Category Archives: Netið

Puttinn og Ahmajinedad

Ég hef undanfarið séð myndina til vinstri á flakki um netið. Með smá leit fann ég þá til hægri. Ég ætla að veðja að hún sé eldri.

Spammað á íslensku

Ég er með vörn sem á að koma í veg fyrir að fólk geti sett inn rusl í athugasemdakerfið hér. Limalengingar og pillur eru algengastar. Einstaka sinnum er kerfið þó of öflugt og hirðir athugasemdir sem eiga að komast í gegn. Ég tek því stundum og skoða hvað sían hefur veitt.

Núna ákvað ég að prufa að leita að algengu íslensku orði í athugasemdum sem hafa verið merkt sem rusl. Það sem ég fann kom mér á óvart. Þarna voru sex athugasemdir á íslensku sem voru þó augljóst rusl þegar ég skoðaði þau.

Eitt var greinilega vélarþýdd auglýsing um einhverja pillu en hin fimm voru öðruvísi. Ein var einfaldlega afritaður texti úr færslunni sem hún var skrifuð við. Hinar fjórar voru textar teknir að því er virðist handahófskennt af bloggsíðum og spjallborðum.

Hérna eru tvö dæmi um þessa texta:

Það gera lífeyrissjóðir landsins með hundruð milljarða afskriftum vegna veðmála sem stjórnendur þeirra í vanhæfi sínu bókuðu á framtíðarvæntingar skýjaborganna. Og til að breiða yfir þau mistök og fleiri, þá berjast þeir með öllum ráðum gegn því að fyrirtækin sem peningarnir runnu í, fari í gjaldþrot. Enda kæmust almennir borgarar þá í bækurnar, og það má ekki.

Þú verður að fyrirgefa. Ég veit að það er dónaskapur að klippa út setningar úr innleggjum fólks en ég stóðst ekki mátið. Ég hef nefnilega heyrt þetta svo oft. Í fyrsta lagi vil ég benda á að þarna er rétt orðnotkun. Þetta heita vímuefni. En áfengi er líka vímuefni. Í öðru lagi langar mig að varpa fram þeirri spurningu hvort vímuefni séu slæm, svona í sjálfu sér. Hvort fólk sé almennt á þeirri skoðun að það sé vont að fólk fari í vímu?

Lukkulega sér ruslsían mín í gegnum þetta.

Ég fann síðan reyndar eitt gamalt komment frá Dagbjörtu sem ég ákvað að hleypa í gegn. Betra seint en aldrei.

Viðbót, þetta þótti mér fyndið:

Ég ráðleggja þér að virkilega the bestur staður :
эротические знакомства фото парни

Sem reglu , deita auglýsingastofu notuð af Internetinu.

Ég vildi að ég vísi hvernig þetta kom til.

Áratugur í bloggi – brot af bloggsögu

Í dag eru tíu ár síðan ég hóf blogg af alvöru – raunar hafði ég fiktað með svipað form árið 1999 en það gekk stutt. Ég bloggaði fyrst einn og yfirgefinn. Rúmu ári síðar fór ég á Kaninkuna í boði Palla Hilmars. Að lokum langaði mig að sjá um eigin vef og setti truflun.net af stað með bloggum fyrir vini og ættingja.

Þegar hæst stóð bloggaði ég upp á hvern dag, áleit það sérstakt markmið í sjálfu sér, og var með lengi með fastan lestur upp á mörg hundruð manns á dag. Ef færslunni var deilt á einhverjum góðum stað fóru heimsóknirnar upp í þúsundir. Það var á tímabili reglulega vitnað í bloggið mitt á síðum dagblaða. Það var ekki óalgengt að fólk byrjaði að spjalla við mig af því að það hafði lesið bloggið mitt.

Þegar ég byrjaði að blogga þá tók ég viljandi ákvörðun um að reyna að komast inn í ákveðið bloggsamfélag sem var líklega það mest áberandi á sínum tíma. Þetta tókst mér. Kjarni þess á þeim tíma var rss-mola síðan hans Bjarna þar sem maður gat fylgst með uppfærslum hjá þessu fólki (og reyndar ýmsum sem voru aldrei beinlínis hluti af því). Þetta bloggsamfélag hafði nokkra undirhópa og ég datt, merkilegt nokk, inn í vinstrimannahópinn.

