Category Archives: Skóli - Page 2

Oddi í tíma, mat og hljóði

Sit í Odda. Get skellt tónlist á því ég þarf ekki að hlusta á viðmælendur mína tala á 42% af upprunalegum hraða. Allt slíkt er búið í bili.

Það er undarlegur hljómburður í þessu húsi. Ég var hérna inn á mínu rými og mér heyrðist Terry vera að tala hérna rétt fyrir utan á þriðju hæðinni. Ég kíkti út og enginn var þar. Ég fór aftur inn og heyrði aftur í Terry. Ég kíkti út en þar var enginn.

Í þriðja skiptið fór ég og kíkti hvort hann væri hérna inn á ganginum sem leiðir að fundarherberginu en þar var hann ei. Á leiðinni til baka þá kíkti ég niður og sá Terry spjalla við Dáithí á fyrstu hæðinni.

Ég rétt kastaði á hann kveðju enda var ég ekki beint að leita að honum til að spjalla heldur var ég bara að reyna að finna hvaðan röddin kæmi. Ég heyrði nefnilega betur í honum heldur en í fólki sem er að spjalla hérna handan við skilrúmið. Þetta hús er semsagt ekki hannað fyrir fólk sem vill fá að frið til að læra.

Ég skrapp áðan niður og ákvað prufa kjötloku með hakki. Sósan var svo skelfilega vond að ég þurfti að kaupa mér Prins Póló til að drepa bragðið.

Afgreiðslukonan reyndi í þetta skipti ekki að henda eigum mínum. Í síðustu viku hellti hún er flösku af Toppi sem ég var með þarna á meðan ég var að grilla samloku. Í fyrradag þá reyndi hún það aftur en spurði mig reyndar fyrst. Hún var síðan komin dálítið í burtu þegar hún spurði mig “átt þú þetta kannski líka?” og veifaði lokinu af plastdallinum sem ég kom með matinn minn í. Ég fékk lokið aftur.

En írskan er búin, próf eftir tvær vikur og stutt ritgerð aðeins seinna og þá hef ég væntanlega lokið síðasta kúrsinum sem ég mun taka í Háskóla Íslands. Ég er að hefja fimmta árið í HÍ. Það var ekki á upprunalega planinu.

Að velja herbergi

Ég var rétt í þessu að velja mér herbergi í Cork. Í gær fékk ég nefnilega tvo kosti. Það sem ég valdi er lengra frá skólanum (sem gæti reyndar bara verið plús, mér þótti fínt að labba í skólann á hverjum degi í Århus) en hins vegar er það einstaklingsherbergi. Ég held að ég sé of gamall til að fara deila herbergi með bara einhverjum.

Leigan þarna fyrir þrjá mánuði virðist vera örlítið hærri en vinkona mín þarf að borga fyrir hvern mánuð í Berkeley. Ég á semsagt væntanlega ekki eftir að verða stórskuldugur eftir þetta. Það er á næstu dögum sem að allt verður komið á hreint.

Vonandi.

Fimm einingar

Fimm einingar í viðbót í hús. Riddarasögur var samt ekki efnið sem ég var spenntastur fyrir.

Peningar

Ég væri alveg til að fá síðustu einkunn mína í hús. Námslán myndi þá fylgja í kjölfarið. Ég fékk reyndar styrk í dag sem hjálpar. Síðan á ég að fá útborgað fyrsta júlí ef allt gengur eftir. Það er að vissu leyti lokkandi tilhugsun að komast í dagvinnu eftir útskrift og þar með treyst á mánaðarlegar launagreiðslur. En framtíðin er óráðin.

Útskrift

Í dag útskrifast margir sem ég þekki, væntanlega fleiri en ég man eftir. Ég óska þeim því öllum til hamingju án þess að nefna þá. Látið ykkur líða vel.

Háskóli unga fólksins

Háskóli unga fólksins er í gangi. Ég er alveg hlynntur því en núna eru krakkar hérna í kring í eltingarleik eða eitthvað. Ég er að reyna að ákveða hvort að ég eigi að vera týpan sem fer og kvartar.  Rétt í þessu var einhver að biðja krakkana um að hafa lægra en það er ennþá truflun af þeim.

Ég ætti að fjárfesta í betri heyrnartólum sem blokka betur út hávaðann. Það er nauðsynlegt þegar maður er að skrifa upp viðtöl.

Eigindlegar

Það er meiri gleði í dag. Ég fékk 8,5 fyrir Eigindlegar rannsóknaraðferðir.  Reyndar voru fleiri með 9 en það skekkir hins vegar tölfræðina að flestir skráðu sig úr kúrsinum.  Miðað við að ég var lengi að koma mér af stað í kúrsinum (Stúdentaráðskosningar og umsóknarvesen) og skilaði eiginlega öllu nema lokaskýrslunni of seint þá get ég verið ánægður. Þetta lækkaði meðaleinkunn mína örlítið, hún er semsagt rétt rúmlega 8,5 núna. Þessi tala breytist líklega ekki mikið þar sem flestir kúrsarnir sem ég á eftir að taka verða í erlendum skólum og þá skilst mér að ég fái bara “Staðið”.  Þar að auki held ég að skorin ætli að taka líka upp Staðið/Fallið fyrir MA-ritgerðir. Hákarlinn gæti hins vegar breytt þessu eitthvað.

Ágætur í ensku

Jæja, ég er ágætur í ensku. Ég fékk útúr TOEFL prófinu. Ég skora hátt í öllu, annað hvort 29 eða 30 af 30 mögulegum nema í talmálinu þar sem ég fékk bara 26 af 30. Ég bjóst við að það hefði komið verst út enda leið mér frekar kjánalega að tala svona út í loftið í prófinu.

Samt er galli á gjöf Njarðar. Ég hef ekkert gagn að þessu. Cork biður ekki um TOEFL próf. Ég skráði mig í prófið um viku áður en kom í ljós að samningurinn milli Nýfundnalands og H.Í. hefði ekki verið endurnýjaður. Þar fóru um tíu þúsund krónur fyrir lítið. En ég get allavega bloggað um þetta.

Síðasti skóladagurinn

Skólinn búinn, í bili. Fer reyndar líka í sumarskóla. Þetta var ekkert sérstakur kúrs svo sem.  Lítið nýtt sem kom fram.  Nokkrir nemendafyrirlestrar voru hins vegar áhugaverðir, allavega hjá þeim sem þorðu að busla. Þeir fengu víst ekki kort sem á stóð “hér eru hákarlar”.

Þetta var annars líklega næstsíðasti kúrsinn minn í H.Í., ég tek væntanlega örkúrsinn um írsku þjóðfræðina núna næsta haust.

Að synda með hákörlum

Þegar maður er að synda í kringum hákarla þá er best að láta sem minnst fyrir sér fara.  Þeir ráðast nefnilega á þá sem busla hvað mest.