Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 26. febrúar 2006 klukkan 10:23

Hamingjuóskir

Það er svoltið gaman að ég hef fengið álíka margar ef ekki fleiri hamingjuóskir með niðurstöðu skiptafundar Stúdentaráðs í ár heldur en ég fékk í fyrra.

Fimmtudagur, 23. febrúar 2006 klukkan 17:02

Kátína líf mitt fyllir

Ég get ekki gert að því að ég fyllist gríðarlegri kátínu þegar ég les fréttir af samstarfi Vöku og Röskvu í Stúdentaráði.  Flissa einsog smástelpa.  Við hömruðum á því í kosningabaráttunni að það væri nær enginn málefnaágreiningur milli Röskvu og Vöku sem gæti komið í veg fyrir samstarf þeirra og þau hafa greinilega verið að hlusta.

Fimmtudagur, 23. febrúar 2006 klukkan 16:33

Nýr meirihluti

Jæja, hvað skal segja.  Röskva og Vaka í meirihlutasamstarfi.  Mér finnst þetta alveg ótrúlega gaman.  Hefði þetta getað gerst fyrir tíð Háskólalistans? Ónei.

Mánudagur, 13. febrúar 2006 klukkan 12:01

Ef þið vinnið þá kem ég í partíið til ykkar…

Þessa setningu mælti Þórir á meðan við biðum eftir úrslitunum á Stúdentakjallaranum.  Viðmælandinn var Sigga Dögg hjá Vöku.  Ég tek fram að mér þótti þetta nú bara fyndið.

Mánudagur, 13. febrúar 2006 klukkan 10:11

Undarlegt rugl

Ég var að heyra einhverjar sögur af því að ég ætlaði ekki að vera varamaður í Stúdentaráði næsta árið fyrir hana Arndísi.  Voðalega er fólk (ekki mitt fólk) gjarnt á að oftúlka hlutina.  Ég ætla ekki að taka sæti í nefnd enda hefur Háskólalistinn mikið af hæfu og góðu fólki sem getur séð um slíkt.  En ef Arndís þarf á einhverjum að halda til að leysa sig af á fundum Stúdentaráðs þá mun ég leysa hana af.  Það er reyndar ekkert líklegt að það gerist.  Ég held að hún hafi til dæmis mætt á hvern einasta fund síðasta árið.

Sunnudagur, 12. febrúar 2006 klukkan 15:03

Þegar Vakan féll

Þegar var liðið á Kosningaandvökuna á fimmtudagskvöldið settumst við frammi, þar sem maður kemur inn á Stúdentakjallarann.  Allt í einu heyrum við að eitt veggspjaldið er að detta, lítum upp og sjáum að það er Vökuspjaldið.  Það losnaði hægt og rólega niður, féll síðan á gólfið.  Ég sagði þá að þrátt fyrir að ég væri ekki trúaður á tákn þá væri ég tilbúinn að líta þetta jákvæðum augum.

Annars var þessi nótt mjög súr og soraleg.

Sunnudagur, 12. febrúar 2006 klukkan 2:59

20 myndir af Stefáni Boga

Ég virðist hafa tekið um 20 myndir af Stefáni Boga á meðan hann var að koma sér að því að tilkynna kosningaúrslitin á fimmtudaginn.  Hann þurfti að tefja heillengi því þeir sem fóru að tilkynna hinum fylkingunum þurftu að fara mikið lengra.

Föstudagur, 10. febrúar 2006 klukkan 16:22

Útkoman og …

Þetta var löng bið.  Ég skipti á milli bjartsýni og svartsýni alla nóttina.  Það var ljóst að endurtalning var í gangi.  Gamla fólkið var ömurlegt og spáði því að það væri verið að telja milli fimmta manns Vöku og fyrsta manns okkar.  Ég hafði í raun enga trú á því.  Niðurstaðan var samt arfaslök, 11% er ekki viðunandi og við þurfum að gera betur á næsta ári.  Við vitum hvað við gerðum vitlaust í baráttunni.  Síðan var reyndar ljóst að stóru fylkingarnar voru að reyna að útrýma okkur.

