Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 2. nóvember 2008 klukkan 19:07

Ef þú manst að þú getur flogið

Eftir nokkra þurrð náði ég að skrifa slatta í ritgerðinni minni núna í dag. Ég ákvað að láta orð Neil Gaiman vera mér leiðarljós. Það var eitthvað á þessa leið: Að skrifa er eins og að fljúga í draumum, ef þú manst að þú getur það þá geturðu það.

Föstudagur, 24. október 2008 klukkan 9:31

Henti Facebook vini

Ég á voðalega bágt með mig á Facebook. Ég á erfitt með að hafna þeim sem vilja vera vinir mínir þó ég þekki þá ekkert. Mér finnst erfitt að útiloka fólk. Áðan henti ég þó “vini” sem var sífellt að senda mér heimskuleg boð. Ég man ekki eftir að hafa hitt þennan “vin” í raunveruleikanum og engin samskipti við hann haft. Ég samþykkti hann einungis vegna þess að við áttum töluvert af sameiginlegum vinum. En ég fékk nóg. Kannski að ég grisji meir í vinahópnum í framtíðinni.

En ef þið viljið heyra um netsamfélög þar sem raunveruleg vinátta þrífst þá er fyrirlesturinn minn Dauðinn og sýndarveruleikinn í stofu 101 í Odda á eftir. Þetta byrjar klukkan 11 og ég byrja líklega um 11:15-20 (best að mæta bara 11).

Sunnudagur, 7. september 2008 klukkan 15:28

Takandi til

Ég tók dálítið til áðan. Færði dót úr stofunni í herbergi til að minnka þrengsli hérna. Ég íhugaði að taka inn gasgrillið og setja niður í geymslu en hætti við vegna þess hve blautt það er. Ég er síðan aðeins búinn að finna mér eitthvað til að laga til í tölvunni. Skrifa diska með dóti sem þarf að geyma. Semsagt flest annað en að skrifa ritgerðina sem er verkefnið sem ég að vera að vinna í. Reyndar lagaði ég til tilvísanir í kafla sem ég er að fara að senda Terry en það var bara “hreingerning” en ekki skrif. Sjáum hvort að ég komist af stað núna.

Föstudagur, 6. júní 2008 klukkan 20:45

Yfirferð greinar

Ég er að endurskoða greinina mína eftir að hafa fengið athugasemdir frá Írunum. Það er mjög spes hvað þeir eru oft að benda mér á að breyta orðalagi sem kemur beint frá Terry. Svona er enskutilfinning Englendinga og Íra ólík.

Laugardagur, 31. maí 2008 klukkan 13:12

Ferðaplönum loks lokið

Á fimmtudaginn hitti ég loks Júlíönu og fór með henni að ganga frá hennar bókunum fyrir Derry ferðina. Það var samt vesen með hótelbókun fyrir nóttina í London. Ég hafði pantað áður á hóteli en ekkert var laust. Við tókum því og leituðum uppi hótel á svipuðum slóðum fyrir hana og það fannst. En við hefðum væntanlega getað sleppt því að velja eftir staðsetningu því í morgun bókaði ég á sama hóteli og Júlíana þannig að við erum komin með allt á hreint með ferðaplönin. Ég þarf síðan að dunda mér að skoða hvernig greinin getur virkað betur sem fyrirlestur o

Sunnudagur, 4. maí 2008 klukkan 20:38

Skrýtið

Það er skrýtið að sjá nafn á þessum náunga sem ætlar að tala á ráðstefnu án þess að vita nokkuð.

Sunnudagur, 20. apríl 2008 klukkan 13:10

Magni í Ask

Vissuð þið að Magni í Á móti sól var prufuspilari þegar verið að var að búa til Ask Yggdrasills?

Sunnudagur, 13. apríl 2008 klukkan 18:59

Góð tilfinning

Það var gefandi að setja alla bútana af ritgerðinni minni saman í eitt skjal og sjá að þetta var aðeins lengra en ég hélt. Það er allavega ekki hætta á að ég lendi í því að borga skólagjöld og október lítur ákaflega vel út eins og er.

Ég veit annars ekki til þess að kratarnir hafi mikið verið að ræða skólagjöld fyrir kosningar. En þeir hafa reyndar fallið ljúflega að fótum Sjálfsstæðisflokknum í flestu þannig að þetta kæmi ekki á óvart.

Fimmtudagur, 20. mars 2008 klukkan 11:40

Higinbotham

Ein athugasemd sem ég fékk frá Terry varðandi síðasta kaflann sem ég skilaði honum snerist um efasemdir hans um að nafnið Willy Higinbotham væri stafað svona.

Sunnudagur, 16. mars 2008 klukkan 15:50

Kátur dagur

Skemmtilegustu dagar vikunnar eru þeir sem ég fæ að vinna í ritgerðinni. Hvernig gæti maður verið annað en kátur þegar maður er að vitna í Vampire: The Maquerade?

Aftur að skrifa.

Eldri færslur »