Category Archives: Stúdentaráð

Kjósið snemma og kjósið oft

Í dag er seinni dagur Stúdentaráðskosninga. Ég kaus Skrökvu í gær og hvet aðra til að gera hið sama.

Í vikunni var ég á ferðinni um Háskólann og sá einhvern náunga með Vökumerki vera að þvaðra um Skrökvu. Þetta var eiginlega orðrétt það sama og var alltaf sagt um Háskólalistann. Bara eitt málefni og svo framvegis. Það sem Stúdentaráð þarf á að halda meira en nokkuð annað er að það lyfti sér upp úr þessum leiðinda sandkassaslag sem hefur verið í gangi frá því löngu áður en ég kom í Háskólann. Það verður ekki gert án þess að sprengja núverandi kerfi í loft upp. Það verður ekki gert með því að kjósa Röskvu eða Vöku.

Stúdentaráð á að vera þrýstiafl í þjóðfélaginu. Það á að geta ýtt á Alþingi, Menntamálaráðuneytið og reyndar líka Háskólann sjálfan til að gera skólann betri. Það er ekki að gerast með núverandi kerfi.

Oft á tíðum dansaði Háskólalistinn á línunni með að slá öllu upp í grín en við völdum að fara ekki alla leið með það. Ég tel það hins vegar engan galla á Skrökvu að þau geri það. Það getur verið voðalega leiðinlegt að vera fastur á milli Röskvu og Vöku (hvernig er línan í laginu góða?) og því get ég ímyndað mér að hláturinn hjálpi mikið.

Grín eða ekki grín? Skrökva fékk tækifæri til að sýna sína liti á fyrsta ári sem var gert með því að mynda “þjóðstjórn” í Stúdentaráði. Ekkert minni- og meirihlutakjaftæði.

Farið (í Ugluna) og kjósið. Ef þið viljið öðruvísi stúdentapólitík er Skrökva eina valið.

Skrökva – 4-4-1 – Nostalgía

Fjölnir og Arndís fengu þá dásamlegu hugmynd að hafa Háskólalistahitting á kosningavöku Skrökvu. Það var nokkuð vel heppnað og dáltið af kjarnafólki mætti þá það hafi tilfinnanlega vantað fólk eins Frey og Ella. Ég tók með gömul Háskólalistamerki sem höfðu verið á og í skrifborðinu mínu síðan við duttum út á sínum tíma. Við fengum bandið til að taka lagið Stuck in the Middle og komumst í mikið stuð. Síðan heilsaði ég snöggt upp á annan mann á lista Skrökvu sem heitir Viktor Orri. Ég kynnti okkur fyrir honum, bar honum kveðju okkar og gaf honum merki. Það sem gerðist næst kom mér á óvart. Það hópuðust til okkar Skrökvuliðar og meðal annars einn nemandi minn frá því í fyrra. Þau voru glöð að fá gömul Háskólalistamerki og virtust þekkja sögu okkar ágætlega. Þetta var eins og maður væri gömul stríðshetja.

Kosningarnar voru með öðru sniði en áður og var kosið rafrænt. Það var hins vegar ákveðið að gera úrslit kunngjörð klukkan ellefu. Þegar á leið fann ég fyrir gömul taugaóróleika sem fylgdi þessu hér áður fyrr. Rétt eftir ellefu sá maður að aðalfólkið í Skrökvu var að koma upp að sviðinu. Ég hlustaði á tölurnar og reyndi að reikna út. Vaka með um 2500, Röskva með ríflega 2200 og Skrökva með um 700. Ég var eiginlega búinn að sjá þetta út en síðan var sagt að þetta hefði farið 4-4-1. Skrökva er með oddamann alveg eins og fór í mínum fyrstu kosningum 2005. Þetta þýðir í raun að Skrökva er með 2 menn, Vaka 9 og Röskva 9 (af því að þetta er heimskulegasta kosningakerfi í heimi).

