Ferðalög og fjármunir

Þetta sumar verður blóðugt. Almenn skipulagni hefur verið sett á gapastokkinn og ringulreiði ríkir. Málið snýst um ferðalög, en þau eru tvö: Hringferð um Ísland og Vikuferð til Rómaborgar, hvar Forum Romanum, Colosseum, Katakomburnar og Péturskirkjan, allt saman verður eygt. Þetta hljómar kannski ekki neitt hræðilega (reyndar hljómar það mjög vel) en, eins og ég sagði, er ekkert skipulagt. Hitt er svo annað vandamál, en það felst í tvennu: Peningar og vinna. Til að fá pening þarf ég að vinna og til að ferðast þarf ég frí í vinnunni. Ljót þversögn það. Líklegast þykir mér að ég muni fara hringinn þann 5. ágúst og koma aftur þann 12. Viku seinna, þann 19. ágúst, verður svo flogið til Ítalíu. Eini gallinn við þetta fyrirkomulagið er fjöldi frídaga yfir þetta tímabil og hvernig yfirmenn mínir svo bregðast við, enda lítill fyrirvari.

Annars hef ég minnstar áhyggjur af peningunum. Það reddast alltaf.

Ef einhver hefur í huga að slást í för með mér vil ég taka það fram, svona til að spara þeim ómakið, að fullbókað er í báðar ferðir.

Presto vado a Italia, dove parlerò a mio fratello nell’italiano! Maður grætur ekki að ferðast, þ.e.a.s. enginn nema buddan. Buddan fær það óþvegið í ágústmánuði, en maður lifir nú aðeins einu sinni. Nema þeir sem trúa á Karma. Þeir lifa nokkrum sinnum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *