Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 24. mars 2005 klukkan 14:08

Elli formaður

Miðvikudagur, 23. mars 2005 klukkan 19:42

Appelsínugular tölvur

Ég fór í dag á skrifstofu Stúdentaráðs, við erum að mála hana appelsínugula í tilefni valdatöku Ella. Eða ekki, þeirri kröfu Háskólalistans var aldrei svarað. Reyndar var ég aðallega að aðstoða við tölvuvandræði. Þetta virðist annars vera að ganga nokkuð vel. Á mánudaginn var stjórnarfundur þar sem skipað var í nefndir og metnaði mínum var fullnægt, ég er í Menntamálanefnd. Það verður áhugavert. Spurning hvort að þetta verði ekki síðasta færslan í þessum flokk og ég búi ekki til almennan flokk um málefni Stúdentaráðs.

Mánudagur, 21. mars 2005 klukkan 19:25

Til hamingju stúdentar

Flestallir óska mér til hamingju með að Elli sé orðinn formaður og furða sig um leið á þeim kjánalátum sem ákveðnir aðilar eru með. Annars þá held ég að það ætti að óska stúdentum öllum til hamingju með að fá svona hæfan formann.

Ég minni annars á grein mína um málið á Háskólalistasíðunni. Sú grein er afbragð og frábær hef ég sagt og heyrt. Smávægileg umfjöllun á lýðræði fyrir þá sem ekki skilja.

Sunnudagur, 20. mars 2005 klukkan 12:28

Rödd skynseminnar

Það er ágætis viðtal við Ella í Fréttablaðinu í dag. Þar talar rödd skynseminnar.

Föstudagur, 18. mars 2005 klukkan 16:19

Aðeins meira um Stúdentaráð

Það er verulega fyndin frétt á Mogganum um skiptafund SHÍ. Þar stendur í fyrirsögn að formaður Háskólalistans hafi verið kosinn formaður SHÍ, þar stendur líka að hann Elías Jón sé oddviti Háskólalistans. Þetta finnst mér bráðskemmtilegt enda er hvorugt rétt. Elli er ekki formaður okkar enda höfum við engan formann og hann er ekki heldur oddviti okkar heldur er Arndís Anna oddviti H-listans.

En ég get ekki verið fúll yfir niðurstöðunni af því að ég held að við höfum náð því fram að skipting á milli fylkinga verði eins jöfn og hægt er. Ljóst er að hvorki Vaka né Röskva vildi fá formann úr röðum “andstæðingana” og Elías er því að vissu leyti málamiðlunartillaga sem allir geta sætt sig við. Þetta er alveg ljóst þó að Röskva og Vaka hafi sett upp leikþætti. Elías er líka rétti maðurinn til að ná því besta fram úr Vöku og Röskvu. Að mínu hógværa mati þá er hann einfaldlega besti maðurinn í starfið. Ég hef sjálfur séð hvernig hann vinnur og veit hvað hann getur.

Einsog ég segi þá er nú komið að því að vinna að hagsmunum stúdenta, allar fylkingar hafa rödd og áhrif. Enginn er settur út í kuldann. Þau okkar sem nenntu að lesa um stefnu fylkingana vitum líka að það er almenn sátt um málefnin. En þetta verður spennandi.

**PS**
Mogginn er búinn að breyta fyrirsögninni þannig að Elli er titlaður oddviti en ekki formaður, þetta er alveg jafn vitlaust en Mogginn getur kennt Vöku um þessi mistök. Ég sendi leiðréttingu á þá áðan og þeir hafa greinilega ákveðið að hlusta á helminginn af því sem ég sagði.

Föstudagur, 18. mars 2005 klukkan 14:23

Herra formaður

Jæja, Elli orðinn formaður. Skrípalætin í kringum þetta voru reyndar mikil enda er greinilegt að sumir eru frekar að hugsa um kosningarnar á næsta ári heldur en hagsmuni stúdenta. Það er allavega ánægjulegt að þetta er búið enda er nú hægt að fara að hugsa um alvöru málefni.

Þriðjudagur, 15. mars 2005 klukkan 20:32

Undarleg uppákoma

Voðalega var þessi uppákoma skrýtin, allt virtist vera klappað og klárt en er fundinum frestað á afar vafasaman hátt.

Sunnudagur, 20. febrúar 2005 klukkan 23:29

Hægfara ferli

Það verður nú að segjast að ákvörðunartökuferlið hjá Röskvu og Vöku er voðalega hægvirkt.

Laugardagur, 12. febrúar 2005 klukkan 17:16

Fréttir af Stúdentaráði

Nú veit ég að allir eru spenntir fyrir því hvernig staðan er í viðræðum um starf Stúdentaráðs næsta vetur. Nú get ég ekki sagt mikið en í dag þá ræddi ég óformlega við efsta mann Alþýðulistans. Hann sagði mér að hann hefði engan áhuga á samstarfi þar sem hann væri ekki í Stúdentaráði og ekki ég heldur. Það er nú holur sigur Háskólalistans þegar ég kemst ekki einu sinni inn!

Er ég að níðast á þeim sem eru að bíða eftir fréttum?

Laugardagur, 12. febrúar 2005 klukkan 2:17

Sjáðu mig dansa, sjáðu mig dansa

Það kemst ekkert annað að í dag.

Eldri færslur »