111246379006503065

Stjörnuspáin mín í dag er svolítið skondin:
Travel and study are favored today, and learning along with the help of a good-looking partner is the best way to enjoy life while you absorb knowledge. The evening is especially good for romance.
Allir „good looking study partners“ eru vinsamlegast beðnir um að hringja í mig. Þið finnið mig í Sveinbjörgu, undir 4.B 😉

Annars hef ég verið að spá í því hvers vegna símaskrá MR heiti Sveinbjörg en niðurstaða mín er sem fylgir. Skráin heitir Sveinbjörg vegna þess að hún „bjargar“ sveinum í leit að númeri fallegra kvenna skólans. Sem dæmi er Palli. Hann er hrifinn af Halldóru en vantar símann hjá henni svo hann geti boðið henni út. Sveinbjörg bjargar sveininum og hann kemst í feitt.

Ef þið hafið hugmyndir um hvers vegna Sveinbjörg ber nafn þetta þá sendið þið pælingar ykkar á aggi@mr.is og svo pósta ég því hingað. Svona er að hafa ekki kommentakerfi.

Annars er ég búinn að bæta inn línk á Grétar Amazeen þar sem mér skilst að hann sé farinn að blogga aftur. By the way, gott hjá þér að blogga Siggi. Ég er stoltur af þér.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *