Ráð dagsins

Einum kúnna í búðinni í dag fannst sambærilegt að hann fengi hvergi skó í stærð 43, en alltaf væri nóg til af þessu 45 drasli sem enginn kaupir (!), og að eitthvað borð væri aldrei til þegar hann kæmi að spyrja um það, en alltaf eitthvað annað drasl sem hann vildi hvorki sjá né heyra af. Í svoleiðis aðstæðum er afgreiðslumanni hollast að slá öllu upp í kæruleysi: Já, það er nú meira hvað þú ert óheppinn með skó. Kúnninn veit ekki hvort hann er að fást við fífl eða jafnoka sinn, og er seinn til viðbragðs. Þá er afgreiðslumanni ljúft að veita náðarhöggið: En það er eins með vinsælar skóstærðir og vinsæl borð, það þarf að panta það til að fá það.