109812716255378199

Á svona dögum er lífið kalt og hræðilegt. Ofnarnir eru farnir að gefa sig og heimilið er í lamasessi. Enginn getur sig hrært af kulda nema hann sé undir sæng. Mér verður ekkert úr verki, enda er mér kalt og mér líður önuglega; eins og ég sé á síðasta snúningi með allt sem gera þarf (sem mögulega er satt).

Bráðum neyðist ég til að yfirgefa mishlýja íbúðina og halda út í kuldann. Fáu kvíði ég eins mikið. Öllu heldur vildi ég geta legið í makindum undir sænginni minni með bestu bók í heimi (Bréf til Láru?), ógrynnin öll af snittum, snakki og fínum puttamat, nóg að drekka og köttinn malandi ofan á mér. En það kemur ekki til greina fyrir nútímamann á tækniöld að leyfa sér slíkar nautnir og sóa þar með dýrmætum tíma í sjálfan sig sem ella hefði verið hægt að nota í eitthvað pródúktívt.

Ansans ansans ekkisens vesen.

109810834879693931

Það ætti að skjóta þetta djöfulsins pakk! Það er ekki allt í lagi með þetta fólk. Ekki myndi ég vilja vera meðlimur í félagi sem elur á fordóma og misrétti. Enda er ég það ekki – ég sagði mig úr þjóðkirkjunni fyrir nokkru og ég hyggst aldrei ganga í þann skítaklúbb aftur.

Stephen Hawking er ekki kynþokkafullur. Þessi frétt sýnir aftur á móti fram á hversu vitlaust/smekklaust fólk er. Það að Stephen Hawking sé á topp tíu lista yfir kynþokkafyllstu karlmennina sýnir auðvitað það sem alltaf hefur verið vitað, að það er frægðin sem gefur af sér þokka en ekki útlitið. Og auðvitað er hann vinsælli en Beckham. Meðan Hawking leysir alheimsvandamál og rannsakar hluti sem komið gætu mannkyninu til góða sparkar Beckham í tuðru. Hann gerir það ekki einu sinni vel. Hawking er aftur á móti bestur á sínu sviði.

Morgunblaðið segir frá „ævintýramanninum“ Mike Horn, sem er u.þ.b. að fara að ljúka 20.000 km. brölti sínu meðfram norðurheimskautsbaug. Er ég einn um að finnast það rangt að upphefja svona karla með fréttaumfjöllun? Þá erum við sjálfkrafa að viðurkenna þennan hálfvitaskap þeirra, sem alltaf vilja leggja líf sitt og annarra í hættu með því að brölta upp um fjöll og firnindi, bara svo þeir geti sleikt handrið einhversstaðar á heimskautsbaug. Þetta er þvílík yfirburðavitleysa. Mér finnst þetta ekki bera eins mikinn vott af íþróttamennsku eins og það ber vott um skeytingarleysi um eigið öryggi sem og annarra. Nei, þetta er algjörlega absúrd!

109810610663912024

Ojbara, hver leyfði þetta veður?

Ekki skil ég hvað þeim gengur til, þeim sem þetta styðja. Á að stöðva verkfallið með lagasetningu? Ég er ekki viss, en ég myndi ætla að það jafngilti afnámi verkfallsréttar kennara. Hvers vegna? Jú, allir eru svo mikið fyrir skyndilausnir í dag. Hver þarf verkföll þegar ríkið getur bara stoppað þau sisvona og bannað þér að fara í verkfall? Hver þarf að ala upp barnið sitt ef hægt er að troða rítalíni inn í allar holur og rifur á því og skella því fyrir framan sjónvarpið?

Þetta eru s.k. skyndilausnir. Og hver hugsar um kennarana? Ef verkfallsrétturinn er tekinn af þeim þegar ekkert hefur gerst í launaviðræðum, eru þeir þvingaðir til að hefja aftur störf og gætu ekkert sagt eða gert þó launin stæðu í stað.