Category Archives: Vefsíðuvesen - Page 2

Truflun uppfærð – smá ves

Jæja, ég uppfærði bloggin á Truflun. Ég varð var við smá vandamál. Ritillinn, þar sem maður skrifar færslur, hætti á sumum stöðum að sýna textann eins og hann birtist á blogginu og sýnir hann þess í stað sem html. Þetta er auðleyst mál. Bara að fara í Notendur – Þitt yfirlit og haka við “Use the visual editor when writing”. Þá er því bjargað. Fólk virðist þurfa að gera þetta sjálft.

Ég bið annars Truflaða fólkið að láta mig vita ef það er eitthvað vesen.

Aðal plúsinn við þessa uppfærslu er að færslur sem maður er að skrifa eru vistaðar á tveggja mínútna fresti þannig að ef að vafrinn frýs þá ætti ekki að vera vandamál að endurheimta allavega stærstan part færslunnar. Reyndar hef ég ekki aldrei lent í því að missa færslu í WordPress. Ýmislegt annað hefur einnig verið breytt og bætt.

Truflun #9

Hjörvar er orðinn truflaður.  Hann er líka kominn á forsíðuna.  Spurning hvort að þetta sé ekki að verða fullfjölmennt fyrir eina röð.  Hugsanlega minnka ég myndirnar eða læt þetta öðruvísi upp…. seinna.

Myndablogg

Ég er búinn að setja upp kerfi til þess að myndblogga á þessa síðu.  Þannig verður gsmblogg síðan mín óþörf og allt mitt stöff komið inn í Truflun.  Þetta er hins vegar ekki hnökralaust.  Ég veit ekki ennþá hvernig ég set upp stuðning við íslenska stafi og síðan þá fylgir öllum myndskilaboðum sem ég sendi einhver leiðindatexti um að þetta sé sent frá blabla.  Vona að ég geti lagað þetta á næstunni.

Númer sex á Truflun

Jæja, þá er búið að bæta við enn einum truflaða einstaklingnum á forsíðunaDaníel Freyr hefur ákveðið að færa bloggið sitt hingað og er mjög velkominn.  Svo skemmtilega vill til að Daníel er þjóðfræðingur og passar því vel inn í þennan hóp (einungis Hafdís systir sem fellur fyrir utan við þemað).

Ástkæra tungan

Jæja, náði loks að klára eina vesenið sem ég hafði ekki náð að leysa í flutningnum.  WordPress neitaði ítrekað að breyta yfir í íslensku.  Ég hélt alltaf að ég væri að gera eitthvað vitlaust, leitaði að lausnum.  Loksins fattaði ég að það væri hugsanlegt að vandamálið væri hjá hýsingaraðilinum og líklega var það rétt, allavega fann ég lausnina fljótt og örugglega hjá þeim.

Reyndar er mér nokkuð sama hvort viðmótið sjálft er á íslensku eða ensku en mér þykir mun fallegra að dagsetningarnar séu allar á íslensku.  Sá þáttur ætti að vera kominn í lag núna.

Laus við lesendur

Við Eygló dettum víst aftur inn á Mikkavef eftir svona viku.  Þangað til verð ég væntanlega með afskaplega fáa lesendur.

Fluttur

Jæja, síðan virðist vera orðin hálfopinber eftir fiktið mitt. Ég ætlaði reyndar að tilkynna Palla flutninginn fyrst og þakka honum fyrir árin þrjú á Kaninkunni en hann hefur ekkert verið á netinu þannig ég geri það þá bara hér í staðinn. Það er viss eftirsjá að fara þaðan en mig langaði að sjá um mig sjálfur. Ég er að setja upp myndavef og markmiðið er að á þessum vef verði allt sem ég hef hingað til verið með á 123, Háskólasíðunni, myndablogginu og Kaninkunni. Það er hins vegar ekki ennþá allt komið.

Eygló er líka flutt. Endilega uppfærið hlekkina á okkur, ég fer síðan að vinna í því að uppfæra allavega Mikkavefs-rss’ið.

truflun.net/oligneisti/
truflun.net/eyglo/

Síðan er stefnan að bjóða vinum og vandamönnum að blogga hérna ef þið hafið áhuga, látið mig bara vita.

Ahh

Ahh, allt komið og allt virkar… vonandi. Aldrei áður þurft að rugla svona mikið í sql.

Kaninkan er risin!

Mikið er ég glaður.

Gravatarar

Ég var að setja inn Gravatarstuðning í kommentakerfið.  Til að setja inn Gravatar þá farið þið hingað.  Ég á reyndar ekki sjálfur Gravatar en hann er á leiðinni inn.