voru sex veikir. Það er hrikalegt að hafa undirbúið sig undir rólegan þriðjudag og allt í einu er fullt að gera.

Ásgeir er víst að fara á Sauðárkrók að kenna ensku og íslensku þannig að í kvöld förum við til hans að gera húsgögn upptæk. Það eru minna en þrjár vikur þar til við flytjum og við erum ekki byrjuð að pakka í alvörunni, reyndar eru þrjár helgar þangað til við flytjum þannig að nægur er tíminn. Spóla fram í tíman.

Nú vill ég rólegar vikur í vinnunni, ekkert að gera.

Við Eygló þurfum að redda alveg haug af eyðublöðum áður en við flytjum, líka fyrir þann 23ja. Þoli ekki eyðublöð, þar af leiðandi gæti ég aldrei flutt til Bandaríkjanna.

En ég er ekki að segja neitt áhugavert, fer að klæða mig í vinnufötin.

Mánudagur, 11. ágúst 2003 klukkan 7:36

Spóla fram í tíman

Mikið væri ég til í að spóla yfir næstu tvær vikur, fínt að vakna á þriðjudaginn 26. ágúst, fara á Foo Fighters tónleika og vinna síðan þrjá daga. Eyða helginni í að pakka og flytja á mánudag. Byrja í skólanum, kaupa húsgögn og dunda sér við að koma öllu fyrir á nýja staðnum. En þess í stað á ég eftir að vinna 14 daga.

Fyllti inn eyðublöðin fyrir námslán í gær, förum bráðum að fylla inn eyðublöð fyrir húsaleigubætur (þó við förum í stærri íbúð þá lækkar leigan um fimmþúsund kall ef við tökum tillit til húsaleigubóta).

Þrjár vikur eftir í kælinum, það er svona einsog dómur.

Góðu fréttirnar eru hins vegar að krúna Írlands fer bráðum að falla í hendurnar á mér þar sem ég er búinn að sannfæra aðra erfingja um kosti stefnumála minna.

Þriðjudagur, 5. ágúst 2003 klukkan 0:31

Uppsögn leigu, nýr leigusamningur og húsgögn

Við sögðum upp húsnæðinu í dag, það gekk vel enda indælt fólk sem við höfum leigt hjá í tvö ár. Á morgun skrifum við undir nýjan leigusamning, gleði.

Nú eru það húsgögnin sem eiga hug okkar. Ég er meira á þeirri skoðun að fá gamla sófann sem við höfðum á Akureyri til Reykjavíkur en Eygló langar frekar að kaupa nýjan í Rúmfatalagernum, reyndar myndi ég samþykkja það hiklaust ef hann færi á tilboð einsog hann hefur svo oft gert áður. Síðan eru það önnur húsgögn sem okkur vantar, hillur, eldhúsborð eldhússtólar og jafnvel stólar í stofuna. Við höfum fengið tilboð um húsgögn en sökum veikinda höfum við ekki haft tækifæri til að skoða málið, að venju þá er Eygló mun kröfuharðari en ég í þessum málum. En þetta blessast allt. Fjármálin hjá okkur ættu að öllu leyti að vera í lagi ef allavega annað hvort okkar fær hlutastarf í vetur, ef við fáum bæði starf verðum við vel stödd.

Framtíðin er full af tækifærum.

(var þetta nokkuð of dramatískt?)