109762312038226438

Kemst ekkert annað að í fjölmiðlum en þessi déskotans fláráður Þorgerður Katrín? Stal þessi strengjabrúða íhaldsins senunni á Alþingi? Ekki veit ég það, en hitt veit ég þó að hún hefur stolið senunni í Fréttablaðinu. Hún var á hverri einustu síðu Fréttablaðsins í dag, og fyrir hvað? EKKI NEITT! Sem er raunar betra en ef hún raunverulega gerði eitthvað, konan sem ætlar „að halda áfram hinu góða starfi Tómasar Inga Olrich (!)“.

Fréttablaðið varpar einnig fram fáránlegum og tilgangslausum spekúlasjónum um vopnaburð rússneska flotans. Fréttablaðsmenn eru hér með vinsamlegast beðnir um að hætta að troða þessum gúrkum sínum upp í endaþarm lesenda. Það á ekki að borga fólki fyrir að skrifa svona bull.

Og hver andskotinn er þetta!? Þetta kemur ekki nokkrum manni við! Hvað ætli þeir birti næst? Statistík yfir hve oft Saddam hefur rúnkað sér síðan hann náðist, eins og öllum sé ekki drullusama?

Það væri óskandi að einhver gæfi út almennilegt dagblað hér á landi.