Category Archives: Kaupa, Kaupa!

Rekkjan og Betra bak

Við Eygló vorum að fá okkur nýtt rúm. Við tókum á föstudaginn og fórum í tvær búðir. Við fórum fyst í Betra bak. Ég varð strax frekar áhugalaus um að versla við þá búð af því að það var ekkert merkt þar. Eygló talaði við afgreiðslukonu sem ætlaði strax að fara að selja okkur eitthvað rúm sem kostaði meira en hálfa milljón. Þegar henni var gert grein fyrir því að það væri ekki í bögdetinu okkar þá sýndi hún okkur eitthvað annað rúm sem kostaði víst eitthvað aðeins minna. Við spurðum hve mikið það kostaði og hún þurfti þá að fara í tölvu og fletta því upp, það tók svona 3-5 mínútur hjá henni.

Munurinn að fara í Rekkjuna sem er rétt við hliðina var algjör. Allt nákvæmlega merkt. Við gátum bara hunsað það sem var yfir okkar verðmarki og einbeitt okkur að hinum (og flest var reyndar mjög hóflega verðlagt sýndist manni). Það var líka engin uppáþrengjandi. Okkur var boðin aðstoð en annars gátum við bara trítlað á milli rúma og fundið hvað okkur líkaði.

Reyndar gerðist svoltið skondið þegar við vorum í þessu öllu. Gömul kona kom inn í búðina þar sem lágum í rúmi beint við innganginn. Hún byrjaði að rausa eitthvað um að það væri nú lúxus að fá að prufa rúmin og spurði okkur hvað það kostaði. Við héldum fyrst að hún væri að grínast en svo var ekki. Hún var bara svoltið skrýtin en þó aðallega bara fyndin.

Við fórum aftur í Rekkjuna á laugardag þar sem við vorum að velja milli tveggja dýnutegunda. Við spurðum afgreiðslumanninn hver væri munurinn á þeim og hann sagði að í raun væri þetta bara spurning um hvað okkur þætti þægilegra. Það var töluverður verðmunur á þessum dýnum og hann hefði alveg getað farið að tala um að sú dýrari væri miklu betri án þess að vissum nokkuð í raun um það. En hann gerði það ekki.

Ég var því ákaflega ánægður með Rekkjuna og, svo lengi sem rúmið valdi ekki vonbrigðum, reyna að versla þar aftur og benda fólki í kringum mig að versla þar líka.

Laufabrauðskennd verslunarferð

Við fórum að versla. Byrjuðum á að finna laufabrauðsjárn í Byggt og búið. Það var alveg kominn tími á að bæta því í búið. Fórum líka í fleiri verslanir. Keypti dvd mynd í Tiger á 400 kall. Sú heitir Fire and Ice og er eftir Ralph Bakshi. Vona að hún sé í ætt við Wizards. Við keyptum líka eitthvað af jólagjöfin. Eftir Kringluna fórum við í IKEA og borðuðum þar. Ég fékk mér sænskar kjötbollur og fannst þær ljúffengar. Ég væri alveg til í að borða þarna oftar. Keyptum líka drasl þarna. Fórum síðan í Nettó og keyptum vörur fyrir laufabrauðsgerð.

Það verður væntanlega byrjað að skera um tvöleytið á morgun. Ég veit ekki hve margir koma en ef einhver vill slást í hópinn, einhver landsbyggðardurgur sem saknar laufabrauðsgerðarinnar eða einhver sem hefur áhuga á að prufa, þá má alveg ræða það.

Amazon delivers

Fékk pakka frá Amazon. Tvær klassískar bækur eftir Richard Dawkins, *Selfish Gene* og *Blind Watchmaker*. Merkilegt hvað sköpunarsinnarnir hafa náð að vekja áhuga minn á þessum fræðum. Ég játa að ég stefni á að fá allavega aðra áritaða þegar ég hitti kallinn á næsta ári.

Ég fékk síðan þrjár bækur sem Alan Dundes kom nálægt. *Fables of the Ancients* sem fjallar um þjóðfræði í Kóraninum (svipað og *Holy writ as oral lit* fjallar um Biblíuna). *Quest for the Hero* inniheldur tvær bækur um hetjutýpur og síðan sérstakan hluta eftir Dundes sem heitir *The Hero Pattern and the life of Jesus*. Sú síðasta er *Little Red Riding Hood: A Casebook*, greinasafn um Rauðhettu.

Of mikið lesefni, of erfitt að velja. Tók síðan eina bók í viðbót á Hlöðunni í dag.

Síðan fylgdi í pakkanum myndin *Rustler’s Rhapsody*, klassísk gamanmynd með Tom Berenger og Matlock. Skilst reyndar að hommabrandari hafi verið klipptur út sem mér finnst aðeins of PC. Ef kúrekar í villta vestrinu mega ekki vera smá hómófóbik þá er maður illa staddur.

Á vit ógeðslega fólksins

Ég fór í Kolaportið í gær og keypti meira en nokkru sinni fyrr. Í fyrsta lagi þá fann ég flott eintak af Blekkingu og þekkingu. Síðan voru til þrjár tegundir af Queenbolunum þarna, ég keypti reyndar bara tvo. Margir leggja mikið uppúr Guðum sínum og ég fann einmitt tvo á tilboði, Búdda og Þór. Saman hljóta þeir að slá í gegn. Á sama stað fann ég svona stresskúlur sem maður lætur renna um í lófanum. Ég þarf eitthvað svona fyrir handæðið í mér. Þetta þrennt kostaði innan við þúsundkall. Að lokum keyptum við Eygló okkur sólgleraugu, aðallega til að hafa í bílnum. Fólkið þarna var merkilega lítið ógeðslegt.

DVD, geisladiskur og bók

Ég keypti bók, geisladisk og dvd-disk í dag. Þetta var allt í einum pakka og allt *About a Boy* og kostaði bara 890 í BT. Ég er mjög sáttur við þetta. Bókin er náttúrulega mjög góð. Myndin er hins vegar sú slakasta sem gerð hefur verið eftir Nick Hornby bók (með hugsanlegri undantekningu, hef ekki séð amerísku Fever Pitch).

Tvær Bónusferðir

Ég fór tvisvar í Bónus í gær. Í fyrra skiptið á var það Laugavegurinn. Ég ætlaði að versla kók, mjólk og brauð en þegar ég kom þarna inn var hvorki til brauð né kók. Þar að auki var mjög löng biðröð þarna. Ég ákvað að versla ekkert í það skiptið.

Seinna skiptið fór ég með Eygló og Ástu Hönnu eftir að hafa sótt þá fyrrnefndu í vinnuna. Við ákváðum að kíkja í Bónus í Kringlunni og komum þangað svona tíu mínútum áður en það átti að loka. Af einhverjum ástæðum var nær enginn þarna og þar að auki var ennþá töluvert til af tilboðsvörum. Búðin leit samt út einsog vígvöllur.

Við keyptum 5 tveggja lítra Bónus Appelsín á samanlagt 110 krónur. Við keyptum líka 6 tveggja lítra kók flöskur á 46 krónur stykkið (ef ég man rétt). Hver mátti aðeins kaupa tvær flöskur þannig að við buðumst til þess að við þrjú myndum borga þetta í þrennu lagi, afgreiðslumaðurinn nennti því ekki. Mjólkin var ókeypis. Gúrkur á tvær krónur stykkið og svo framvegis. Við keyptum um 70 vörur þarna og aðeins stóri osturinn kostaði meira en 200 krónur.

Skáparnir eru mjög fullir núna.

Minni og fótur

Við skruppum í Fuji í dag til að kíkja á minni í myndavélina. Það vildi svo heppilega til að 512 MB minni var að koma úr kassa á lækkuðu verði, ég stökk á þetta. Nú get ég tekið fjórfalt fleiri myndir eða tvöfalt fleiri ef ég fer í hærri upplausn.

Mig hefur lengi langað í þrífót og sú löngun jókst þegar Sverrir notaði myndavélina okkar í Háskólalistabrasið. Ég rakst á nokkra ódýra fætur og endaði á að kaupa einn sem kostaði 2100. Ég býst ekki við að hann sé rosalega góður en held að hann dugi mér. Ætli ég geymi hann ekki síðan í bílnum til að geta nýtt hann sem oftast. Að lokum keypti ég mér albúm sem ég vona að ég geti notað undir úrklippur.

Þetta var góð ferð í búðina.

Amazon pantanir

Jæja, ég er aftur að fá sendingu frá Amazon, tengdó heldur væntanlega að ég fái svona á hverju kvöldi af því ég fékk líka pakka þegar hún var hérna síðast. Í þetta skipti var sendingin í raun tvíþætt, annars vegar frá co.uk og hins vegar com, BNA og Bretland.

Í pökkunum voru:
* **Atheism: The Case Against God**, ég byrjaði einhvern tíman að lesa hana á tölvutæku formi og vissi að ég þyrfti að eiga hana, allir ættu að lesa hana. Í fyrstu köflunum bendir hann manni á spurningar til að spyrja trúmenn sem leiða til þess að maður getur afskrifað þeirra Guð (ef þeir svara en fæstir þeirra gera það).
* **Armageddon: The Musical** eftir Robert Rankin
* **They came and ate us: Armageddon 2: The B-Movie** eftir Robert Rankin
* **The Suburban Book of the Dead: Armageddon 3: The remake** eftir Robert Rankin. Væntanlega verður þetta steikt ferð um hugarlendur Rankins.
* **The Man with two Brains** með Steve Martin sem leikur Dr. Michael Hfuhruhurr, klassískt verk frá gulltímabili hans þegar honum var leikstýrt af Carl Reiner. Fyrsti flutningur á ljóðinu *O, Pointy Birds*
* **True Romance** special edition dvd, aukaleikararnir fullkomna þessa mynd: Brad Pitt, Gary Oldman, Dennis Hopper, Christopher Walken og svo framvegis.
* **Resevoir Dogs** special edition dvd, mynd um litakalla.
* **Pulp Fiction** special edition dvd, óþarfi að kynna þessa mynd.

Og þetta er eiginlega allt sem ég fékk núna.

Nokkur góð kaup

Ég fór niður í bæ í gær að kíkja í nokkrar búðir. Ég var í þetta skiptið meðal annars að leita bókinni Blekking og Þekking eftir Níels Dungal sem er stórgott yfirlit yfir það hvernig kristin kirkja hefur barist gegn flestum framförum á sviði vísinda. Ég fór fyrst í einhverja fornbókabúð á Hverfisgötunni og spurði um hana, náunginn sem var að vinna þarna settist þá niður til að fletta upp í Excelskrá. Ég man varla eftir því að hafa séð mann vera svona hægvirkan á tölvu, eins gott að ég gat leikið við hundinn á meðan.

Ég ætlaði næst að fara í Videosafnarann en sú búð var lokuð einsog síðast þegar ég fór þangað. Næst var það Gvendur Dúllari, ég fletti fyrst í hljómplötunum sem voru þar til á 300 krónur og fann þar Greatest Hits með Queen, ég tók hana að sjálfsögðu. Ég spurði síðan afgreiðslumanninn um bókina Blekking og Þekking, hann fletti ekki upp í neinni tölvuskrá heldur gekk bara að hillu og tók hana út. Eintakið er reyndar ekki í fullkomnu ástandi en nógu gott til að lesa það.

Ég fór á nokkra staði í viðbót en lauk ferðinni með því að fara í 2001 til að ná í Lonely Guy og All of Me með Steve Martin sem ég pantaði fyrir nokkru.

Ég á reyndar báðar myndirnar í afskaplega lélegum eintökum. Lonely Guy er hugsanlega verst þýdda mynd sem ég hef séð (semsagt á video), þar er “Musician” staðfastlega þýtt sem “Spilari”. Glæsilegt alveg.

Hvað kostar Bless?

Í dag fór ég í búðir með Hallgrími. Við fórum á vanalega staði, Videosafnarinn lokaður. Keyptum ekkert í Diskabúð Valda, Japis eða Skífunni. Reyndar var áhugavert að ég sá plötu með hljómsveitinni Bless í Diskabúð Valda, nú var Biggi í þessari hljómsveit (einsog svo mörgum öðrum) ásamt Dr. Gunna þannig að ég hefði keypt hana ef hún hefði verið á smápening en svo var ekki. Platan kostaði fimm þúsund kall. Mig grunar að það hjálpi að Björk var með á þessari plötu. Biggi var ekki að trúa þessu, giskaði að hún kostaði 99 krónur, ég held að þetta sé ekki í uppáhaldi hjá honum sjálfum. Reyndar voru Sálarplöturnar með honum ódýrari, ægilega var hann svalur á þeim tíma.

Ég fór síðan í Safnarabúðina og þar fann ég Pílu Pínu og fékk á 200 krónur því hún var rispuð öðru megin. Ég spurði hvað hitt og þetta kostaði, Welcome to the Pleasuredome með Frankie goes to Hollywood kostaði 1500 krónur sem mér finnst of mikið fyrir plötu með hljómsveit sem enginn er hrifinn af lengur (nema ég). Þegar ég ætlaði að fara sá ég síðan A Night at the Opera liggja efst á bunka þarna, greinilegt að einhver hefur verið að fletta þarna og skilið hana eftir efst handa mér. Hún var á þúsund sem mér fannst í lagi, aðallega reyndar vegna þess að hún virðist órispuð og mig langar að heyra þetta einsog þetta var á plötunni upphaflega.

Við fórum líka í 2001, Steve Martin var ekki kominn en ég fann aðra mynd með honum þarna, Dead Men don’t wear Plaid, á hana reyndar á video en það skiptir ekki öllu. Keypti líka Trading Places með Eddie Murphie og Dan Aykroyd. Báðar ódýrar, hann er komið með nokkuð gott úrval af svona ódýrum myndum hann Siggi.

Ég skutlaði Hallgrími að lokum í SPRON og bauð Helgu frænku að koma með Árnýju og Hjörvari í kaffi á morgun.

Svo fór ég heim.