Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 12. ágúst 2008 klukkan 8:44

Verjumst stríði, vopnumst

Það er sorglegt að fylgjast með kjánum sem halda að stríðið í Suður-Ossetíu og Georgíu sýni fram á það að við þurfum að fara að byggja upp her. Hið augljósa er að þó fæstir kannist við það þá hefur þetta svæði verið eldfimt lengi. Við bara einfaldlega búum ekki við svoleiðis aðstæður. Við höfum ekki nágranna sem hafa áhuga á að skipta sér að okkur með vopnavaldi. Mér sýnist líka á þessu svæði að það séu bara Rússar sem séu að græða eitthvað á því að hafa her. Suður-Ossetar hafa her en hann er svo mikið minni en her Georgíu og um leið er her Georgíu mikið minni en her Rússa.

Í stuttu máli þá er þetta ekki aðstæður sem við getum samsamað okkur við á nokkurn hátt.

Fimmtudagur, 24. júlí 2008 klukkan 10:31

Skottulæknirinn Karadžić

Það er merkilegt hvað allar nýaldarskottulækningasíður eru líkar. Því miður hefur síðan Psy Help Energy ekki verið þýdd á ensku en mér sýnist þetta allt vera mjög standard. Undirtitillinn Human Quantum Energy er líka mjög týpískur af því að þar er herjað á þekkingarleysi fólks á skammtafræði eins og nýaldarkuklarar gera gjarnan. Þarna er boðið upp á smáskammtalækningar og ýmsar aðrar hefðbundnar skottulækningar.

Varningurinn sem er boðinn þarna til sölu eru líka áhugaverður. Þarna eru prjónar sem eru líklega svipaðir þeim sem kuklarar nota til að “finna” rafmagnsmengun, vatn og hvaðeina sem þeim dettur í hug. Síðan eru eitthvað undarlegt apparat sem minnir á kynlífshjálpartæki en er væntanlega eitthvað sem tengist byssukúlum eins og hálsfestin efast á síðunni. Það má síðan ekki gleyma krossunum sem eru nauðsynlegir öllu kristilegum kuklurum.

Þetta er væntanlega með því undarlegra sem stríðsglæpamaður á flótta hefur tekið sér fyrir hendur.

Þriðjudagur, 29. apríl 2008 klukkan 15:58

Nató vill mig

Do you study Political Science, International Relations or Security Studies?

Are you an interdisciplinary candidate with qualifications in Economics, Engineering, or Human Resources?

Have you studied Information Technology and Library Sciences? Do you study Aeronautics or Engineering?

Your background is Media, or Journalism?
You speak Russian or Arabic?

Are you able to conduct independent research and analysis?

NATO needs your skills !

Verst fyrir Nató að ég vil ekkert með þá hafa.

Föstudagur, 28. mars 2008 klukkan 19:26

Olíuverð

Ætli fleiri hefðu nennt að mótmæla Íraksstríðinu ef þeir hefðu áttað sig á að það myndi hækka olíuverð?

Fimmtudagur, 20. mars 2008 klukkan 0:50

Gott að eiga vonda að

Mikið eru Bush og bin Laden heppnir að eiga hvorn annan að.

Mánudagur, 17. mars 2008 klukkan 12:33

Ekki sniðganga Ólympíuleikana

Árið 1980 og 1984 sniðgengu Kaldastríðsöflin Ólympíuleikana. Það gerði frekar lítið gagn. Árið 1968 héldu tveir svartir íþróttamenn uppi hnefa í svörtum leðurhanska. Það var tekið eftir því.

Það ætti ekki að sniðganga Ólympúleikana. Það ætti þvert á móti að nota þá til að koma með ýmis táknræn mótmæli sem tekið er eftir.

Fimmtudagur, 14. febrúar 2008 klukkan 8:42

11. september

Persónulega tel ég að þeir sem eru að eltast við samsæriskenningar um 11. september séu að gera Bush greiða. Þó þetta væri satt þá skipti það í raun engu máli. Fáir verða nokkurn tímann sannfærðir um þetta og þetta dregur í raun athyglina frá því sem fylgdi í kjölfarið. Það sem skiptir raunverulega máli er hvernig Bush notaði eða öllu heldur misnotaði 11. september.

Laugardagur, 2. febrúar 2008 klukkan 20:05

Siðleysi speglast

Það er áhugavert að sjá speglun í siðleysi. Hryðjuverkamenn í Írak senda fólk sem ekki hefur burði til að skilja glæp sinn til að myrða fólk en í Texas tók Bush fólk af lífi sem ekki hafði burði til að skilja glæp sinn.

Þriðjudagur, 25. september 2007 klukkan 10:19

Sri Chinmoy

Er það satt að fullt af alþingismönnum hafi í alvörunni verið að mæla með að Sri Chinmoy fengi friðarverðlaun Nóbels? Hvað er að? Maðurinn sem lyftir stöffi með vogarafli. Vá. Þvílíkt framlag til friðar.

Fimmtudagur, 13. september 2007 klukkan 16:13

Engin samúð

Ég hef enga samúð með vinstrimönnum sem líta á jákvæðum augum á pólitískt Íslam. Þetta eru ekki vænlegir bandamenn gegn einum eða neinum. Spyrjið bara Bandaríkjamenn sem fóstruðu þessa hreyfingu. Það kom í bakið á þeim og það mun koma í bakið á þeim villuráfandi vinstrimönnum sem ekki sjá hve hryllileg þessi hreyfing er.

Eldri færslur »