Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 28. september 2008 klukkan 19:28

Love scrotum

Eitt erfiðasta vandamál fólks í nútímanum er víst að starfsfólk í bakaríum talar ekki fullkomna íslensku. Sjálfur kemst ég raunar almennt upp með að nota íslensku og benda. En hvað um það.

Þar sem ég var að slafra í mig súpunni í bakaríinu á föstudaginn kom inn maður. Hann bað afgreiðslustúlkuna, sem var af erlendu bergi brotin, um kleinur. Hún átti ekki í neinu vandamáli með það. Næst kom þó erfiðara mál. Maðurinn spurði hvort til væru ástarpungar. Stúlkan skildi þetta greinilega ekki og sagðist ekki tala góða íslensku. Ég stóðst ekki mátið og sagði við manninn “þýdduþetta bara á ensku”. Hann varð smá vandræðalegur og lét það vera. Mér þótti þetta fyndið.

Laugardagur, 27. september 2008 klukkan 19:35

Því miður

Ef ég heyrði landsliðskonu rétt þá sagði hún að þær væru…

“tilbúnar að deyja fyrir að sigra en því miður tókst það ekki”.

Og mér þótti það skondið.

Þriðjudagur, 23. október 2007 klukkan 13:17

Gervimaður Evrópa

Ég var rétt áðan að fá tölvupóst með tilkynningu frá rektor HÍ. Efni póstsins vakti enga athygli hjá mér heldur það að sendandinn var “Gervimaður Evrópa”. Það þótti mér skondið. Ég hef lengi vitað af tilvist þessara gervimanna þó ég hafi ekki vitað hvaða tilgangi þeir þjónuðu. Nú veit maður allavega að einn þeirra hefur hafið störf á skrifstofu rektors.

Miðvikudagur, 25. júlí 2007 klukkan 23:34

Plokkarinn

“Óli, hefur þú verið að nota plokkarann?” spyr Eygló og bendir á augabrýrnar sínar. Ég hló að spurningunni. Ég er samt ekki jafn einbrýndur og ég get verið.

Laugardagur, 9. júní 2007 klukkan 20:49

Fyndnar bloggfærslur

Stutt færsla Andrésar um Egil Helgason fékk mig til að hlæja.

Mér þótti líka færsla Önnu Kristjánsdóttur um Egil fyndin.  Reyndar fannst mér eitt kommentið þar eiginlega fyndnast:

Mikið er ég þér sammála núna. Egill vill vera í aðallhlutverkinu og talar og talar og talar. Ef einhverjum “viðmælanda” tekst að stela orðinu eitt augnablik þá baðar hann og veifar höndum eins og drukknandi barn.

Sunnudagur, 29. apríl 2007 klukkan 17:04

Orð sem skipta öllu

101gamla.jpg Þessi fyrirsögn á Vísi nær að gera frekar ömurlegan glæpamann mörgum sinnum verri en hann í raun er, svona 101 sinnum verri.  Hann réðst á hundrað og eins árs gamla konu en þarna ásakaður um að hafa ráðist á hundrað og eina gamla konu. Þetta er svoltið eins og hundrað og einn dalmatíuhundur.

Miðvikudagur, 20. desember 2006 klukkan 2:22

Fimmta prófið

Á morgun er síðasta prófið. Ég er búinn að lesa. Ég er vel steiktur. Fimm próf eru óhóf. Mér finnst að allir ættu að vorkenna mér.

Ég veit ekkert hvernig mér gengur í síðasta prófinu og á þessum tímapunkti er mér að verða alveg sama. Samkvæmt Hjalta þá geta spurningarnar verið mjög sýrðar og alveg lausar við það að tengjast áherslum í kennslu. Þetta kemur í ljós.

Hlakka til að hitta þjóðfræðifólk annað kvöld. Indælt fólk nefnilega, upp til hópa og í einu lagi.

Ég er búinn að hleypa nokkrum inn í myndaalbúmið mitt, nú síðast Jóhönnu og Bryndísi. Þið sem viljið líka vera með skráið ykkur á síðunni. Feimni er óþörf.

Föstudagur, 1. desember 2006 klukkan 18:09

Myrra sko

Mér þykir myrru auglýsing Eymundsson alveg brjálæðislega fyndin.  Ég gat ekki hætt að hlæja fyrst þegar ég sá hana.

Fyrir ykkur sem hafið ekki spáð óhóflega í Nýja testamentinu þá er til skýringar að myrra er “þykk, gul viðarkvoða úr hitabeltistrjám, notuð sem ilmefni”.  Ákaflega fyndin gjöf semsagt.  Eða einsog mamma Brian sagði:

And thanks a lot for the gold and frankincense, er, but don’t worry too much about the myrrh next time. All right? Heh. Thank you. Good-bye. …

Miðvikudagur, 29. nóvember 2006 klukkan 2:57

SUF fílar…

Eggert

Hann Eggert er í voðalega vafasömum félagsskap. Samband Ungra Framsóknarmanna fílar hann. Hver ætlar að bjarga honum?

Mánudagur, 27. nóvember 2006 klukkan 22:33

Gneistinn sko…

Mér þykir alltaf svoltið fyndið þegar fólk kallar mig Gneistann upphátt.  Ég er hins vegar vanur því þegar ég sé það á víðlendum alnetsins.

Eldri færslur »