En þetta fór eins og í fyrra.  4-4-1.  Við fórum ekki vel útúr Stúdentaráð/Háskólaráð því við fengum töluvert fleiri atkvæði í því síðarnefnda sem er alveg gagnslaust.  Alveg spurning hvort við ættum ekki bara að sleppa þeirri baráttu alveg.

Ég er hins vegar hættur þessu rugli að mestu.  Ég mun ekki taka sæti í nefnd en ég mun hjálpa mínu fólki eins og ég get.  Satt best að segja þá verð ég of reiður og bitur yfir því sem gerist í stúdentapólitíkinni til þess að ég gæti gert meira gagn þar núna.

Í morgun fór ég til Sigrúnar að læra undir Menningararfsprófið.  Ég sofnaði um eittleytið í sófanum en stelpurnar héldu áfram að læra.  Ég var nokkuð þreyttur þó ég hafi í raun farið heim nærri strax eftir tölurnar í gær, sofnaði uppúr klukkan 6:00.  Í nótt mun ég læra.

Fimmtudagur, 9. febrúar 2006 klukkan 18:10

Kosningum lokið

Kjördeildir eru að fara að loka þegar ég skrifa þessi orð. Mikið er þessi stúdentapólitík undarleg. Maður er að heyra sögur af því að eitthvað skrýtið sé á seyði en ég veit ekki hvað það ætti að vera. Ég er upp í Breiðholti í góðri fjarlægð en það eru einhverjir frá okkur að fylgjast með til öryggis.

Sumir lesendur mínir vita að í fyrradag tók Annas sem var í öðru sæti Háskólalistans í fyrra af skarið og lýsti því yfir að hann vildi ekki vera með lengur. Það var ágætt að hann sagði það en þetta hafði legið í loftinu lengi, hann hefur ekkert verið með í starfinu undanfarið. Var ekki alveg sammála öllu sem hann sagði en ég nenni ekki að rífast um það, við erum bara ósammála. Ég veit reyndar að aðrir eru eitthvað sárir við hann en ég vona að það gangi yfir. Í þessu máli erum við fórnarlömb þessa vonda tveggja ára kerfis. Það er meingallað.

En ef Annas er ekki lengur í myndinni er ég, óformlega þó, í öðru sætinu. Það er skrýtin staða því við lítum á það sem baráttusætið. Ég hef enga hugmynd um hvaða möguleika við höfum á að ná inn tveimur (lesist fjórum) mönnum. Ég veit ekkert hvernig kosningarnar fara. Ég verð bara á Stúdentakjallaranum í nótt og sé hvernig fer. Ég vona hins vegar að sjá sem flesta þar af vinum, kunningjum og öðrum velunnurum Háskólalistans. Við stefnum síðan á að halda eftirpartíið heima hjá Annasi enda er það hefð.

Sigur eða tap? Ég verð sáttur ef við verðum í cirka 15% en ef við förum yfir 18% þá myndi ég segja að við gætum verið mjög ánægð.

Næsta ár verður hins vegar spennandi. Við erum að vinna í alveg ótrúlega skemmtilegri hugmynd sem við gátum eiginlega teflt fram núna þar sem hún er ekki komin nógu langt á veg.

Ég er ánægður með hópinn sem hefur unnið með mér. Við hefðum getað verið klókari í baráttunni en maður fer ósjálfrátt í vörn þegar ráðist er að manni. Sókn hefði verið betri.

En fólkið hefur talað og það kemur í ljós í nótt hvort mér líkar það sem sagt var.

Fimmtudagur, 9. febrúar 2006 klukkan 14:35

Margt að pæla

Kosningastjóradjobbið er margþætt.  Ég er að redda dærekt boxi og mæk fyrir Hrafnkel þegar hann spilar á kosningaandvökunni.  Síðan forfallaðist einn aðstoðarmaður á kjörstað og ég hef verið að bögga alla til að leysa af.  Ritarar Þjóðbrókar og Katalogosar björguðu mér.  Þær fá þúsund þakkir.

En endilega kjósið, mig, og mætið á Kosningaandvökuna í kvöld.  Stúdentakjallarinn í kvöld.

Síðan er ég reyndar að skrifa fyrirlestur um Queen sem ég flyt á klukkan átta í kvöld.

Ég hef lítið verið að læra.

Eldri færslur »