Á þessum tíma höfðu fæstir athugasemdakerfi og því var umræðan dreifð og lifandi yfir samfélagið. Í stað þess að umræða skapaðist við bloggfærslu einhvers eins manns þá tóku margir þátt í því á mörgum bloggum. Þannig fór til dæmis umræða um teiknimyndaþáttinn Gullborgirnar vítt og breytt um bloggheima. Ég nefni þetta dæmi sérstaklega af því að bloggið var ekki jafn pólitískt og það varð síðan. Þetta var ekki vettvangur til að ræða landsmálin heldur vettvangur þar sem meðal annars var fjallað um þau.

Það var á sínum tíma skrifuð fræg grein á vefritið Kreml (munið þið eftir pólitísku vefritunum?) um blogg. Þar var hneykslast á því að á bloggum væri fólk að tala um uppáhalds teiknimyndasögurnar sínar, hvaða fræga fólk það hefði hitt og hvað heimilistæki voru biluð heima hjá því. Mig hefur alltaf grunað að þessi greinahöfundur hafi verið að lesa mitt blogg áður en hún skrifaði þessa færslu. En bloggheimar svöruðu greininni með því að skrifa færslur um uppáhalds teiknimyndasögurnar sínar, fræga fólkið sem það hafði hitt og hvaða heimilistæki væru biluð hjá þeim.

Það sem mér þykir eftir á hafa einkennt þetta bloggsamfélag er að það hafði rætur meðal fólks sem hafði lengi verið á netinu. Fólk sem fór eftir ákveðnum siðareglum og hugmyndum sem voru líklegast aldrei skráðar og sjaldan yrtar. Þetta hvarf síðan að einhverju leyti þegar íslenskar bloggþjónustur fóru að taka við. Sérstaklega Moggabloggið. Þar fór fólk að blogga sem hafði litla reynslu af netinu og hafði ekkert fylgst með því bloggsamfélagi sem var til fyrir.

Það var annað sem ég tel að hafi farið fyrir brjóstið á gömlu bloggurum og það er að Moggabloggið var tilraun til þess að taka yfir eitthvað sem var frjálst og óháð og stofnanavæða það. Í stað óformlegs nets af bloggurum varð til stór blokk af bloggurum sem tengdust hver öðrum vegna fjárhagslegra hagsmuna Morgunblaðsins. Fréttatengingin á Moggablogginu varð líka til þess að bloggin yrðu oft frekar einhæfar umsagnir um það sem skrifað var á Mogganum. Ég tek fram að það voru vissulega ýmsir skemmtilegir bloggarar þarna og eru enn. Hins vegar hurfu þeir dálítið í fjöldann.

Ég hef það á tilfinningunni að það hafi verið fyrir kosningarnar 2007 sem bloggið varð undirlagt pólitík í fyrsta skipti og hið hversdagslega hvarf. Um svipað leyti, eða aðeins seinna, fóru vefmiðlar að hampa ákveðnum bloggurum og setja þá í aðalhlutverk til að lokka gesti að. Slík blogg urðu einmitt mjög áberandi mikið um landsmálin eða allavega mjög þematengd. Aðdragandi og eftirmál bankahrunsins eru líka sýking sem bloggið hefur ekki losað sig við.

Fólk hætti ekkert endilega að vilja að tala um hið hversdagslega en það færðist á annan miðil: Facebook. Á sama hátt og Moggabloggið bjó til sitt samfélag í eigin þágu þá gerði Zuckerberger það líka. Hann gekk skrefinu lengra og lokaði það algjörlega af. Að vissu leyti er það þægilegt. Ég hef engan sérstakan áhuga á að deila með heiminum því sem ég hef að segja um son minn (ólíkt Barnalandsbloggurunum sælla minninga). Það er hins vegar verra að þessi lokun veldur því að maður finnur ekki lengur veitingahúsarýni með gúggli. Flestir sem vilja deila því hvernig reynsla það var að fara út að borða á ákveðnum stöðum er farið að deila slíkri rýni á lokuðum svæðum og þó tímalínan opni fortíðina á Facebook þá hverfa þessar umsagnir fljótt niður.

