Category Archives: Stríð og Friður - Page 2

Nató vill mig

Do you study Political Science, International Relations or Security Studies?

Are you an interdisciplinary candidate with qualifications in Economics, Engineering, or Human Resources?

Have you studied Information Technology and Library Sciences? Do you study Aeronautics or Engineering?

Your background is Media, or Journalism?
You speak Russian or Arabic?

Are you able to conduct independent research and analysis?

NATO needs your skills !

Verst fyrir Nató að ég vil ekkert með þá hafa.

Olíuverð

Ætli fleiri hefðu nennt að mótmæla Íraksstríðinu ef þeir hefðu áttað sig á að það myndi hækka olíuverð?

Gott að eiga vonda að

Mikið eru Bush og bin Laden heppnir að eiga hvorn annan að.

Ekki sniðganga Ólympíuleikana

Árið 1980 og 1984 sniðgengu Kaldastríðsöflin Ólympíuleikana. Það gerði frekar lítið gagn. Árið 1968 héldu tveir svartir íþróttamenn uppi hnefa í svörtum leðurhanska. Það var tekið eftir því.

Það ætti ekki að sniðganga Ólympúleikana. Það ætti þvert á móti að nota þá til að koma með ýmis táknræn mótmæli sem tekið er eftir.

11. september

Persónulega tel ég að þeir sem eru að eltast við samsæriskenningar um 11. september séu að gera Bush greiða. Þó þetta væri satt þá skipti það í raun engu máli. Fáir verða nokkurn tímann sannfærðir um þetta og þetta dregur í raun athyglina frá því sem fylgdi í kjölfarið. Það sem skiptir raunverulega máli er hvernig Bush notaði eða öllu heldur misnotaði 11. september.

Siðleysi speglast

Það er áhugavert að sjá speglun í siðleysi. Hryðjuverkamenn í Írak senda fólk sem ekki hefur burði til að skilja glæp sinn til að myrða fólk en í Texas tók Bush fólk af lífi sem ekki hafði burði til að skilja glæp sinn.

Sri Chinmoy

Er það satt að fullt af alþingismönnum hafi í alvörunni verið að mæla með að Sri Chinmoy fengi friðarverðlaun Nóbels? Hvað er að? Maðurinn sem lyftir stöffi með vogarafli. Vá. Þvílíkt framlag til friðar.

Engin samúð

Ég hef enga samúð með vinstrimönnum sem líta á jákvæðum augum á pólitískt Íslam. Þetta eru ekki vænlegir bandamenn gegn einum eða neinum. Spyrjið bara Bandaríkjamenn sem fóstruðu þessa hreyfingu. Það kom í bakið á þeim og það mun koma í bakið á þeim villuráfandi vinstrimönnum sem ekki sjá hve hryllileg þessi hreyfing er.

Er Egill Helgason bilaður?

Vinur minn spurði mig að þessari spurningu í vikunni. Færsla hans þar sem hann kvartar yfir því að SHA hafi ekki ályktað gegn rússnesku flugvélunum gefur ákveðna vísbendingu um hvert svarið sé. Í gær ályktuðu Hernaðarandstæðingar nefnilega um málið, í morgun var frétt um málið á Vísi og MBL. Það er náttúrulega sérlega auðmýkjandi fyrir Egil að hann vísar á heimasíðu SHA þar sem að ályktunina er að finna. Því miður sést ekki klukkan hvað Egill bloggaði um þetta en allavega var það í dag.

Er ekki komið að því að Egill Helgason fái að leggja sig í nokkur ár? Hann hefði gott af því. Ísland hefði gott af því.

p.s. færsla hans um Menningarnótt er álíka gáfuleg. Inntakið er að hann hafi reyndar aldrei mætt á hana en samt sé hún ömurleg.

Hommar, glæpagengi og stríð

Í gær sá ég frétt um að bandaríski herinn reynir ekki að hindra meðlimi glæpagengja að skrá sig. Hins vegar eru yfirlýstir hommar greinilega vanhæfir að mati þessa fólks.

Annars þá segir umfjöllunarefni þessarar fréttar margt af því sem ég vildi segja um stríð.