Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Laugardagur, 10. febrúar 2007 klukkan 12:39

Kenning um úrslit

Fólk veltir fyrir sér kenningum um það hvers vegna Stúdentaráðskosningarnar fóru eins og þær fóru.

Með fylgi Háskólalistans þá held ég að það sé tvennt sem skipti aðalmáli.  Í fyrsta lagi var Háskólalistinn stofnaður til að vinna gegn kerfi sem hefur í raun ekki verið til staðar síðustu tvö ár (og fólk áttaði sig ekki á að við höfðum lamað kerfið).  Í öðru lagi, og ég tel þetta mikilvægara, þá vorum við of fámenn í kosningabaráttunni og gátum því lítið gert.  Eggert bjargaði hins vegar því sem bjargað varð.

Á lokasprettinum þá er eitt sem ég held að hafi hugsanlega komið með illa út fyrir Vöku.  Það að fá viljayfirlýsingu um lóðir fyrir Stúdentagarða frá Villa borgarstjóra tveimur dögum fyrir kosningar og dreifa mynd af honum að taka í höndina á Sigga formanni var ekki góð hugmynd.  Vaka hefur verið að reyna að losna við hægri stimpilinn og hefur staðið sig ágætlega í því.  Lóðamálið kom hins vegar einfaldlega þannig út að Sjálfsstæðisflokkurinn væri að gefa Vöku loforð um Stúdentagarða í kosningagjöf.

Föstudagur, 9. febrúar 2007 klukkan 16:09

Sjáðu mig dansa

andvakafolk.jpgÞað var afskaplega gaman í gær.  Háskólalistafólkið er ótrúlega skemmtilegt.

Ég var að muna að í gær þá lofaði ég honum Harald hjá Vöku að Háskólalistinn myndi ekki halda kosningaandvöku heldur kosningaandröskvu ef Röskva næði meirihluta.  Það kemur í ljós hvort að ég verði að standa við það.

En í dag þá er ég ennþá fegnari að við töpuðum stórt.  Get ekki ímyndað mér hvað þetta hefur verið ömurlegt fyrir Vökuliða í gær að hugsa um þá sem þeir komu ekki á kjörstað.  Vona að þau átti sig á að þetta er enginn heimsendir og að það kemur dagur eftir þennan dag.  Væntanlega erfitt þegar fólk tekur þetta svona mikið inn á sig.

Ég er hins vegar með frelsistilfinningu í dag.  Það að hafa verið í stúdentapólitík í tvö ár þrátt fyrir að þola ekki stúdentapólitík fer frekar illa með mann.  Núna er ég laus frá þessu að mestu.  Nokkrir lausir endar sem þarf að hnýta og svo er þetta komið.

Bless bless heimskulega stúdentapólitík.

Föstudagur, 9. febrúar 2007 klukkan 4:44

Tap

Jæja, þetta er búið.  Get ekki sagt að það hafi komið á óvart.  Reyndar kom á óvart að Röskva næði meirihluta og vissulega er það voðalega gaman að Fabri hafi komist inn.  Ég er ákaflega feginn að það munaði slatta að við næðum inn manni.  Mér liði örugglega frekar illa ef það hefði munað einhverjum örfáum.

Undarlegast er að mér þykir þetta ákveðinn léttir.  Það hefur ekkert verið ákveðið með framhaldið og ég mun væntanlega ekki koma að þeirri ákvarðanatöku.  Sjálfur held ég að þreyta hafi verið kominn í Háskólalistann.  Ef Háskólalistinn hverfur endanlega þá býst ég fastlega við öðrum framboðum fljótlega, það er eiginlega ekki annað hægt.  Slík framboð yrðu þá vonandi ferskari en við vorum orðin.