Það er stofnanavæðingin á netinu sem ég hræðist og veggirnir sem fylgja því. Þó það sé gott að fólk geti reist veggi utan um sín einkamál þá er verra þegar veggir eru reistir á forsendum fyrirtækja sem vilja loka fólk inni í þeirra kerfi. Þetta verður alltaf verra og verra. Núna eru ýmsir vefmiðlar byrjaðir að heimta, jafnvel krefjast, að til þess að maður geti opnað hlekki á fréttir þeirra á Facebook þá skrái maður sig hjá þeim. Hér gæti ég talað um Michel de Certeau, strategíu og taktík en ég bíð með það þar til ég skrifa fræðilega um efnið.

Andúð mín á stofnanavæðingu netsins er væntanlega ástæðan fyrir því að ég er ennþá með þetta blogg í gangi. Bloggsamfélagið sem ég tilheyrði er að mestu horfið og með því hverfur að miklu leyti hvatinn til þess að skrifa. Ég reyni þó.

Það er annars skrýtið að hafa fortíð svona aðgengilega á netinu. Það er sumt þarna sem maður sér eftir. Ég finn líka að ég er orðinn ósammála sumu sem ég sagði hér áður fyrr. Þetta er hins vegar ómetanleg heimild um síðasta áratug sem ég á – þó hún sé ekki jafn ítarleg síðustu árin. Blogg mín um utanlandsferðir og sérstaklega Corkdvölina eru reglulega lesin þegar mig langar að rifja eitthvað upp. Kannski að tímalínan á Facebook muni bjarga einhverju þegar ég fer að rifja upp síðustu fimm árin en það verður aldrei jafn ítarlegt.

Síðast en ekki síst þá hef ég kynnst ótalmörgum í gegnum bloggið og er þakklátur fyrir það. Sumir eru löngu hættir að blogga en eru þó enn góðir vinir mínir. Aðrir voru upprunalega bara lesendur mínir sem ég síðan kynntist. Það hefði verið verst að missa af því.

Framhald af Öddu (klámlaust)

Ég skrifaði fyrir nokkru um gervi Facebook prófílinn hennar Öddu. Í kjölfarið hef ég rökrétt við vini mína (á Facebook) um skaðsemi og skaðleysi þess að samþykkja ókunnugt fólk sem vini á Facebook. Almennt virðist fólk ekki hafa miklar áhyggjur af þessu jafnvel þó um svona gerviprófíl sé að ræða.

Ég hef bent á nokkur atriði sem fólk ætti að hafa í huga:

  • Þegar þú samþykkir einhvern þá munu örugglega einhverjir aðrir vinir þínir túlka það sem “gæðastimpil” þinn.
  • Þeir sem eru á bak við svona prófíla gætu verið að sigta út einhver gögn, til dæmis tölvupóstföng fyrir spammara.
  • Mögulega væri hægt að nota svona gerviprófíla til að dreifa einhverjum vírusum og ormum um Facebook (það gæti alveg eins hafa gerst nú þegar).

Ég held allavega að þetta sé ekki endilega skaðlaust og fólk mætti velta þessu aðeins fyrir sér.

Facebook kommentin

Mér þykir miklu skemmtilegra umræður skapast við bloggfærslurnar mínar sjálfar heldur en við hlekkina á færslurnar inn á Facebook. Því miður er Facebook umræðan orðin miklu algengari. Það þýðir um leið að góðir punktar um skrif mín verða fljótt og örugglega óaðgengilegir – jafnvel þó ég endi einhvern tímann með tímalínuna. Maður endar líka með því að taka þátt í tvöfaldri umræðu, á bloggi annars vegar og Facebook hins vegar. Það er bara óþarfi.

Frjáls klám frá Íran

Frjáls klám

Frjáls klám

Fyrir rétt rúmlega þremur árum fékk ég heimsókn frá einhverjum sem var að leita að ókeypis klámi með hjálpi orðabókar eða tölvuþýðingar. Ég skrifaði bloggfærslu um það.

Í kjölfarið hef ég oft fengið álíka heimsóknir þar sem bloggfærslan sem ég skrifaði skoraði hátt á Google.

Í gær var ég að skoða teljarann minn, sem ég geri ekki oft þar sem ég blogga nær ekkert núorðið og rakst á þessa heimsókn.

