Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Laugardagur, 14. október 2006 klukkan 15:26

Ráðstefnu DVD

Ég fékk voða góða sendingu rétt í þessu.  DVD með fyrirlestrum ráðstefnu sumarsins, Jákvæðar raddir trúleysis á Íslandi. Fjórir diskar með næstum öllu efninu.  Vantar reyndar Juliu Sweeney enda mun hún væntanlega gefa út mynd í fullri lengd með þessum einleik.  Mér var strax bent á þau atriði þar sem ég kem sjálfur fyrir og ég kíkti reyndar á þau núna.  Bara aðeins. Reyndar er hræðilegt að sjá sjálfan sig upptekinn en ég kem svosem ekkert of illa fyrir.

Sunnudagur, 30. júlí 2006 klukkan 1:20

Mynd af skipulagsnefndinni

raddir.jpgRakst á þessa mynd hjá Svan.  Ég virðist vera risastór þarna en það væri nú töluvert öðruvísi ef Svanur og Siggi væru við hliðina á mér en ekki á hinum endanum.

Miðvikudagur, 26. júlí 2006 klukkan 19:35

Ráðstefnufundur

Ég er að fara á ráðstefnufund í Mossfellsbæ.  Nú spyrja lesendur sig: “Er þetta sama ráðstefna og kláraðist fyrir mánuði síðan?  Er það ekki allt búið?”  Einmitt sama ráðstefna og það er ekki allt búið.

Miðvikudagur, 5. júlí 2006 klukkan 0:48

Julia Sweeney

Julia Sweeney var í Víðsjá í dag að tala um kvikmyndaáhuga sinn.  Mér skilst að það verði framhaldsviðtal í næstu viku.  Ég er mikið að spá í að kaupa einleik hennar “God said, Ha!“.  En sá sú trúleysi hennar verður væntanlega kvikmyndaður í vetur.  Brannon Braga hefur skrifað handrit með henni sem verður kannski notað en það fer eftir því hvaða leið verður notuð.

En sama hvaða leið verður farin þá get ég alltaf komist í upptökuna frá ráðstefnunni og horft á aftur.

Þriðjudagur, 4. júlí 2006 klukkan 16:03

Farin

Kalli og Matti komu Dan, Annie, Sabrinu, August og Rachel á flugvöllinn.  Þar með eru allir fyrirlesararnir horfnir á braut.  Nú á bara eftir að setja upp smá síðu með myndum og sögum.  Og að bjóða bolinn upp á eBay.

Þriðjudagur, 4. júlí 2006 klukkan 12:37

Sænsk ráðstefnusaga…

Sænska stelpa hún Felicia skrifar um ráðstefnuna (á ensku þó).  Ég er tvisvar nefndur þarna en í hvorugt skiptið með nafni enda enginn á Brights Forum sem myndi þekkja mig.  Ég er semsagt sá sem bauðst til þess að hjálpa henni að brjóta ísinn við Dawkins og sá sem talaði gegn því að “boða” börnum trúleysi.

Sunnudagur, 2. júlí 2006 klukkan 20:13

Trúleysingjagrillmyndir

Matti er með nokkrar myndir frá því í gær.

Laugardagur, 1. júlí 2006 klukkan 16:47

Trúleysingjagrill

Fór áðan í trúleysingjapikknikk.  Það var mjög gaman.  Dan og Annie Laurie voru þarna ásamt Josh og fleiri eftirlegukindum síðustu helgar.  Fjölmargir Íslendingar líka.  Það var grillað og spjallað.  Veðrið var ekki alveg upp á sitt besta en það var mjög gaman.

Föstudagur, 30. júní 2006 klukkan 9:23

Að lokinni ráðstefnu

Fólk gæti haldið að öllu ráðstefnuveseni væri lokið hjá nefndinni en það er ekki alveg rétt.  Ég er ennþá að fá tugi tölvupósta um þetta og þar að auki eru ráðstefnugestir að biðja mig um myndir.  Það er í vinnslu.  Dan, Annie og Julia koma aftur í borgina í dag eftir að hafa tekið túr um landið, Julia fer á morgun en hjónin á þriðjudaginn ef ég man rétt.

Ég er samt að ná að stroka út atriði af to-do listanum mínum sem ég hafði hunsað í lengri tíma, er til dæmis búinn að borga Gotlandsflugið.

Föstudagur, 30. júní 2006 klukkan 0:11

Dan Barker á dvd…

Í dag fékk ég afhentan dvd disk með fyrirlestrinum hans Dan Barker frá því á laugardaginn.  Merkilegt hvað myndatökumaðurinn okkar er snjall.  Hann var ekki með neinar ofurgræjur þarna en náði alveg frábærum myndum.  Hljóðið virkar líka mjög vel sem er nú aðalmálið.  Ef allt gengur eftir, sem er þó ekki víst þar sem við höfum ekki fengið leyfi frá öllum, þá verður hægt að gefa út ráðstefnuna á dvd eins og hefur verið gert með The Amazing Meeting.  Brilljant alveg.

Eldri færslur »