Það stendur til að rukka alla gestina sem mæta í partýið fyrir busaballið um 600 kall. Ekki veit ég hvað málið er með það.
Categories: Uncategorized
Það stendur til að rukka alla gestina sem mæta í partýið fyrir busaballið um 600 kall. Ekki veit ég hvað málið er með það.
Categories: Uncategorized
Félagsfræði 9 Þýska 10 Þýska 10 Danska 7,5 Einhvern veginn finnast mér þessar einkunnir ekkert merkilegar. Líklegast vegna þess að ég lærði sama og ekkert fyrir þessi próf.
Categories: Uncategorized
Andrea elsker mig verður svolítið þreytt þegar maður les hana í þriðja skiptið. Jamm, samræmd námsskrá kemur okkur fallistunum illa.
Categories: Uncategorized
Þetta er eiginlega spurning til Dodda. Fer ekki að líða að því að einhverjar krítarmyndir fari að birtast á framtíðarvefnum?
Categories: Uncategorized
Ég fór til Alla í gær og gleymdi skólatöskunni minni. Nú er ég mættur í skólann of snemma, án tösku, með hálsbólgu og kvef (sem ég hef haft núna í fimm vikur). Allt fyrir mætingareinkunnina.
Categories: Uncategorized
Þú ert nú ljóti andskotans beinasninn […] Ef þú værir sæmilega læs hefðirðu kannski komið auga á þetta strax og sleppt því að gera þig að algjöru fífli og opinbera hversu mikill formyrkvaður helvítis bjáni þú ert, höfuðsóttargemlingurinn þinn. – Ásgeir Berg Matthíasson, þýðandi með meiru, anno domini 2009.
Categories: Uncategorized
Eftir að hafa verið narraður af Microsoft til að downloada hinum nýja explorer verð ég að segja að hann er nákvæmlega eins og sá gamli.
Categories: Uncategorized
Ég fékk nýverið bréf frá Íslandsbanka, þess efnis að ég skuldaði 6000 kall í dráttarvexti. Það gat að sjálfsögðu ekki staðist því ég hafði sérstaklega beðið um síhringikort svo ég væri ekki að eyða peningum sem ég ætti ekki. Ég dreif mig niður í banka og harðneitaði að borga þetta, nefndi þetta þeirra mistök og […]
Categories: Uncategorized
Núna vorum við að taka eftir tússkroti á bílnum. BRENNDU Í HELVÍTI KAUÐI!!!
Categories: Uncategorized
Bíllinn hennar mömmu lítur út fyrir að einhver digur hafi oltið á húddið. Tryggingafélagið segir að þeir muni aðeins greiða skaðann gegn því að mamma missi bónus. Fyrir utan fáránleika þess að hrifsa af fólki bónusinn fyrir slys sem gerðist meðan bíllinn var ekki í gangi fordæmi ég helvítis úrhrakið sem beyglaði hann. Það eru […]
Categories: Uncategorized