Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 3. nóvember 2005 klukkan 19:25

Gettu Betur….

Það lítur nú ekkert sérstaklega vel út með Gettu Betur á næsta ári….

Miðvikudagur, 16. mars 2005 klukkan 23:09

Fyrirsjáanleg úrslit

Þessi úrslit komu ekki á óvart, ég benti á það að Versló var einkar ósannfærandi síðast. MA stóð sig ágætlega en ég held að Borgó taki þetta. En allt getur gerst.

Miðvikudagur, 16. febrúar 2005 klukkan 23:29

Ósannfærandi Versló

Það verður ekki annað sagt en að Versló hafi verið einstaklega ósannfærandi í þetta sinn, þeir vinna ekki en einsog spakur maður benti á þá er það voða hollt að tapa.

Fimmtudagur, 25. mars 2004 klukkan 21:07

Verslingar munu tapa

Verslingar voru ekki að dansa í kvöld, það er ekki séns að þeir hefðu MR í því stuði sem þeir voru í kvöld. Eftir viku vinnur Borgó keppnina.

Ég var samt ánægður að allir Verslingarnir sögðu Freddie Mercury um leið þegar spurningin um hann kom, reyndar var Hraðbraut ekki í vanda með þá spurningu heldur.

Kannski er rétt að rifja núna upp orð mín frá því við upphaf keppninar þegar ég sagði Snabba að það eina sem ég vissi væri að nauðsynlegt væri að hafa allt um Tesla á hreinu þegar Stefán er annars vegar.

Fimmtudagur, 18. mars 2004 klukkan 14:01

Gettu Betur í kvöld

Það er Gettu Betur í kvöld, ég er sami svikarinn og áður þannig að ég styð MR. Ég held að strákarnir hafi ekki sýnt hvað í þeim býr síðast þannig að þeir ættu að vinna Borgó. Verst að Verzló á eftir að svífa í gegn, ægilega heppnir með andstæðinga, Hraðferð hefur ekkert að gera í undanúrslit.

Sunnudagur, 14. mars 2004 klukkan 1:09

Árás skjalanna

Dagurinn í dag. Við Eygló byrjuðum á því að fara niður í bæ (reyndar fórum við fyrst á fætur og borðuðum en það er jafn óáhugaverðara en sagan sem fylgir þannig að ég hefði átt að sleppa þessu kommenti) á fyrirlestur í tilefni 50 ára afmælis Borgarskjalasafns. Þessi fyrirlestur hét “Skjölin lifna við” sem mér finnst reyndar efnilegur titill á hryllingsmynd.

Við lentum í veseni þar sem við vissum ekki hvar fundarstaðurinn var, við vorum hins vegar svo heppin að borgarstjóri gekk framhjá. Við ályktuðum að hann væri að fara í sama partí og við þannig að við eltum hann, þetta plan virtist hafa misheppnast þegar við sáum kallinn horfa vandræðalega í allar áttir. Á meðan Þórólfur var að skoða umhverfið heilsaði Sigrún vinkona Hafdísar okkur, hún stóð einmitt beint fyrir framan mig. Þórólfur fann loksins rétta leið þannig að við kvöddum og eltum hann.

Þegar við komum þarna hittum við Stefán Pálsson. Ég skammaði hann fyrir tvennt, í fyrsta lagi fyrir það að stunda skemmdarverkastarfsemi á “léttu og skemmtilegu” föstudagskastljósi með því að tala um raunveruleikann og síðan benti ég honum á að þriggjamyndaspurningin hefði verið of létt í síðasta Gettu Betur. Við sættumst reyndar á að það hefði verið hægt að redda þessari spurningu með betri uppröðun á myndunum (brjóstsykurinn fyrst).

Gettu Betur dómarar voru reyndar þarna í hópum og ég náði mynd af, reyndar hef ég ekki skoðað hve góð þessi mynd er. Ég hleraði þarna mjög áhugaverðar reynslusögur um erfiða yfirmenn sem dómararnir hafa þurft að þola.

Eftir að ég var sestur þá benti Eygló mér á að við þekktum fundarstjórann vegna heimsókna hennar á dagbækur okkar. Hæ Jóhanna. Jóhanna fékk að vinna fyrir fundarstjóratitlinum þegar á leið.

Fyrirlestararnir voru yfirleitt skemmtilegir, meðal annars komust við að því að maður þarf að vera ákveðinn Indiana Jones týpa til að vinna á Borgarskjalasafninu.

Stebbi flutti skemmtilegasta fyrirlesturinn um Gasstöðina sem þróaðist síðan í sögur af svallveislu sem ég hafði ekki heyrt áður, mjög fræðandi.