Háskólalistaborðið gladdist ógurlega vitandi að það þyrfti ekki að standa í þeirri vinnu sem bíður Skrökvuliða. Fyrir þremur árum dó Háskólalistinn á planinu við gamla Stúdentakjallarann sem síðan dó líka. Við gerðum hann aldrei upp. Ég veit ekki hvað olli. Líklega vorum við bara orðin svona þreytt á þessu öllu. Mér líður smá eins og uppgjörið hafi orðið í kvöld. Nýtt fólk hefur tekið við kyndlinum. Það mun vonandi taka eftir því sem við gerðum vel og einnig því sem misfórst hjá okkur. En þetta er góð tilfinning. Þetta var mjög fín afmælisgjöf.

Réttari tölur:

Úrslit kosninga til Stúdentaráðs liggja fyrir og ljóst er að meirihlutinn féll. Röskva fékk 2263 atkvæði og fjóra menn kjörna. Vaka fékk 2424 atkvæði og fjóra menn kjörna. Skrökva fékk 745 atkvæði og 1 mann kjörinn.

Í kosningu til Háskólaráðs fékk Röskva 2272 atkvæði, eða 50,04% en Vaka fékk 2268 atkvæði eða 49,96%. Á úrslitunum sést að stærri fylkingarnar tvær voru mjög jafnar.

Kosningaþátttakan var 39,5% eða 5% meiri en í fyrra. Kosningarnar í ár voru rafrænar.

Val stúdenta

Ég hef fylgst með stúdentapólitík í Háskóla Íslans síðan árið 2003 og var virkur í henni sem meðlimir Háskólalistans frá 2005-2007.

Vaka er samansafn af óháðum stúdentum sem munu flestir, um leið og ferli þeirra í stúdentapólitík lýkur, átta sig á því að þeir eiga samleið með Sjálfstæðisflokknum og verður frami þeirra svo snöggur innan flokksins að manni gæti dottið í hug að þar sé litið á vinnu innan Vöku sem starf fyrir flokkinn.

Röskva fer hins vegar ekki í felur með tengsl sín við stjórnmálastefnur.

Skrökva hæðist að öllu kerfinu sem sýnir að þeir skilja það betur en gömlu hreyfingarnar.

Ég hef, í fyrsta sinn frá 2004, ekki kosningarétt, en ég myndi kjósa Skrökvu og vona að sem flestir geri það.

Stúdentaráð auglýsir áfengi

Ég var að fá auglýsingu í símann minn:

Kæri hàskolanemi, til lukku med proflok. Viljum benda à 90s profloka-fögnud H.I. à Nasa i kvöld. – Gledilegt Sumar: SHI, AM-EVENTS & Bacardi

Ég er bannmerktur bæði í símaskrá og þjóðskrá og ætti því ekki að fá neitt svona en Stúdentaráð er þarna að nota skrár Háskólans til að senda mér þessa auglýsingu. Um leið nýta þeir tækifærið til auglýsa áfengi. Ég er ekki glaður.

Bílastæðisgjöld við Háskóla Íslands

Ég hef undanfarið verið að hneykslast yfir póstum frá Stúdentaráði þar sem stúdentar eru hvattir til að skrifa undir undirskriftarlista gegn  bílastæðisgjöldum við Háskóla Íslands. Ég vil bílastæðisgjöld þar. Ég vil minnka mengun og umferð bíla.

Ég hvet því nemendur Háskóla Íslands til að skrifa undir þennan undirskriftarlista til stuðnings því að bílastæðisgjöld verði, með ákveðnum skilyrðum, tekin upp á svæði skólans.

Bara óendanlega klikkað

Vökuliðar réðu kærasta formanns SHÍ sem framkvæmdarstjóra. Mér finnst bara eitthvað svo klikkað láta sér detta þetta í hug. Það að sækja um þegar kærastan er formaður er bara svo út í hött. Jafnvel þó hann væri hæfastur væri þetta bilað.

En stúdentar kusu þetta lið yfir sig. Þeir hefðu kannski átt að hugsa sig betur um. Líklega gera þeir það á næsta ári.

