Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 30. nóvember 2008 klukkan 17:43

Ríflega 60 í uppskrift

Ég held að það hafi verið rúmlega 60 kökur úr einfaldri uppskrift í dag. Ég á þó eftir að telja alveg. Ég er frekar búinn á því. Byrjaði um níu og var að setjast niður núna. Uppvaskið cirka hálfnað og hreingerningin líka.  Stöðugur straumur inn og út í dag. Mjög gaman.

Þriðjudagur, 25. nóvember 2008 klukkan 9:29

Laufabrauðsgerð á sunnudag

Á sunnudaginn næstkomandi verður laufabrauðsgerð hjá okkur Eygló eins og svo mörg árin áður. Ég vona að sjá sem flesta þarna og því væri gaman ef vinir mínir og kunningjar sem ekki hafa þegar látið vita af komu sinni en vilja vera með myndu láta mig vita.

Ég held að ég setji þá reglu að allt krepputal sé bannað. Held að allir þurfi á því að halda.

Þriðjudagur, 25. desember 2007 klukkan 14:25

Jólagjafir

Ég fékk góðar og skemmtilegar jólagjafir.

Frá Eygló minni fékk ég náttslopp sem ég var loksins að ná af henni rétt áðan, Astrópíuspilið, Nýdanskrarsafnið Allt, disk með ljóðaupplestri Óskars Árna, maísstönglahaldara og nammi. Síðan fékk ég bókina um Þórberg frá tengdó ásamt nammi. Anna og Martin gáfu mér jóla Simpsons sokka. Frá Hafdísi og Mumma fengum við Trivial spurningapakka. Frá Svenna og Hrönn fengum við frekar spes sleifarhaldara, blómavasa og kartöflubursta. Fengum jólakertakalla frá Rósu og Jónbirni. Við fengum konfekt frá Danna.

Ég hafði mikið velt fyrir mér hve svipaðir pakkarnir frá Eggert og Dagbjörtu voru. Ég giskaði á Masterskall frá Eggert og ég var ekki langt frá því. Það var bókavarðardúkka. Frá Dagbjörtu var það hins vegar Freud sjálfur í dúkkuformi. Það mun væntanlega hjálpa mér í freudískri greiningu á þjóðfræðiefni í framtíðinni. Kíkið á myndina í færslunni hér að neðan til að sjá mynd af leikföngunum mínum.

Ég gaf Eygló Simpsons Cluedo, Heima með Sigur Rós (en reyndar gaf tengdó það líka í möndlugjöf) og sérstaka viðhafnarútgáfu af The Joshua Tree með aukadiskum og stöffi. Ég giska að aðrir sem ég gaf gjafir séu búnir að opna líka en ég ætla samt ekki að telja það allt upp.

Í dag þurfum við að fara að ákveða hvernig spilamennsku á jólunum verður háttað. Hvern langar að leika?

Þriðjudagur, 25. desember 2007 klukkan 1:29

Margfalt álag

Stundum þarf maður að ganga í öll hlutverkin.

olithrefaldurlitil.jpg

Ég hef nú lengi stefnt á að búa til svona mynd eins og Matti gerir gjarnan. Ég held að þetta sé fyrsta alvöru tilraunin samt.

Mánudagur, 24. desember 2007 klukkan 0:22

Þolláksmessukvöld

Kvöldið fór í heimsóknir. Við byrjuðum á Saltfiskveislu heima hjá Árnýju og Hjörvari. Fórum síðan til Sigga með pakka og fengum video í staðinn, lánað. Síðan fórum við heim til Eggerts. Skruppum síðan í Garðheima til að kaupa seríur á jólatréð. Keyptum eitthvað smáræði í Nettó áður en við náðum í Hjördísi í vinnuna. Sáum Árna Þorlák afmælisbarn og flautuðum á hann. Eftir að hafa skutlað henni heim fórum við með kort heim til Helgu og Brjáns. Núna erum við komin heim og margt eftir að gera.

Eygló tók þessa skemmtilegu mynd af mér, Hrefnu og Unu. Þær hafa gaman af því þegar ég sveifla þeim aðeins um. Sjálfur hef ég augljóslega ekkert gaman af því.

olihrefnauna.jpg

Miðvikudagur, 19. desember 2007 klukkan 23:34

Laufabrauð búið

Laufabrauðið er búið og gert. Gaman alltaf að fá fólk í heimsókn.

Minnisatriði. Ein uppskrift gerir um 55 kökur. Cirka.

Mánudagur, 17. desember 2007 klukkan 4:35

Laufabrauð á næstunni

Á miðvikudaginn er laufabrauðsgerð heima. Ef einhver vill koma sem ekki hefur látið mig vita þá er ennþá pláss. Látið okkur bara vita. Það væri líka gott að vita hvað fólk vill margar kökur.

Ef þið viljið vera í undirbúningnum líka þá getið þið komið uppúr svona þrjú. Ef þið viljið bara vera með í útskurði þá er fínt að mæta uppúr fimm. Síðan pöntum við pizzur þegar á líður og ef það er stuð þá eru allar líkur á spjalli, spilamennsku eða jólamyndaráhorfi um kvöldið.

Síðan er gott ef fólk mætir sjálft með verkfæri eins og vasahnífa, laufabrauðsjárn, skurðarbretti og jafnvel kökukefli ef þið ætlið að fletja út. Og Eygló bætir við í kommentakerfinu ef ég er að gleyma einhverju.

Taxinn kemur eftir rúman klukkutíma.

Föstudagur, 7. desember 2007 klukkan 23:32

Ekki, heldur,

Af einhverjum ástæðum sit ég fyrir framan tölvuna ekki skrifandi ritgerð heldur hlustandi á jólalög.

Mánudagur, 3. desember 2007 klukkan 19:45

Jólin og áramótin

Við verðum í Reykjavík um jólin. Höldum þau í fyrsta skipti í Bökkunum. Margt er óplanað ennþá.

Gamlárskvöld er óljóst. Hugsanlega eldum við bara heima nema okkur verði boðið eitthvað.

Nýársnóttin sjálf er plönuð. Við ætlum að halda partí (og því miður hryggja Sverri og Ósk með að mæta ekki til þeirra). Þetta verður augljóslega svona rólyndisspjallpartí sem endar kannski með spilamennsku. Vonum að fá slatta af vinum sem ekki nenna að fara niður í bæ til okkar.

Föstudagur, 30. nóvember 2007 klukkan 14:08

Síðbúin laufabrauðsgerð

Þó ég sé erlendis mun ég ekki láta það trufla jólasiði mína, þó þeir breytist aðeins eins og hefðir gera alltaf.

Þann 19. desember munum við Eygló bjóða vinum og kunningjum í laufabrauðsgerð heima hjá okkur. Þetta er miðvikudagur og við búumst við gestum frá og með klukkan fimm. Sjálfur mun ég byrja undirbúninginn mikið fyrr um daginn til að hafa allt til.

Væntanlega munum við hafa pizzur og einhverjar veitingar.

Endilega látið mig eða Eygló vita ef þið viljið vera með, msn, tölvupóstur eða komment hér að neðan. Hlakka til að sjá ykkur.

Eldri færslur »