{"id":14082,"date":"2020-04-09T22:19:25","date_gmt":"2020-04-09T22:19:25","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/?p=14082"},"modified":"2020-04-09T22:52:04","modified_gmt":"2020-04-09T22:52:04","slug":"tidindalaust-i-skotgrofum-hugarfarsins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2020\/04\/09\/tidindalaust-i-skotgrofum-hugarfarsins\/","title":{"rendered":"T\u00ed\u00f0indalaust \u00ed skotgr\u00f6fum hugarfarsins"},"content":{"rendered":"<figure id=\"attachment_14084\" aria-describedby=\"caption-attachment-14084\" style=\"width: 516px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\" wp-image-14084\" src=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2020\/04\/plague-coronavirus-GettyImages-640475731-1024x683.jpg\" alt=\"\" width=\"516\" height=\"345\" srcset=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2020\/04\/plague-coronavirus-GettyImages-640475731-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2020\/04\/plague-coronavirus-GettyImages-640475731-300x200.jpg 300w, https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2020\/04\/plague-coronavirus-GettyImages-640475731-768x512.jpg 768w, https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2020\/04\/plague-coronavirus-GettyImages-640475731.jpg 1500w\" sizes=\"auto, (max-width: 516px) 100vw, 516px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-14084\" class=\"wp-caption-text\">Pl\u00e1gan, C. Audran eftir P. Mignard.<\/figcaption><\/figure>\n<p>M\u00e9r fannst lengi vel eins og sagan v\u00e6ri li\u00f0in, ekkert \u00e1hugavert ger\u00f0ist \u00fea\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og allt myndi lulla svona einhvern veginn \u00e1fram fremur t\u00ed\u00f0indal\u00edti\u00f0. \u00deetta reyndist rangt \u00ed tvennum skilningi. Fyrir \u00fea\u00f0 fyrsta \u00fe\u00e1 er sagan aldrei li\u00f0in, \u00fea\u00f0 er alltaf eitthva\u00f0 \u00e1 hverjum t\u00edma sem segja m\u00e6tti, \u00ed dvalarhorfi, a\u00f0 s\u00e9 \u201ea\u00f0 gerast\u201c. \u00de\u00f3 a\u00f0 t\u00edundi \u00e1ratugurinn hafi a\u00f0 mestu veri\u00f0 \u201elei\u00f0inlegur\u201c \u00ed s\u00f6gulegu tilliti en eftir \u00fev\u00ed d\u00e1samlegur me\u00f0 tilliti til annarra \u00fe\u00e1tta mannl\u00edfsins (a\u00f0 m\u00e9r sj\u00e1lfum fannst \u00e1 s\u00ednum t\u00edma), \u00fe\u00e1 var samt t\u00f6luvert margt hr\u00e6\u00f0ilegt og s\u00f6gulegt sem \u00fe\u00e1 ger\u00f0ist.<\/p>\n<p>Sov\u00e9tr\u00edkin f\u00e9llu til a\u00f0 mynda me\u00f0 langdr\u00e6gu andvarpi, eftir heldur heimsendastemmdan n\u00edunda \u00e1ratug, og J\u00fag\u00f3slav\u00edustr\u00ed\u00f0in h\u00f3fust. \u00c1 dularfullan h\u00e1tt fannst m\u00e9r eins og str\u00ed\u00f0 \u00ed Evr\u00f3pu v\u00e6ru li\u00f0in t\u00ed\u00f0 \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g \u00e6list upp me\u00f0 \u00feau \u00ed bl\u00fassandi gangi. J\u00fag\u00f3slav\u00edustr\u00ed\u00f0unum lauk ekki fyrr en um aldam\u00f3tin, hva\u00f0 sem minni tilfinningu um s\u00f6gulega t\u00edma lei\u00f0, og eftirm\u00e1l \u00feeirra voru enn \u00ed h\u00e1m\u00e6li (r\u00e9ttarh\u00f6ldunum yfir Milosevic lauk ekki einu sinni fyrr en 2006!) \u00feegar annar atbur\u00f0ur sk\u00f3k heimsbygg\u00f0ina.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var v\u00edst ekki h\u00e6gt a\u00f0 neita \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri nokku\u00f0 s\u00f6gulegt \u00feegar ma\u00f0ur horf\u00f0i me\u00f0 hryllingi \u00e1 turna tvo \u00ed New York borg hrynja \u00ed beinni \u00fatsendingu. Vinur minn sendi m\u00e9r \u00ed SMS-skilabo\u00f0um einhvern \u201esp\u00e1d\u00f3m\u201c Nostradamusar \u00fe\u00e1 um kv\u00f6ldi\u00f0 sem m\u00e9r \u00fe\u00f3tti m\u00f6gnu\u00f0 lesning. \u00c1 t\u00e1nings\u00e1runum var au\u00f0velt a\u00f0 leggja tr\u00fana\u00f0 \u00e1 alls konar svolei\u00f0is vitleysu sem gekk \u00fer\u00e1\u00f0laust milli f\u00f3lks. Sennilega var \u00feetta ekki einu sinni r\u00e9tt heimf\u00e6r\u00f0 tilvitnun fremur en svo margt anna\u00f0 \u00ed \u00feessum d\u00far, heldur tilb\u00faningur. En s\u00f6gulegt var \u00feetta. Ellefti september \u00fea\u00f0 er, ekki sm\u00e1skilabo\u00f0in.<\/p>\n<p>M\u00e9r finnst \u00e9g or\u00f0inn svol\u00edti\u00f0 sj\u00f3a\u00f0ur \u00ed a\u00f0 lifa s\u00f6gulega t\u00edma n\u00fana og er or\u00f0inn d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00fereyttur \u00e1 \u00feeim. \u00dea\u00f0 er eins og \u00feetta s\u00e9 st\u00f6\u00f0ugt \u00e1 t\u00edu \u00e1ra fresti. Fall Sov\u00e9tr\u00edkjanna, str\u00ed\u00f0i\u00f0 gegn hry\u00f0juverkum, bankahruni\u00f0, heimsfaraldur k\u00f3r\u00f3nuveiru. Ma\u00f0ur getur j\u00fa liti\u00f0 svo \u00e1 a\u00f0 \u00ed \u00f6llu falli hafi ma\u00f0ur \u00fe\u00e1 einhverjar s\u00f6gur a\u00f0 segja \u00feegar fram l\u00ed\u00f0a stundir \u2013 b\u00f6rnum, barnab\u00f6rnum, er \u00fea\u00f0 ekki alltaf vi\u00f0kv\u00e6\u00f0i\u00f0? En hverjum til \u00e1n\u00e6gju yr\u00f0u \u00fe\u00e6r sag\u00f0ar? Nemendur m\u00ednir muna ekki einu sinni bankahruni\u00f0 og s\u00fdna \u00fev\u00ed engan s\u00e9rstakan \u00e1huga \u00feegar \u00e9g tengi b\u00f3kmenntir vi\u00f0 \u00feann heimsvi\u00f0bur\u00f0, svo ekki s\u00e9 minnst \u00e1 \u00feann s\u00e9rst\u00e6\u00f0a \u00edslenska atbur\u00f0 sem b\u00fas\u00e1haldabyltingin var \u2013 en kannski hef \u00e9g takmarka\u00f0an \u00e1huga \u00e1 \u00fev\u00ed sj\u00e1lfur a\u00f0 rifja \u00feann t\u00edma upp of n\u00e1i\u00f0. Vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g var \u00fear. \u00dea\u00f0 gr\u00e6r aldrei alveg um heilt eftir a\u00f0 heilt samf\u00e9lag hrynur.<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g var \u00fearna,\u201c get \u00e9g sagt. \u00dea\u00f0 finnst engum \u00fea\u00f0 \u00e1hugavert. Ekki m\u00e9r heldur. \u00deau sem voru \u00fearna muna \u00fea\u00f0 l\u00edka og vi\u00f0 getum rifja\u00f0 \u00fea\u00f0 upp saman ef vi\u00f0 nennum, ef vi\u00f0 finnum \u00e1st\u00e6\u00f0u til; \u00feau sem voru \u00fear ekki hafa t\u00e6past forsendur til a\u00f0 gera s\u00e9r upp \u00e1huga. M\u00e9r l\u00ed\u00f0ur eins gagnvart K\u00f3finu \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 eigi s\u00e9r enn sinn sta\u00f0 \u00ed n\u00fainu. Vi\u00f0 erum \u00f6ll saman \u00ed \u00feessu n\u00fana og \u00fev\u00ed l\u00edti\u00f0 \u00ed raun um \u00fea\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Vi\u00f0 h\u00f6fum engu vi\u00f0 a\u00f0 b\u00e6ta hvert fyrir anna\u00f0. Samf\u00e9lagsmi\u00f0larnir loga af eil\u00edfri endurtekningu \u00e1 \u00fev\u00ed sem allir vita og engin n\u00fd lei\u00f0 kemur upp \u00far krafsinu til a\u00f0 f\u00e6ra \u00feetta \u00ed or\u00f0. \u00deetta er l\u00f6ngu h\u00e6tt a\u00f0 vera samr\u00e6\u00f0uh\u00e6ft efni jafnvel me\u00f0an \u00feetta er \u00ed gangi. Hvernig ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed framt\u00ed\u00f0inni? Hvernig s\u00fa framt\u00ed\u00f0 ver\u00f0ur er kannski \u00e1hugaver\u00f0asta spursm\u00e1li\u00f0 \u00ed \u00feessu \u00f6llu saman, \u00fev\u00ed h\u00fan ver\u00f0ur varla alveg eins og samf\u00e9lagi\u00f0 sem var. Allt breytist.<\/p>\n<p>Hvort \u00e9g mun nokkru sinni finna tilefni til a\u00f0 rifja \u00feennan t\u00edma upp og reyna a\u00f0 setja \u00ed eitthvert samhengi fyrir a\u00f0ra a\u00f0 skilja, e\u00f0a fyrir sj\u00e1lfan mig a\u00f0 skilja, \u00fea\u00f0 er s\u00ed\u00f0an \u00f6nnur spurning. \u00dea\u00f0 munu v\u00e6ntanlega ver\u00f0a til b\u00f3kmenntir \u00e1 \u00feessum t\u00edmum eins og \u00e1 \u00f6\u00f0rum t\u00edmum, \u00fear ver\u00f0ur til samhengi sem mun liggja fyrir b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingum eins og sj\u00e1lfum m\u00e9r a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra \u00ed r\u00e6\u00f0u og riti. \u00c9g s\u00e9 fyrir m\u00e9r eftir t\u00edu \u00e1r a\u00f0 \u00e9g muni standa frammi fyrir nemendum m\u00ednum og r\u00e6\u00f0a \u00feetta, K\u00f3fb\u00f3kmenntir. Hva\u00f0 segja K\u00f3fb\u00f3kmenntir okkur um l\u00edfi\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 fyrsta fj\u00f3r\u00f0ungi aldarinnar \u2013 og svo framvegis. Kannski munu nemendur sitja \u00fe\u00e1 eins og m\u00e9r finnst \u00feau gera n\u00fana og or\u00f0alaust gefa til kynna a\u00f0 \u00feau hafi \u00e1 \u00feessu takmarka\u00f0an skilning af \u00fev\u00ed \u00feau voru ekki \u00fearna. Og m\u00e9r mun l\u00ed\u00f0a eins og g\u00f6mlum manni a\u00f0 \u00feusa eitthva\u00f0 um g\u00f6mlu daga, eins og m\u00e9r l\u00ed\u00f0ur \u00feegar gagnvart hruninu.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e1 \u00feannig erfitt me\u00f0 a\u00f0 \u00edmynda m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g muni hafa neitt s\u00e9rstaklega \u00e1hugavert um veirufaraldurinn a\u00f0 segja \u00fe\u00f3 a\u00f0 t\u00edu \u00e1r l\u00ed\u00f0i e\u00f0a \u00ferj\u00e1t\u00edu. Amma m\u00edn mundi vel seinni str\u00ed\u00f0s\u00e1rin en tala\u00f0i aldrei um \u00feau. M\u00e9r finnst \u00e9g skilja \u00fea\u00f0 betur n\u00fana \u00fe\u00f3 a\u00f0 m\u00e9r hafi fundist \u00fea\u00f0 skr\u00fdti\u00f0 \u00e1\u00f0ur. J\u00fa, a\u00f0spur\u00f0 mundi h\u00fan Go\u00f0afoss, hr\u00e6\u00f0ilegt alveg. Ekki or\u00f0 um \u00fea\u00f0 meir. \u00c9g man a\u00f0 sama skapi \u00feegar Manhattan t\u00e6mdist, t\u00e6plega \u00e1ttahundru\u00f0 manns l\u00e9tust \u00e1 einum degi \u00ed New York r\u00edki, Nor\u00f0ur-\u00cdtal\u00eda breyttist \u00ed dyst\u00f3p\u00edu, \u00e9g man veru m\u00edna \u00ed Par\u00eds \u00ed upphafi faraldurs, \u00e1hrif veirunnar \u00e1 \u00cdslandi og svo framvegis, mannlausa \u00deingvelli. \u00c9g man \u00feetta og \u00feetta er enn\u00fe\u00e1 svona. Minningin \u00e1 eftir a\u00f0 \u00fer\u00f3ast og breytast en alltaf vera til sta\u00f0ar en n\u00fa \u00feegar er fyrsta kynsl\u00f3\u00f0in til sem ekki mun muna \u00feetta og ekki skilja \u00feetta.<\/p>\n<p>Sagan \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 n\u00fana, \u00ed dvalarhorfinu, rennur st\u00f6\u00f0ugt og \u00f3st\u00f6\u00f0vandi eins og straumvatn. M\u00e9r finnst \u00e9g or\u00f0inn vanur \u00feessum s\u00f6gulegu atbur\u00f0um svo a\u00f0 segja og eins og \u00e9g sag\u00f0i er \u00e9g or\u00f0inn svol\u00edti\u00f0 lei\u00f0ur \u00e1 \u00feeim, \u00fe\u00f3 hef \u00e9g hinga\u00f0 til sloppi\u00f0 \u00f3skadda\u00f0ur fr\u00e1 \u00feeim \u00f6llum \u00f3l\u00edkt svo m\u00f6rgum m\u00e9r \u00f3l\u00e1nsamari. En \u00fea\u00f0 er ekki v\u00edst a\u00f0 \u00feannig ver\u00f0i \u00fea\u00f0 alltaf og \u00fea\u00f0 er heldur ekki v\u00edst a\u00f0 \u00feannig ver\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00ed \u00feetta skipti. \u00dea\u00f0 er engin lei\u00f0 a\u00f0 vita \u00fea\u00f0 hvort ma\u00f0ur gangi heill fr\u00e1 \u00feessu og \u00fear af lei\u00f0andi engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 velta \u00fev\u00ed neitt fyrir s\u00e9r, engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fea\u00f0 vi\u00f0 nokkurn mann.<\/p>\n<p>\u00deannig a\u00f0 \u00e1 yfirbor\u00f0inu er n\u00e1nast eins og ekkert s\u00e9 a\u00f0 gerast. \u00c9g hugsa l\u00edtt um veiruna og tala enn minna um hana. Kannski er ekki laust vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hugsi svol\u00edti\u00f0 til Radioheadtextans: \u201eI&#8217;m not here. This isn&#8217;t happening.\u201c En einhvers sta\u00f0ar innst inni \u00ed \u00feessum hugsunum stendur l\u00f6ngun m\u00edn til einnar \u00f3skar: a\u00f0 ver\u00f6ldin og sagan v\u00e6ri eins t\u00ed\u00f0indal\u00edtil \u00ed raun og m\u00e9r einu sinni fannst h\u00fan vera.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>M\u00e9r fannst lengi vel eins og sagan v\u00e6ri li\u00f0in, ekkert \u00e1hugavert ger\u00f0ist \u00fea\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og allt myndi lulla svona einhvern veginn \u00e1fram fremur t\u00ed\u00f0indal\u00edti\u00f0. \u00deetta reyndist rangt \u00ed tvennum skilningi. Fyrir \u00fea\u00f0 fyrsta \u00fe\u00e1 er sagan aldrei li\u00f0in, \u00fea\u00f0 er alltaf eitthva\u00f0 \u00e1 hverjum t\u00edma sem segja m\u00e6tti, \u00ed dvalarhorfi, a\u00f0 s\u00e9 \u201ea\u00f0 gerast\u201c. &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2020\/04\/09\/tidindalaust-i-skotgrofum-hugarfarsins\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">T\u00ed\u00f0indalaust \u00ed skotgr\u00f6fum hugarfarsins<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-14082","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-oflokkad"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14082","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14082"}],"version-history":[{"count":20,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14082\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":14104,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14082\/revisions\/14104"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14082"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14082"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14082"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}