Konungur dýranna

Der König den TierenÍ gærkvöldi sleikti slanga á mér hálsinn eftir að hafa ferðast vítt og breitt um kropp mér og ég tók mér rottu í hönd, aðeins til að leggja hana frá mér aftur eftir að ég hafði strokið henni lítið eitt. Menn mega búa sér til allar mögulegar og ómögulegar merkingar úr þessu ef þeir vilja, ef þeir fá eitthvað út úr því. En svona var það nú samt. Bókstaflega. Haldið ykkur fast, myndirnar koma seinna.

Mér skilst að ég hafi misst af partíi aldarinnar heima hjá Bjössa fyrir vikið. Það verður víst ekki á allt kosið.

8 thoughts on “Konungur dýranna”

  1. Guð hvað ég vona að þetta þýði ekki það sem ég ímynda mér í mínum stærstu og verstu martröðum. Ég þarf að tala við þig Arngrímur…..

  2. Ég held ég viti hvað þú átt við. Get aðeins sagt þér að þú átt ekki að þurfa að hafa neinar áhyggjur. Annars tölum við saman við eitthvert gott tækifæri.

Lokað er á athugasemdir.