Þið munið eftir auglýsingunni: „Það sést hverjir drekka Egils Kristal“. Það sést líka á fólki hverjir reykja, eru heróínfíklar, fara aldrei í bað, drekka eingöngu áfengi eða sofa úti á götu.
Day: 20. júní, 2004
108775586213281143
Ég er ekki frá því að bloggið mitt hafi verið skemmtilegra fyrir flutninga.
108775487829681356
Ég er nöttkeis.
Ölæði
Í gær var haldin útskriftarveisla, bróður mínum til heiðurs, og var mikið drukkið. Var það skemmtan hin mesta.
Vaknaði bloggari með andfælum við símhringingu. Var það yfirmaður bloggara og spurði fyrrnefndur hvers vegna síðarnefndur væri ekki kominn í vinnuna. Dreif bloggari sig hið snarasta, enn ölvaður, í vinnuna. Var hann þar, þar til nýlega.
Nú er runnið af bloggara, og strengir hann þess heit, að drekka ekki aftur fyrr en næstu helgi. Annars á hann hættu á að verða alki, tæplega tvítigur að aldri.
Nú mun bloggari sofa. Enda veitir honum ekki af.
Og meðan ég man: Það gæti verið að ég hafi sent einhverjum ykkar sms-skilaboð eða tölvupóst í einhverju ölæði. Vinsamlegast gleymið því. Það ætti að halda mér fjarri öllum fjarskiptatækjum og tjáningarmiðlum þegar ég er við skál.