{"id":14120,"date":"2020-04-21T18:17:00","date_gmt":"2020-04-21T18:17:00","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/?p=14120"},"modified":"2020-04-21T20:33:04","modified_gmt":"2020-04-21T20:33:04","slug":"thekkingarfraedi-skaldskapar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2020\/04\/21\/thekkingarfraedi-skaldskapar\/","title":{"rendered":"\u00deekkingarfr\u00e6\u00f0i sk\u00e1ldskapar"},"content":{"rendered":"<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-14122 alignleft\" src=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2020\/04\/EWOK-300x150.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"150\" srcset=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2020\/04\/EWOK-300x150.jpg 300w, https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2020\/04\/EWOK.jpg 669w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/>Fyrirs\u00f6gnin h\u00e9r er kannski helst til h\u00e1fleyg. \u00c9g var a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r hvernig a\u00f0d\u00e1endur kvikmynda \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Stj\u00f6rnustr\u00ed\u00f0 vita \u00fea\u00f0 sem \u00feeir telja sig vita um s\u00f6guheiminn. \u00deetta er hugmynd sem kvikna\u00f0i fyrst \u00feegar \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 sj\u00e1 Scream 2 \u00ed b\u00ed\u00f3 \u00e1ri\u00f0 1997. \u00dear leikur Timothy Olyphant mor\u00f0\u00f3\u00f0an kvikmyndan\u00f6r\u00f0 sem \u00feykja bangsarnir \u00ed Return of the Jedi ekkert skemmtilegir. Eftirfarandi samskipti eiga s\u00e9r sta\u00f0 milli hans og sk\u00f3lasystur hans:<\/p>\n<blockquote><p><strong>Hallie:<\/strong> I like the little furry things.<br \/>\n<strong>Mickey:<\/strong>\u00a0Ewoks, they blow.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00dearna man \u00e9g a\u00f0 \u00e9g hugsa\u00f0i, \u00ed Stj\u00f6rnub\u00ed\u00f3 \u00fear sem \u00e9g s\u00e1 myndina: Ha? Pers\u00f3nan er greinilega a\u00f0 rugla b\u00f6ngsunum saman vi\u00f0 d\u00fdrategundina Wookiee, nema hann segir nafni\u00f0 aftur \u00e1 bak. Seinna komst \u00e9g a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er \u00ed raun og veru \u00fea\u00f0 sem bangsarnir eru kalla\u00f0ir \u2013 nema\u00a0<em>\u00feeir eru aldrei kalla\u00f0ir \u00feetta \u00ed myndinni sj\u00e1lfri<\/em>. \u00deetta er lykilatri\u00f0i. B\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingar l\u00e6ra \u00fea\u00f0 \u00ed n\u00e1mi s\u00ednu a\u00f0 ekki s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 greina b\u00e6kur \u00fat fr\u00e1 atri\u00f0um sem hvergi koma fyrir \u00ed \u00feeim. \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 sk\u00e1lda eitthva\u00f0 inn \u00ed texta til a\u00f0 l\u00e1ta \u00fea\u00f0 passa betur vi\u00f0 einhverjar hugmyndir (eins og R\u00f3sa B. Bl\u00f6ndals gerir \u00ed b\u00f3k sinni <em>Leyndar \u00e1stir \u00ed Nj\u00e1lu<\/em> \u2013 svo leyndar eru \u00e1stirnar a\u00f0 Nj\u00e1la segir ekkert um \u00fe\u00e6r). Hvernig er \u00fe\u00e1 h\u00e6gt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 bangsategundin heiti Ewok ef \u00fea\u00f0 kemur hvergi fram nema \u00e1 leikfanga\u00f6skjum, skrifum a\u00f0d\u00e1enda og \u00f6\u00f0ru aukaefni sem stendur algerlega utan vi\u00f0 myndirnar sj\u00e1lfar?