Ég hef oft verið spurður hver munurinn á Röskvu og Vöku sé og svarið sem þau gefa sjálf er að Vaka sé framkvæmdaafl en Röskva vill að rödd stúdenta fái að heyrast.  Ég sting upp á samvinnu sem muni leiða til þess að Stúdentaráð framkvæmi og að rödd stúdenta heyrist um leið.  Ég held að þetta þurfi ekki að útiloka hvort annað.  Vonandi fattar þetta fólk hve mikilvægt það er að vinna með þessum andstæðingum sínum að hagsmunabaráttu stúdenta.  Þau hafa reynslu í samvinnu þó hún hafi verið brösug á köflum.  Ekki hætta núna.  Slík samvinna væri líka eina mögulega leiðin til að koma í veg fyrir þriðja framboðið.

En já, Freyr, guðfaðir Háskólalistans, tilkynnti það á bílastæðinu við FS að við hefðum misst fulltrúa okkar í Stúdentaráði.  Auður, fyrsti Stúdentaráðsliði okkar, og Elli, fyrrverandi formaður Stúdentaráðs, voru einnig á staðnum.  Viðeigandi á allan hátt.

Ég er ákaflega stoltur af Háskólalistanum.  Ég held að við höfum breytt einhverju en hvort það verði til frambúðar á eftir að koma í ljós.  Augljóslega þá voru prinsippin okkur mjög dýr.

En ég er þreyttur og ætti að fara að sofa.  Hugsanlega mun ég seinna skrifa þá minningargrein sem Háskólalistinn á skilið.

P.S. Ég gerði ógilt í kosningunni á Háskólafund.  Ég skrifaði “Auður! Hvernig gengur að telja?” Ef þið fattið ekki þá skulið þið pæla aðeins.  Mér þótti þetta allavega fyndið.

Fimmtudagur, 8. febrúar 2007 klukkan 19:25

Talið

Kjörstöðum lauk fyrir um klukkutíma.  Ég verð að játa að það kom smá spenna yfir mig í dag en annars hef ég verið rólegur.

Mér skilst að það hafi verið hasar í VRII í gær.  Ég sá reyndar Hannes Rúnar frænda í Odda í gær í gulum bol en þar sem hann var einn og lét fara lítið fyrir sér þá nennti ég ekki að gera athugasemd við það.

Ég veit ekki hvernig þetta fer.  Við eigum alltaf á hættu á að þurrkast út.  Það þarf svo lítið að bera út af.  En ég held að við lifum af.

Fimmtudagur, 8. febrúar 2007 klukkan 10:48

Kosið

Ég kaus núna áðan eftir miklar pælingar um hvað ég ætti að kjósa til Háskólafundar.  Ég hef þá fjórum sinnum kosið í Stúdentaráðskosningum, í öll skiptin hef ég kosið Háskólalistann og þetta er í þriðja skiptið sem ég kýs sjálfan mig.  Ég gleymdi samt að dást að eigin nafni á kjörseðlinum.

Ég kaus í Árnagarði en þið getið kosið í flestöllum byggingunum Háskólans.  Ég valdi þennan stað af því að mér líkar vel við þann sem stýrir kjördeildinni.

Ég ætla allavega ekki að upplýsa hvað ég kaus til Háskólafundar.  Auður verður fyrst til að komast að því.

Miðvikudagur, 7. febrúar 2007 klukkan 17:33

Útlendingurinn okkar

Christian var í Síðdegisútvarpinu og hann rúlaði svoltið mikið.  Það er mikið á drenginn lagt að þurfa að taka þátt í pólitískum umræðum á íslensku en hann tók þetta.

Þegar hinir hringja, munið eftir okkur!

Kjósið Háskólalistann!

Miðvikudagur, 7. febrúar 2007 klukkan 10:53

Táknrænt sko

2007_0207_100636aa.JPGÍ kosningabaráttunni í ár hef ég gengið með þrjú barmmerki.

Það efsta er gamla merki Háskólalistans sem var notað fyrstu þrjú árin. Það var notað síðast fyrsta árið mitt.

Miðjumerkið er að miklu leyti mín hönnun en Kalli og Telma áttu grunninn. Það var notað í fyrra.

