Peningar

Tímabilið frá hérumbil sama tíma í fyrra til dagsins í dag einkenndist af miklum fjárhagserfiðleikum hjá mér. Ég keypti bíl, glutraði lánamálunum og dröslaðist svo til Ítalíu á kreditkortinu. Núna kemur í ljós að ég eyddi hérumbil þeirri upphæð sem ég hafði leyft mér í þennan munað en ekki þeirri upphæð sem ég hef hingað til verið rukkaður um.

Það sem gerist í einni svipan þegar sannleikurinn dúkkar upp er einfalt: Ég eignast bílinn algjörlega á morgun ef ég tími því, og þar fyrir utan skulda ég engum nema lánasjóðinum. Fólkið hjá Sjóvá verður sjálfsagt eins og kúkur í framan þegar ég segi þeim að ég ætli ekki að borga glæpsamlegar 120 þúsund krónur í iðgjöld. Af því eins kaldhæðnislegt og það hljómar á samdráttarskeiði þá skyndilega borgar sig að taka lán fyrir mismuninum.

Segið svo að sýstemið sé aldrei skemmtilegt.

One thought on “Peningar”

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *