Gefa blabla blauð

Hver ætli hafi startað þessum sið að gefa öndunum brauð, og hvers vegna? Það er svo sannarlega ekki til að gæta hagsmuna andanna, enda geta þær auðveldlega snapað sér í mat sjálfar, og þegar upp er staðið, hverjum er ekki raunverulega sama um örlög örfárra anda í þeim forarpytti sem við nefnum tjörnina (að undanskildum börnunum, sem halda af sinni einskæru og elskulegu barnatrú að endurnar séu hjálparþurfi, og með því að fóðra þær endrum og eins séu þau að halda í þeim lífi (alla vega hélt ég það sem barn))?

Þetta er ekki skrifað af minni óbilandi geðillsku og mannsvonsku, heldur umleitunum mínum til að skilja heiminn.

Rigning

Ég vil þakka æðri máttarvöldum fyrir að hafa orðið við bón minni um bættara veðurfar. Minni þó á að betur má ef duga skal. Ég vil sjá syndaflóð.

Mikið var nördast í vinnunni í dag. Ekki var það til eftirbreytni, en skárra var það þó að það var ekki ég sem sá um að nördast – við sem vinnum við náttfatahúsið erum svo lánsöm að hafa vinnufélaga sem tekur að sér að segja okkur allt sem við vildum aldrei vita og þorðum ekki að spyrja um.