Umfjöllun í Víðsjá

Snemma í kvöld var viðtali við mig útvarpað í þættinum Víðsjá í Ríkisútvarpinu. Viðtalið má heyra hér. Bókin hefur hlotið góðar viðtökur kaupenda enn sem komið er og er fyrsti ritdómur væntanlegur á næstu dögum.

Ég hef enn ekki haft færi á að kanna stöðuna í bókabúðunum, en hafi verðið á bókinni enn ekki verið leiðrétt þá vinsamlegast kvartið við viðeigandi aðila, þarmeðtalið mig.

Á föstudaginn þarsíðasta fór ég með hlass af bókum í bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18. Í húsasundi milli Grettisgötu og Laugavegs steig ég á snifsi úr Blaðinu með flennistórri mynd af Þórbergi undir fyrirsögninni: „Var Þórbergur með asperger?“ Í sama blaði tjáði ég mig um jólabækur. Get aðeins vonað að ég fái ekki asperger að mér látnum.

6 thoughts on “Umfjöllun í Víðsjá”

  1. Ég var hræddastur við að fá svona „thing in the engine room“ effekt eins og Stefán Máni, eða sixties-lög eins og Einar Már. Þannig séð var þetta ágætur millivegur.

  2. Innilega til hamingju með bókina. Hún er flott og það sem þú hefur birt hér á blogginu lofar góðu. Ég hlakka til að kíkja í hana og kaupa. 🙂

Lokað er á athugasemdir.