<\/p>\n<p>Svari\u00f0 felst \u00ed \u00feeirri \u00feekkingarfr\u00e6\u00f0ilegu afst\u00f6\u00f0u sem vi\u00f0, neytendur Stj\u00f6rnustr\u00ed\u00f0s, h\u00f6fum til vi\u00f0fangsefnisins. Margir a\u00f0d\u00e1endur vilja s\u00f6kkva s\u00e9r ofan \u00ed allt m\u00f6gulegt \u00edtarefni sem ekki er komi\u00f0 fr\u00e1 hinum upprunalegu h\u00f6fundum. \u00deannig hafa margir skrifa\u00f0 langa myndasagna- og sk\u00e1ldsagnab\u00e1lka, \u00fe\u00e1 eru til teiknimyndaser\u00edur sem eiga a\u00f0 fylla betur inn \u00ed heildarmyndina, t\u00f6lvuleikir sem b\u00e6ta vi\u00f0 pers\u00f3num og segja n\u00fdjar s\u00f6gur og \u00fdmislegt fleira \u00ed \u00feessum d\u00far. \u00deessu f\u00f3lki finnst ekkert m\u00e1l a\u00f0 fella sig vi\u00f0 a\u00f0 bangsarnir heiti Ewok.<\/p>\n<p>\u00c9g, aftur \u00e1 m\u00f3ti, hef \u00fe\u00e1 einstrengingslegu afst\u00f6\u00f0u a\u00f0 \u00e9g tek ekkert gilt sem ekki kemur fram \u00ed myndunum sj\u00e1lfum. Myndirnar eru eina kan\u00f3nan sem \u00e9g s\u00e6tti mig vi\u00f0. Stundum b\u00faa a\u00f0d\u00e1endur til hugt\u00f6k (t.d. Sith) sem rata inn \u00ed kvikmyndirnar sj\u00e1lfar, en \u00fea\u00f0 er f\u00e1t\u00edtt samspil.<\/p>\n<p>Fyrir viki\u00f0 hl\u00fdtur m\u00edn pers\u00f3nulega ni\u00f0ursta\u00f0a a\u00f0 vera \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 heill helv\u00edtis hellingur sem margir ganga a\u00f0 sem v\u00edsu um heim Stj\u00f6rnustr\u00ed\u00f0s er einfaldlega ekki byggt \u00e1 n\u00e6gilega sterkum \u00feekkingarfr\u00e6\u00f0ilegum grunni til a\u00f0 \u00e9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 fullyr\u00f0a um \u00fea\u00f0. Bangsana kalla \u00e9g einfaldlega bangsana, \u00fev\u00ed \u00feeir eru einhvers konar bangsar. \u00d6ll kristalsfr\u00e6\u00f0in kringum geislasver\u00f0in eru \u00fev\u00e6la sem kemur myndunum ekkert vi\u00f0, og \u00fear me\u00f0 er engin raunveruleg sk\u00fdring \u00e1 bakvi\u00f0 hj\u00f6ltin \u00e1 sver\u00f0i Kylo Ren (hann \u00e1 a\u00f0 hafa nota\u00f0 brotinn kristal, \u00feess vegna klofni geislinn svona). Einhver mun s\u00f6mulei\u00f0is hafa \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 fur\u00f0ud\u00fdrin Tauntaun s\u00e9u skri\u00f0d\u00fdr, en fyrir \u00fev\u00ed h\u00f6fum vi\u00f0 enga sta\u00f0festu innan kvikmyndanna sj\u00e1lfra. Og vi\u00f0 vitum heldur ekkert hva\u00f0 Kessel Run merkir af \u00fev\u00ed enginn me\u00f0 r\u00e9ttu r\u00e1\u00f0i vi\u00f0urkennir tilvist kvikmyndarinnar um Han Solo. V\u00e1karnir eiga a\u00f0 vera fr\u00e1 pl\u00e1netunni Kashyyk. \u00dea\u00f0 kemur hvergi fram \u00ed nokkurri b\u00ed\u00f3mynd. Og svo framvegis og svo framvegis.<\/p>\n<p>\u00deetta er m\u00edn lei\u00f0inlega og einstrengingslega afsta\u00f0a til Stj\u00f6rnustr\u00ed\u00f0s og s\u00f6mulei\u00f0is annarra samb\u00e6rilegra sagnab\u00e1lka, rita\u00f0ra e\u00f0a kvikmynda\u00f0ra. Ef J.K. Rowling segir eitthva\u00f0 \u00ed vi\u00f0tali um Harry Potter \u00fe\u00e1 tek \u00e9g \u00fea\u00f0 heldur ekki gilt, ekki nema \u00fea\u00f0 hafi komi\u00f0 fram \u00ed b\u00f3kunum e\u00f0a myndunum (sem eru, vel a\u00f0 merkja, ekki sama eining \u2013 ver\u00f0a ekki greindar saman). \u00deetta er au\u00f0vita\u00f0 vir\u00f0ingarver\u00f0 afsta\u00f0a hj\u00e1 sj\u00e1lfum m\u00e9r og allir a\u00f0rir hafa auglj\u00f3slega rangt fyrir s\u00e9r. Og hanan\u00fa.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Vi\u00f0b\u00e6tir<br \/>\n<\/strong>M\u00e9r var bent \u00e1 a\u00f0 \u00ed kreditlistanum a\u00f0 Return of the Jedi komi heiti\u00f0 Ewok fyrir. \u00de\u00e1 m\u00e1 velta fyrir s\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 gildi til a\u00f0 bangsarnir heiti \u00feetta innan kvikmyndaheimsins, e\u00f0a hvort kreditlistinn standi utan vi\u00f0 myndina sj\u00e1lfa (t.d. standa handritsh\u00f6fundar og lj\u00f3sah\u00f6nnu\u00f0ir og a\u00f0rir utan vi\u00f0 myndina sj\u00e1lfa, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 ekki n\u00f6fn pers\u00f3na sem aldrei eru nefnd \u00ed myndinni?).<\/p>\n<p>Svo vi\u00f0 h\u00f6ldum okkur vi\u00f0 Stj\u00f6rnustr\u00ed\u00f0 \u00fe\u00e1 kemur fyrir aukapers\u00f3na \u00ed Attack of the Clones sem reynir a\u00f0 selja Obi Wan eiturlyf. \u00deessi pers\u00f3na er aldrei nefnd \u00e1 nafn. \u00cd kreditlista er hann hins vegar kalla\u00f0ur Elan Sel&#8217;Sabagno. Hefur \u00feetta nafn einhverja \u00fe\u00fd\u00f0ingu fyrir myndina? H\u00e6gt er a\u00f0 hafa tvenna sko\u00f0un \u00e1 \u00fev\u00ed: annars vegar a\u00f0 taka kreditlistann gildan sem h\u00f6fundar\u00e6tlan, e\u00f0a a\u00f0 l\u00edta a\u00f0eins \u00e1 listaverki\u00f0 sj\u00e1lft og hafna \u00fev\u00ed sem ekki kemur fyrir \u00ed verkinu sj\u00e1lfu. Sj\u00e1lfur undanskil \u00e9g kreditlistann fr\u00e1 verkinu \u00fev\u00ed \u00feessi \u00f3s\u00f6g\u00f0u n\u00f6fn sem \u00fear birtast eru \u00ed raun ekki anna\u00f0 en merkimi\u00f0ar fyrir framlei\u00f0endur. Eiturlyfjasalinn \u00ed Attack of the Clones \u00e1 s\u00e9r enga baks\u00f6gu og ekkert nafn \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann f\u00e1i nafn til h\u00e6g\u00f0arauka \u00ed framlei\u00f0sluferlinu.<\/p>\n<p>En svo m\u00e1 au\u00f0vita\u00f0 hafa a\u00f0ra sko\u00f0un \u00e1 \u00fev\u00ed.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrirs\u00f6gnin h\u00e9r er kannski helst til h\u00e1fleyg. \u00c9g var a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r hvernig a\u00f0d\u00e1endur kvikmynda \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Stj\u00f6rnustr\u00ed\u00f0 vita \u00fea\u00f0 sem \u00feeir telja sig vita um s\u00f6guheiminn. \u00deetta er hugmynd sem kvikna\u00f0i fyrst \u00feegar \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 sj\u00e1 Scream 2 \u00ed b\u00ed\u00f3 \u00e1ri\u00f0 1997. \u00dear leikur Timothy Olyphant mor\u00f0\u00f3\u00f0an kvikmyndan\u00f6r\u00f0 sem \u00feykja bangsarnir &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2020\/04\/21\/thekkingarfraedi-skaldskapar\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">\u00deekkingarfr\u00e6\u00f0i sk\u00e1ldskapar<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[36],"tags":[],"class_list":["post-14120","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-kvikmyndir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14120","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14120"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14120\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":14126,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14120\/revisions\/14126"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14120"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14120"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14120"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}