Ég man ekki eftir því að hafa áður fengið heimsókn frá Íran. Mig grunar að fyrsti gesturinn þaðan hafi ekki verið sérstaklega glaður með það sem hann fann.

Nú eru síðan allar líkur á að þetta skjáskot af teljaranum mínum skori mjög hátt á Google hjá þeim sem eru að leita sér að frjálsu íslensku klámi. Verði þeim að góðu.

Rafbókavefurinn

Þó ég sé á kafi í öðru þessa daganna setti ég Rafbókavefinn í loftið um daginn. Þetta eru fyrstu drög að meistaraverkefni mínu í hagnýtri menningarmiðlun. Á Rafbókavefnum eru ókeypis rafbækur í opnum aðgangi í formi sem hentar fyrir Kindle og aðra rafbókalesara sem og spjaldtölvur. Núna eru þar 52 bækur. Nákvæmlega 50 af þeim eru unnar uppúr textum Netútgáfunnar – efni sem er komið úr höfundarrétti. Það eru 35 Íslendingasögur, Heimskringla og síðan eru það gamlar skáldsögur – aðallega eftir Jón Trausta. Ein er eftir Eirík Örn Norðdahl en það er bókin Ást er þjófnaður sem ég skrifaði um nýlega (EÖN óskar eftir framlögum frá niðurhalendum). Síðasta bókin er Andlegt sjálfstæði sem ég ritstýrði og var gefin út fyrir þremur árum.

Ég er síðan líklega að fá eina bók frá háskólaprófessor sem ég kannast við. Annar er að skoða möguleikann. Nú þarf ég bara að fara að pota í fleiri og fá efni þarna inn. Ég er annars að leita að allskonar efni, það mega vera skáldsögur, fræðirit eða hvaðeina sem fólk er tilbúið að dreifa á þennan hátt. Það græða fáir á því að gefa út á pappír en á þennan hátt er hægt að gera efni aðgengilegt fyrir almenning á frekar einfaldan hátt.

Ég er alveg sannfærður um að rafbækur á þessu formi séu framtíðin – ef ekki bara einfaldlega samtíðin. Ég man sjálfur ekki eftir að hafa lesið annað eins magn af bókum og frá því að ég keypti Kindle núna um páskana. Þetta opnar manni alveg nýja heima og ég vil opna þessa heima fyrir þá sem lesa helst á íslensku.

Þó vefurinn sé enn í tilraunaútgáfu er hann sérlega þægilegur fyrir þá sem hafa áður sótt sér rafbækur á netið en ekki endilega hentugur fyrir þá sem hafa kannski bara keypt bækur fyrir Kindle beint af Amazon. Betri leiðbeiningar eru væntanlegar. Ég vil endilega fá viðbrögð frá fólki og það má kommenta á flestar síður á vefnum.

“krabbamein í lyftistöng”

Ef maður skoðar ekki spammöppuna sína þá missir maður af svona gullkornum.

Frá frú Joyce Philip

Kærust, einn

Ég heiti frú Joyce Philip.I fæddist í Kúveit. Ég er kvæntur Mr Joshua Philip, sem vann með Kúveit sendiráðið í Togo fyrir níu árum áður en hann lést árið 2010.We voru gift í ellefu ár án barns. Hann lést eftir stutta sjúkdóm sem stóð fyrir aðeins fjórum dögum áður en hann lést vorum við bæði fæðst kristinn. Þar sem hann lést ákvað ég ekki að giftast aftur eða fá barn utan matrimonial heimili mínu sem
Biblían er á móti. Þegar seint maðurinn minn var á lífi hann afhent summan af $ 4.Million í banka hér í Togo.
Og Nýlega læknirinn minn sagði mér að ég myndi ekki endast fyrir næstu sex mánuði vegna krabbamein vandamál mitt (krabbamein í lyftistöng og heilablóðfalli).
Nú er þetta fé er enn í bankanum. Having þekkt ástand mitt að ég er í þörf af a heiðarlegur Hearted Einstaklingur Christian eða kirkja sem ég mun nýta þennan sjóð og ég er að fara að kenna hér.
Ég vil einhver sem vilja nota þessa sjóði í samræmi við óskir late.husband minn til að hjálpa Lessprivilaged fólki, heilsugæsla, munaðarleysingjahæli, ekkjur og fjölgunar orð Guðs.
Ég tók þessa ákvörðun vegna þess að ég dont hafa öllum börnum sem munu erfa þessa sjóði, og ég dont vilja í burtu þar sem þetta fé verður notað í miskunnarlausri hátt.
Þetta er ástæða þess að ég er að taka þessa ákvörðun til hendinni þú yfir sjóðsins.
Ég er ekki hræddur við dauðann því ég veit hvaðan ég er vil going.I þú alltaf muna mig í daglegu bænir ykkar vegna upp koma Krabbamein Surgery minn.
Skrifa aftur til mín eins fljótt og auðið er vegna þess tafar í svari þínu gefur mér pláss í uppspretta annars aðila í þessu sama skyni, og vona að lesa frá þér fljótlega.
Við Guð megnar allt. Um leið og ég fæ svarið Ég skal gefa þér samband bankans í Togo mun ég einnig gefa þér heimild bréf sem mun reynast þér nú nýtur góðs af þessari sjóðsins. Þú getur haft samband mig með þessu Altternative Email joycephilip80@yahoo.com
Guð blessi þig eins og þú skráningu á rödd rökhugsun,