Neðsta merkið er ný útfærsla á nýja merkinu. Það er stílhreinna og auðveldara að vinna með það. Það fékkst í mörgum litum en ég hélt mig við appelsínugula litinn.

Þetta er augljóslega mjög táknrænt fyrir árin mín þrjú í Stúdentaráði.

Ég tók merkin niður áðan enda á leið í Odda og ég má ekki vera með áróður hér. Ég set þau væntanlega upp aftur á Kosningaandvökunni sem fer fram á Stúdentakjallaranum annað kvöld. Hún hefst uppúr klukkan 21:00.

En já, drífið ykkur á kjörstað og kjósið Háskólalistann. Það er kosið í Aðalbyggingu, Ármúla, Árnagarði, Odda, VR II, Lögbergi, Háskólabíói, Haga, Öskju, Skógarhlíð, Eirbergi, Læknagarði og Þjóðarbókhlöðu.

Miðvikudagur, 7. febrúar 2007 klukkan 0:42

xH(áskólalistinn)

Eygló bendir réttilega á að ef allir mæta og kjósa Háskólalistann á morgun og fimmtudaginn þá kemst hún í Stúdentaráð. Við treystum á ykkur.

Það er kosið í flestum byggingum Háskólans og engin afsökun fyrir að kjósa ekki. Það eru tveir kostir í boði, gamla kerfið annars vegar og við hins vegar.

Háskólalistinn hefur þegar skráð sig nafn sitt í sögubækur Stúdentaráðs en eftir þessar kosningar ætti nafnið að vera orðið feitletrað. Erlendur nemi í Stúdentaráði. Ég verð mjög stoltur ef það gengur eftir. En við þurfum stuðning stúdenta. Kjósið breytt Stúdentaráð, kjósið samvinnu, kjósið Háskólalistann.

Þriðjudagur, 6. febrúar 2007 klukkan 16:56

Skemmtilegur dagur

2007_0206_091858aa.JPGDagurinn var skemmtilegur. Ég held að fundurinn í gærkvöldi hafi hresst mig. Síðan fórum við í ákaflega gefandi stofuganga í morgun. Best var þegar Christian og Raffi voru teknir upp að töflu og beðnir um að nefna einhverja óreglulega sögn á íslensku. Þeir náðu því. Skemmtilegt að vera bara áhorfandi að stofugangi til erlendra stúdenta og leyfa þeirra eigin fulltrúum að tala.

Fjölnir samþykkti að vísu ályktunina í gær en við tókum þá ákvörðun að skipta okkur ekkert af hjónaerjunum. Svarið sem kom frá þeim sem fengu bakstunguna í gær var alveg stórfyndið. Ég hló og hló.

Kosningablaðið okkar kom út og virkar bara vel (ein tínsí vínsí mistök). Ég er sérstaklega ánægður með að greinin mín um erlenda stúdenta hafi endað þar inni. Við erum augljóslega á síðasta snúning með blaðið en það þurfti að koma út á jöfnu (fjárráð okkar eru mjög takmörkuð) og við fengum ekki inn síðustu auglýsinguna fyrren seint og síðarmeir. En við náðum að nýta það vel.2007_0206_150718aa.JPG

Í dag hitti ég Kötlu litlu Þórarinsdóttur í fyrsta sinn. Hún var í fylgd með frænku sinni sem reyndi að sannfæra hana um að kjósa Röskvu en mér sýndist að Katla væri nú farin að halla sér að Háskólalistanum.

Í kvöld verður hreinsaður upp áróður og meiri áróður borinn út. Fjör. Kosningabaráttunni lýkur í kvöld. Sem betur fer stundar Háskólalistinn engan áróður á kosningadögunum sjálfum þannig að við erum laus.

Að lokum! Þegar hinir hringja, munið eftir okkur!

Þriðjudagur, 6. febrúar 2007 klukkan 13:46

Myndskilaboð

Þegar maður er í framboði þá þarf maður að fá lánuð sæt börn.

Image006.jpg

Eldri færslur »