Category Archives: Vefsíðuvesen

Frjáls klám frá Íran

Frjáls klám

Frjáls klám

Fyrir rétt rúmlega þremur árum fékk ég heimsókn frá einhverjum sem var að leita að ókeypis klámi með hjálpi orðabókar eða tölvuþýðingar. Ég skrifaði bloggfærslu um það.

Í kjölfarið hef ég oft fengið álíka heimsóknir þar sem bloggfærslan sem ég skrifaði skoraði hátt á Google.

Í gær var ég að skoða teljarann minn, sem ég geri ekki oft þar sem ég blogga nær ekkert núorðið og rakst á þessa heimsókn.

Ég man ekki eftir því að hafa áður fengið heimsókn frá Íran. Mig grunar að fyrsti gesturinn þaðan hafi ekki verið sérstaklega glaður með það sem hann fann.

Nú eru síðan allar líkur á að þetta skjáskot af teljaranum mínum skori mjög hátt á Google hjá þeim sem eru að leita sér að frjálsu íslensku klámi. Verði þeim að góðu.

Evrópa á línunni

Mér þótti svolítið gaman af því að sjá dreifingu á síðustu hundrað gestum mínum á síðuna. Það voru reyndar nokkrir í öðrum heimshlutum en ljósin eru aðallega á þessum litla blett sem við köllum Evrópu.

Helsinki

Ég get svona almennt þekkt helstu gesti mína utan úr heimi en ég er ekki að átta mig á þessum í Helsinki.

WordPress uppfært

Jæja, dund verandi veikur heima.

Ég uppfærði Truflun í WordPress 2.33. Þeir sem vel fylgjast með hafa kannski tekið eftir því að síðan mín varð skrýtin á tímabili í morgun en það lagaðist. Það sem ég þurfti að gera fara að fjarlægja utf úr WP-config og þá birtust íslenskir stafir eðlilega. Síðan fór ég í gegnum restina af þeim aktívu WP-kerfum sem eru hérna og lenti bara í vandræðum með Þjóðbrók sem tók um klukkutíma að laga. Það birtist líka einhver leiðinlegur kóði á síðunni hans Eggerts sem ég þurfti að láta hverfa. En núna ætti allt að vera komið í lag og það eru ýmsir skemmtilegir möguleikar í þessari útgáfu. Notendur Truflunar pota bara í mig ef það er eitthvað ves.

Teljarinn aftur

Ég var að fá heimsókn frá Berkeley. Sá gestur skrifaði leitarorðið menningararfur í Google. Gaman að fá Valdimar í heimsókn.

Nígeríubréf á leiðinni?

Mig grunar að ég fái Nígeríubréf á næstunni. Einhver kom nefnilega frá því landi á síðuna mína leitandi að “65 2008 “@hotmail.com” -email -address -and -contacts -of -doctors -in -singapore”. Þessi einstaklingur virðist ekki vera neitt sérstaklega fær í að leita á Google, kannski sem betur fer. Leitarskilyrðin hans eru mjög illa uppsett enda er ég ekki, þó það komi mörgum á óvart, læknir í Singapore. Ætli þér séu sérstaklega gjarnir á að falla fyrir svona? Og ætli þeir séu flestir með hotmail addressu?

Annars þá er alltaf gaman að sjá hvaða lesendur mínir koma. Af síðustu hundrað gestum hef ég nefnilega fengið heimsóknir frá Nígeríu, Kanada, Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi, Belgíu og Færeyjum. Þetta er svona fyrir ofan meðallag en maður spyr sig samt hvers vegna Lalli sé ekki að skoða bloggið mitt? Af hverju er ég ekki með heimsókn frá Mexíkó?

e.s.

Sko, frá Bretlandi er það Jakob, frá Danmörku eru bæði gestir frá Árósum og Óðinsvé sem ég myndi giska að væru Eggert og Frú Jóhanna, frá Svíþjóð er ég ekki viss en ég veit að þetta var ekki Anna því hún er á mjög auðþekkjanlegri addressu, ég veit ekkert um norður amerísku gesti mína, sá frá Færeyjum var að lesa um Tý, Þjóðverjinn er mér ekki kunnur og Belginn svo sem líka en gæti verið Bjössi.

Þú heldur að þú sért að skoða netið en í raun er netið að skoða þig.

Gestir mínir

Þessa daganna eru flestar heimsóknir á þessa síðu frá fólki sem eru að leita að Bjólfskviðu á Google. Í síðustu viku voru flestir að leita að upplýsingum um istorrentlokunina.

Google Earth

Ef ég hef ekki sagt það nógu oft þá er best að endurtaka það.  Ég elska Google Earth.

Ástæðan fyrir því að ég minnist á það núna er sú að ég var að leika mér að setja skrá inn á Kaupmannahafnarsíðuna (sem er ekki til en þó dáltið inn á henni miðað við til dæmis Færeyjasíðuna). Ef smell er á hlekk á þess skrá sem er einmitt svona: Jorcks Passage. Þá geturðu opnað skránna ef þú ert með Google Earth.  Forritið opnast, færist austur frá Bandaríkjunum, sveimar niður í átt að Danmörku, súmmar á Kaupmannahöfn og endar á Jorcks Passage þar sem spilabúðin Games Köbenhavn er staðsett.  Þetta getur Sverrir Guðmundsson allavega gert.  Ég get ekki ímyndað mér annað en hann sé með Google Earth í tölvunni sinni.

Þegar ég vinn meira í þessum ferðasíðum mínum þá ætla ég að setja svona skrá við hvern einasta stað.  Þetta er hinn andlegi hafís tækni- og framfarahyggju minnar.

Setjið inn Google Earth. Þið sjáið ekki eftir því. Næst þegar einhver þarf leiðbeiningar heim til mín þá sendi ég bara GoogleEarth skrá.

Heimshornin öll sko

Í dag fékk ég sms frá Árnýju þar sem ég var spurður um spilabúðir í Kaupmannahöfn.  Um síðustu helgi var ég líka að tala við Sverri Guðmunds um það sama.  Ég var að fletta þessu upp áðan og ákvað að setja upp síðu með þessum upplýsingum.  Flest af þessu er nú þegar í ferðasögum mínum en þarna ætla ég að hafa þetta skipulagðara.   Þetta er ekki langt komið en ég mun vonandi vinna meira í þessu.  Ábendingar vel þegnar.  Ég geri síðan fleiri síður um aðrar borgir sem ég hef heimsótt.

Hér til vinstri má sjá þetta undir Heimurinn – Kaupmannahöfn.

WordPress vesen

Eitthvað er uppfærslan frá því um daginn að bögga mig, það virðist ekki hafa haft áhrif á aðra notendur á Truflun.  Ég ætla að reyna að laga þetta.  Vona að það gangi eftir.