Megi Guð blessi frá,

Mrs Joyce Philip

Leigt frá Flick my life

Var að spá í að senda þetta á Flick my life. Væntanlega yrði titillinn “Leiga dagsins”. Síðan gæti verið efnisorðið “Meta”.

P.S. Til að fyrirbyggja misskilning þá hef ég gaman af því að skoða Flick my life og geri það á næstum hverjum degi. Fatta þó ekki áhuga þeirra á rassskorum karlmanna.

Atvinnutilboð dagsins

Atvinnutilboð dagsins er mjög spennandi. Þetta kom í póstkassann minn undir titlinum “Atvinna bjóðast”.

Lee Hui Industrial Company Ltd
show details 17:14 (6 minutes ago)

Lee Hui Industrial Company Ltd
67 / F, One Harbourfront. 12 Tak Fung Street,
Hékk Home. City, Kowloon, Hong Kong.
leehuicoltd@gncn.net

Ref: LHICL/007/T164/11

Mitt nafn er Lee Hui, framkvæmdastjóri Lee Hui Industrial Company Ltd,
Hong Kong.We sérhæfir sig í framleiðslu á járni og stáli, sem við
útflutning til Evrópu sérstaklega Bretland, Þýskaland, Danmörk, Ísland,
Finnland, Svíþjóð og Portúgal. Vörur okkar eru úr mjúku stáli umferð bars,
ávaxtaskuldabréfum vansköpuð bars, ljós kafla og víra stanga allt frá mjög
lágt kolefni mikils kolefnis og kalt stefnir stál.

Við erum að leita fyrir fulltrúa sem getur hjálpað okkur að koma á miðli
komast til viðskiptavina okkar í Evrópu sem og greiðslur fyrir hann / hana
til okkar. Þú þarft ekki að yfirgefa núverandi starfi fyrir þetta eitt af
því að þetta starf tilboð verður í hlutastarfi grundvelli og
remunerationis á hlutfall grundvelli 10% af heildar upphæð sem þú færð frá
viðskiptavinum okkar á hverjum tíma fyrir okkar hönd. Einnig hefur þú ekki
ætlast til að eyða öllum sjóðum í lok þín (fjárhagslegra skuldbindinga).

Ástæðan við að leita aðstoðar er að flestir viðskiptavina okkar kjósa að
borga okkur í eftirlit. Þess vegna, mest Evrópu eftirlit tekur lengri tíma
að hreinsa hér í Hong Kong þar með að halda viðskipta okkar niður fyrir
okkur og samstarfsaðila okkar. Við höfum nú þegar viðskiptavinir sem eru
tilbúnir að greiða til að skipaður greiðslu okkar fengu yfirmann.

Vinsamlegast hafðu samband við mig í gegnum þetta Netfang:
leehuicoltd@gncn.net til að fá frekari upplýsingar og senda okkur
upplýsingar um tengiliði þína, svo sem:

******************************

******
Full Names þín:
Netfang:
Occupation:
Símanúmer:
************************************
Takk fyrir skilninginn, bíða við anxiously svar þitt. 

Kveðjur,

Lee Hui
Executive Director
Lee Hui Industrial Company Ltd