Þið getið lesið um þetta:

Röskva gagnrýnir, Vaka “svarar”, Röskva svarar, Frétt á Stúdent.is (mikið þoli ég ekki vefsíður sem heita urlinu sínu).

Frábær rannsóknablaðamennska

Ég rakst á frétt á Vísi sem er nær eins og frétt á Stúdent.is um Stúdentaráðskosningarnar. Þar hefur fréttamaður náð stórkostlegum hæðum í rannsóknarblaðamennsku og segir:

Betri kjörsókn var í ár eða 1179 atkvæðum meira en í fyrra þegar 3446 kusu til stúdentaráðs og bar þá Röskva sigur úr býtum með 6 atkvæða mun.

Jahá, fleiri kusu í ár en fyrra og því betri kjörsókn? Eða er einhver misskilningur hér á ferð? Gleymir fréttamaðurinn að taka inn að frá síðustu kosningum hefur heill skóli verið innlimaður í HÍ og þar að auki fjölgað í nemendahópnum?

Í frétt RÚV stendur líka:

Kjörsókn var 40%.

 Sem er önnur tala en ég nefndi í morgun. Á Stúdent.is segir:

Vaka fékk 2342 atkvæði eða 52,25% atkvæða til stúdentaráðs og Röskva fékk 2149 atkvæði eða 47,75 %. Auðir og ógildir seðlar voru 144. Alls kusu 4625 af þeim 13.679 sem voru á kjörskrá.

Ef við reiknum þetta út 4625 deilt með 13679 fáum við 33,8%. RÚVarar eru álíka góðir í námundun og ríkiskirkjufólk.

Í fyrra var kjörsókn 34,64% og var hún því örlítið verri í ár en í fyrra en þó á svipuðum slóðum og yfirleitt.

Þetta er sumsé vönduð rannsóknablaðamennska á öllum vígstöðvum.

Stúdentar kjósa til hægri

Vaka sigraði í Stúdentaráðskosningum. Maður hefði haldið að sú staðreynd að stór hluti þeirra sem hafa undanfarið komið Íslandi ofan í ræsið séu gamlir Vökuliðar hefði einhver áhrif á þetta en svona er þetta. Maður verður núna bara að þakka fyrir að Menntamálaráðherra er til vinstri og vona að hún haldi sínu starfi eftir kosningar.

Ég sá eina Vökumanneskju halda því fram að Röskva hefði klúðrað námslánamálum. Kommon. Það var Gunnar Birgisson sem stjórnaði því hvernig þeir samningar komu út og hann er flokksfélagi meirihluta þeirra sem hafa farið í framboð fyrir Vöku (þeir ganga ekki í flokkinn fyrren eftir að þeir hætta í stúdentapólitíkinni til að segjast vera óflokksbundnir).

En eins og venjulega er aðalniðurstaðan sú að stúdentar hafa ekki áhuga á stúdentapólitík. Kjörsókn var bara tæplega 34%. Kosningakerfið sjálft er ónýtt, bjánalegt og ógegnsætt.

Stúdentapólitík…

Í dag nennti ég ekki að kjósa sem er fínt því að núna er ég svo fúll að ég hef ákveðið að skila auðu.

Öskrandi stúdentapólitík

Stúdentaráðskosningarnar í ár gætu orðið skemmtilegar. Vaka ætti að vera lömuð vegna þess að þessi fylking hefur augljóslega uppeldisstöð útrásarvíkinga og frjálshyggjufalsspámanna. Síðan dettur inn Öskra sem er nýtt afl sem passar vel við tíðarandann.

En ég hef ekki enn heyrt staðfestingu á sérframboði nemenda úr gamla KHÍ. Slíkt framboð væri vel skiljanlegt þegar þau koma skyndilega inn í þetta undarlega stúdentapólitíkurkerfi sem við höfum hér í HÍ.

Ætli þetta endi kannski ekki bara með því að Vaka og Röskva myndi aftur saman meirihluta með það að höfuðmarkmiði að verja kerfið? Eins og síðast.