Prófið

Próftíminn var alltof stuttur. Ekki skil ég hvað skólayfirvöldum liggur á að koma nemendum sem fyrst út úr prófum, en þá væri nær að gera raunhæfar kröfur. Og þegar hrognasvör við fjórum spurningum síðasta kortérið gætu kostað mig verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur, hlýt ég að spyrja hvers vegna fallið var frá þriggja tíma hefðinni. Eins og gjörla sést á fyrri helmingi prófsins stefndi ég á tíuna. Hana fæ ég ekki úr þessu.

Líkt var með stúdentsprófið í dönsku á sínum tíma. Þar hefði ég fengið tíu ef hefði ég ekki misst af smáa letrinu og svarað á dönsku 15% spurningu þar sem þess var krafist að svarað væri á íslensku. Mín rök í málinu voru hunsuð, en þau voru á þá leið að varla hefði mér gefist verr að svara spurningunni á mínu eigin móðurmáli. Ég fékk 8,5. Ekki einasta stig fékk ég fyrir hárrétt svar á vitlausri tungu.

Hvorttveggja gremst mér, þó meir það sem nær er í tíma. Mér þætti ekki óeðlileg krafa að allir yrðu hækkaðir um 0,5 í einkunn á prófinu frá í dag og að próftími yrði eðlilegir þrír tímar fyrir þau próf sem eftir eru. Hvað hlýtur það að segja um próf þegar mestur áhugamaður um viðkomandi fag getur ekki klárað það? Ennfremur, hvað segir það pars pro toto? Ef til vill hljómar það eins og hin versta sjálfhverfa en ég segi það samt: Ef ég átti ekki séns, hvaða séns áttu þá þeir sem ekki hafa eins mikla umframþekkingu á námsefninu, hafa ekki lesið sér til útfyrir efnið, lesið það upp til agna, hafa ekki tileinkað sér fræðin, beitt þeim sjálfir og elskað þau. Já, bókstaflega elskað þau.

Þetta var aldrei spurning um að standast eitthvað stúdentspróf. Það var spurning um að standast þær kröfur sem ég geri til sjálfs mín. Og í dag stóðst ég ekki þær kröfur. Skiptir þá engu um ytri eða innri orsakir. Fullkomnunarsinninn er engu bættari þótt það sé sendiboði til að skjóta, sama hvort hann skjóti hann eða ekki, því fullkomnunarsinninn gat alltaf gert betur. Jafnvel þegar hann átti ekki séns.

6 thoughts on “Prófið”

  1. Heyr heyr! Endilega sendu þennan pistil á rektor, konrektor og alla íslenskukennara 4. bekkjar, þar með talið málabrautar, en þar var nánast sömu sögu að segja um próftímann. Við fengum þrjá tíma, en mun lengra próf að auki.
    Ég skal skrifa neðanmála og sameinuð berjumst við fyrir a) próftíma í samræmi við próflengdina eða b) tölvur til að skrifa prófin á, en persónulega væri ég miklu hraðskreiðari með öll próf þannig og kennarinn gæti auk þess lesið skriftina mína.

  2. Það hefur nú tíðkast með íslenskuprófin að þau séu í lengra lagi, í fyrra voru ekki margir sem náðu að klára prófið, en eins og einn kennari sagði við mig, það eiga ekki allir að geta klárað próf og helst enginn að fá 10. hvort sem það eru 2. eða 3. tíma próf þá lengist prófið bara á móti og þessi hefð er ekki gömul með 3 tíma próf heldur, Brynjúlfur sagði mér nú eitt sinn að lengi vel hafi verið munnleg lokapróf í íslensku.

  3. Yrði þeim að góðu að leggja fyrir mig munnlegt próf. Það yrði einungis til þess ég fengi hærri einkunn.
    Sjálfur er ég mótfallinn þeirri hugmynd að ekki allir eigi að geta klárað próf, sér í lagi þegar enginn getur klárað það, sér í lagi þegar brýnt er fyrir fólki að fara vandlega yfir þau áður þeim er skilað. Mér finnst heldur ekkert að því að menn geti fengið tíu á prófum ef þeir kunna allt til hlýtar sem spurt er úr á prófinu. Til hvers annars að ómaka sig? Þessar hugmyndir sem þú lýsir eru að mínum dómi til þess eins að letja fólk við að leggja harðar að sér við námið.
    Hjördís, ég skal skrifa plagg með helstu röksemdafærslum og senda þér. Sendu mér það svo með þínum breytingum til yfirferðar og svo berum við það undir bekkjarfélagana, svo og á beljunni, áður við sendum það á skólastjórnendur.

  4. Ekki vera að svona væli, ef maður nær bara 80% af prófi þá fær maður 8, ekki gefa fólki 8,5 af því því fannst það erfitt

  5. Ekkert væl hér á bæ, prófið var ekkert erfitt okkur sem kunnum námsefnið, það var skítlétt. Hugsunin var eftir sem áður ekki að nemendur næðu ekki að klára prófin sín, eins og kom í ljós þegar ég impraði á þessu við kennslustjóra í dag. Þetta er sama klúður og varð um jólin og okkur var lofað að yrði ekki aftur. Til stóð að nemendur hefðu drjúgan tíma til að bæði svara öllum spurningum svo og að fara yfir prófin sín. Um þetta vorum við svikin og ég er í fullum rétti með að vera ósáttur. Hver tapar á því að leyfa nemendum að sitja inni sem lengst? Enginn. Nema kannski þeir sem helst vildu taka upp stafinn aftur í kennslustofunni og elska fullkomnu normaldreifinguna sem þeir fengu aldrei.

Lokað er á athugasemdir.