109856517011187040

Mig vantar titil. Allir flottustu bloggararnir hafa titil (alltént virðist Blögginn ekki skorta heldrimannslegan titil). Til skamms tíma kallaði ég mig Nátthrafninn (lat. CORVVS NOCTVRNVS) því ég svaf aldrei, nema kannski á daginn. Þegar ég svo lærði að sofa skipti ég um titil og kallaði mig því óþjála og asnalega nafni Bloggari vegarins, en þó aðeins einu sinni, og síðan þá hef ég ekki haft neinn titil. Kannski ég ætti bara að kalla mig G8?

Meiri leppalúðinn þessi breski prins (þeir báðir reyndar). Sömuleiðis þessir fundvísu fornleifafræðingar.