Þetta snýst um launaréttindi, ekki barnapössun.
Day: 21. september, 2004
109579124780688886
Þetta er einnig fyndið. Sjáið þið ekki fyrir ykkur angist íbúanna þegar Saddam flytur í hverfið? Það verður erfitt fyrir hann að vera Saddam granni, gamli karlinn í næsta húsi sem alltaf er svo góður við börnin. Sjáið þið ekki bréfberann spásséra að hvítu viðargirðingunni er umlykur gula húsið hans Saddams, þetta með rauða þakinu, heilsandi honum: „Góðan daginn Saddam, hvernig líður konunni?“ „Jú, ágætlega,“ segir Saddam „hún er öll að braggast.“ Bréfberinn vinkar til hans og biður hann að eiga góðan dag. Saddam gerir slíkt hið sama og fær sér annan sopa af kókinu sínu.
Og Davíð skyndilega orðinn vinsælli. Ætli útskýring þess sé vandfundin?
109579031342244420
„Ef Morgunblaðinu væri annt um að þakka einhverjum útlendingi sjálfstæði Íslendinga þá væri Adolf Hitler kannski betri kostur því að hernám Danmerkur hafði heldur meiri áhrif á fullt sjálfstæði íslendinga en stuðningur Bandaríkjastjórnar þó að hann hafi auðvitað verið vel þeginn og þáverandi Bandaríkjastjórn til sóma.“
-Ármann Jakobsson á Múrnum.