Category Archives: Kaupa, Kaupa! - Page 2

Jakki og nýjir skór

Við fórum í Smáralindina og loksins náði ég að kaupa nýja skó, þeir gömlu voru frekar þreyttir og illa farnir þannig að þetta var mikið gæfuspor, ég held að það séu svona tvö ár síðan ég byrjaði að leita. Til að toppa þetta þá náði ég líka að redda mér jakka, það voru meiraðsegja til tveir góðir jakkar þarna í Hagkaup og ég gat valið á milli þeirra! Sá nýji er með gsm-síma hólf sem er nógu stórt fyrir minn gamla síma. Þetta er notalegt en Eygló þurfti að kommenta á að þegar ég væri kominn í þennan fína jakka og þessa fínu skó þá væru buxurnar ekki nógu fínar. Ég fór semsagt inn druslulegur (jafnvel á minn mælikvarða) og kom út fínn (reyndar aðallega á þessum sama mælikvarða mínum).

Annars veifaði Katrín Jakobs okkur víst í rúllustiganum en ég var svo upptekinn af nýju skónum mínum að ég sá hana ekki. Svona er þetta, loksins er einhver sem maður þekkir eitthvað kominn í áhrifastöðu og maður kemur út einsog maður sé að hunsa hana. Ekki nógu gott ;)

Stórinnkaupaferð

Í kvöld er jólagleði Katalogosar hjá okkur Eygló og í dag fórum við að versla fyrir gleðina. Áfengi var keypt fyrir hellingspening, snakk og ostur fyrir töluvert minni pening. Ég ætti að fá afslátt af félagsgjöldunum fyrir það að drekka ekki. Við keyptum í leiðinni töluvert af jólagjöfum. Bíllinn var alveg stúttfullur og ískápur er það núna.

Enduðum með að fara öll saman á American Style með nýju afsláttarkortin.

Flottir bolir ekki að finnast

Við röltum í Kolaportið áðan og ég reyndi að finna flottan bol en það gekk ekki. Ég fann einn Marilyn Manson bol sem var nokkuð flottur, á honum var mynd af þríeinum Jesú og textinn “see no truth, hear no truth, speak no truth”. Hann var ekki til í minni stærð. Verð að finna flotta boli. Ekkert áhugavert var að finna í Kolaportinu.

Stórkostleg sóun á peningum

Við Eygló fórum í verslunarferð áðan. Þurftum fyrst og fremst að kaupa hillu. Eftir mikla íhugun þá var gefið skít í Billy og IKEA því Rúmfatalagerinn er með ódýrari hillur sem heita Everest. Fjallið kemur með flutningabíl í kvöld og þá verða teknar skipulagsákvarðanir.

Hitt sem átti aðallega að kíkja eftir var sturtuhengi og við ákváðum að skella okkur á eitthvað furðulegt glært dót, ég beitti að vísu neitunarvaldi á blómin svo broskallarnir urðu fyrir valinu.

Í Rúmfatalagernum voru skoðaðar sængur því að mig hefur langað í langa sæng í alveg heilllangan tíma. Þegar maður er 187 á hæð þá er tveggja metra sæng ekki nógu löng (nema kannski ef maður er flatari en ég), tærnar fá ekki skjól og þegar kólnar þá er það ekki gott mál. Nú var loksins til almennileg 220 cm sæng og við stukkum á hana. Í kjölfarið voru keypt sængurver á hana sem voru lukkulega á tilboði, þvílík gleði. Náði meiraðsegja í ver með svona japönskum stöfum einsog mig hefur lengi langað í (spyr kannski Miki hans Sigga hvað þeir þýða, þeir gætu reyndar alveg eins verið kínverskir eða bara bull).

Síðan skruppum við yfir í Hagkaup þar sem ég keypti mér húfu svo ég gæti hætt að nota eldfornu Adidashúfuna hennar Eyglóar.