Fyrirspurnirnar voru skrautlegar, fyrstur til að koma með undarlega fyrirspurn var ákveðinn ættfræðingur sem fékk ávallt eftirnafnið “heimski” þegar annar ættfræðingur sem ég þekki talaði um hann. Fyrirspurn hans var í fyrsta lagi athugasemd um annan fyrirlestur og í öðru lagi var fyrirspurn um álit Þórs Whitehead á ættfræði. Hvernig maðurinn tengdi Þór við ættfræði veit ég ekki. Pétur Pétursson þulur var alveg frábær í sínum “fyrirspurnum” þar sem hann þuldi upp sögur af fólki sem á einhver fjarlægan hátt tengdust efni fyrirlestranna. Margar áhugaverðar sögur en fundarstjórinn þurfti að stoppa kallinn svo fundurinn yrði ekki heillangur.

Á leiðinni heim hitti ég fyrrverandi vinnufélaga, ég var reyndar smástund að rifja upp nafn hans en ég man vel eftir honum af því hann var ægilega skemmtilegur, einn af þeim (okkur) sem var með mestu hommalætin þarna ;)

Fimmtudagur, 26. febrúar 2004 klukkan 21:10

Stress yfir Gettu Betur

Það er hræðileg örlög að vera að drepast úr stressi yfir Gettu betur, hvað þá að þegar maður er allt í einu farinn að halda með MR! Ég er miður mín. Áður fyrr var það hefð að halda með öllum gegn MR (nema náttúrulega Versló). Ef MR fór úrslit með Versló þá fór ég í fýlu.

Og þeir höfðu þetta, fróðleikspunktar mínir um bókasafnsfræði komu greinilega ekki að neinu gagni enda er líklegt að Stefán þori ekki inn á þá braut eftir ISBN klúðrið. Ég var afskaplega feginn þegar MH sagði að Russel Crowe væri frá Ástralíu, hjúkkettíhjúkk.

PS ef MR-ingar vilja fá punkta hjá Stefáni þá ættu þeir að sleppa Gaudeamus.

Föstudagur, 20. febrúar 2004 klukkan 17:36

Ferskt loft fyrir Hraðbrautarnemendur

Gettu Betur í gær var áhugaverð.

Í fyrsta lagi voru bæði liðin skítléleg, það er bara staðreynd. Spurningarnar hans Stefáns voru ekkert of þungar og umræður um slíkt eru bara út í hött.

Í öðru lagi þá held ég að það væri gott ef Hraðbrautarnemendum væri hleypt oftar út úr húsi svo þeir fríki ekki svona svakalega út í næstu keppni, förðunardömur RÚV náðu sem betur fer að koma lit í kinnarnar á þeim en þegar ég sá auglýsinguna fyrir keppnina þá sýndist mér þeir vera full vampírulegir (ferskt loft gerir gott). Ásgeir sagði alveg satt að miðkeppandinn hafi minnt á gamla vin okkar Þórð á sýru (ekki það að ég hafi nokkurn tíman séð Þórð á sýru).

Í þriðja lagi var sviðsmyndin nýja alveg glötuð og þessi nýja útgáfa af laginu er leiðinleg (var hún komin í fyrra?).

Þriðjudagur, 20. janúar 2004 klukkan 21:47

Um ISBN númer, Gettu Betur og íþróttafélög á Vopnafirði

Ég var að hlusta á Gettu Betur áðan og heyrði Stefán Pálsson halda því fram að ISBN væri flokkunarkerfi fyrir bækur, þvílík fjarstæða. Dewey er flokkunarkerfi, Colon er flokkunarkerfi en ISBN er alþjóðlegt bóknúmerakerfi. ISBN númer eru semsagt einstök fyrir hverja bók, þau eru ekki notuð við flokkun.

Síðan er nauðsynlegt að benda á það að eru hugsanlega til tvö íþróttafélög á Vopnafirði. Einherji er nafn sem allir kannast við og er félagið sem er í þorpinu en það sem færri vita er að félagið Einherjar hefur lengi verið starfandi í sveitinni. Nú er erfitt að segja hvort félagið sé starfandi beinlínis, það hefur lengi vel ekki gert neitt annað en að halda Hofsball árlega og það hefur reyndar ekki verið gert undanfarið. Það mætti segja að ég sé hálfgerður meðlimur í Einherjum þar sem ég hélt eitt Hofsball.

Annars datt liðið hans Ásgeirs út núna, byrjuðu vel en klúðruðu því síðan.

« Nýrri færslur