{"id":14765,"date":"2024-07-18T15:31:45","date_gmt":"2024-07-18T15:31:45","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/?p=14765"},"modified":"2024-07-20T18:30:47","modified_gmt":"2024-07-20T18:30:47","slug":"omar-little-og-sigmundur-brestisson","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2024\/07\/18\/omar-little-og-sigmundur-brestisson\/","title":{"rendered":"Omar Little og Sigmundur Brestisson"},"content":{"rendered":"<p><strong>***Ekki er um a\u00f0 villast a\u00f0 h\u00e9r \u00e1 eftir fer efni sem spillt g\u00e6ti F\u00e6reyinga s\u00f6gu og The Wire fyrir f\u00f3lki***<\/strong><\/p>\n<p>Skammt er s\u00ed\u00f0an \u00e9g horf\u00f0i \u00e1 The Wire (\u00edsl.\u00a0<em>\u00cd heyranda holti<\/em>) fr\u00e1 upphafi til enda og haf\u00f0i ekki \u00e1\u00f0ur s\u00e9\u00f0. Eins og svo oft fannst m\u00e9r margt minna \u00e1 \u00cdslendingas\u00f6gu \u00ed n\u00fat\u00edmanum. \u00dea\u00f0 er sennilega ekkert frumlegt en \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 v\u00e6ri, einhvers sta\u00f0ar \u00fearna \u00ed \u00feessum mikla efnivi\u00f0i, einhver \u00fer\u00e1\u00f0ur fyrir mig a\u00f0 elta og ef til vill skrifa um. Kr\u00e6silegustu pers\u00f3nurnar til a\u00f0 l\u00edta til v\u00e6ru sennilegast Omar Little, Stringer Bell, Snoop (s\u00fdk\u00f3patastelpan me\u00f0 naglabyssuna; \u00e9g held a\u00f0 Stephen King hafi kalla\u00f0 hana \u00f3hugnanlegasta illkvendi allra t\u00edma), og svo n\u00e1tt\u00farlega l\u00f6ggurnar sem ja\u00f0ra stundum vi\u00f0 a\u00f0 vera h\u00e1lfu verri en krimmarnir (vont er \u00feeirra rangl\u00e6ti, verra \u00feeirra r\u00e9ttl\u00e6ti, eins og \u00fear segir).<\/p>\n<p>\u00cd fimmtu og s\u00ed\u00f0ustu \u00fe\u00e1ttar\u00f6\u00f0 fannst m\u00e9r \u00feessi p\u00e6ling byrja a\u00f0 lj\u00fakast upp fyrir m\u00e9r og \u00fea\u00f0 er enn margt fyrir mig a\u00f0 melta og \u00edgrunda, og s\u00ed\u00f0an \u00fearf \u00e9g au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 horfa aftur. En svona til gamans h\u00e9r langar mig a\u00f0eins a\u00f0 bera saman Omar Little og Sigmund Brestisson. Meira skilur \u00fe\u00e1 a\u00f0 en sameinar, en \u00feetta s\u00ed\u00f0arnefnda er samt a\u00f0 m\u00e9r finnst skemmtilega hli\u00f0st\u00e6tt.<\/p>\n<p>N\u00e1lega fr\u00e1 upphafi sinnar s\u00f6gu er Sigmundur \u00ed nokkurs konar \u00fatleg\u00f0 \u00e1samt \u00de\u00f3ri br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum, r\u00e9tt eins og Omar Little stendur utan vi\u00f0 valdastr\u00fakt\u00far undirheimanna, er sj\u00e1lfs s\u00edn herra. Fa\u00f0ir \u00feeirra og f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ir h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00e1 veri\u00f0 vegnir af Hafgr\u00edmi og handbendum hans,\u00a0 en me\u00f0al \u00feeirra var \u00der\u00e1ndur \u00ed G\u00f6tu \u00fe\u00f3tt hann a\u00f0hef\u00f0ist ekkert sj\u00e1lfur anna\u00f0 en a\u00f0 eggja til atl\u00f6gu (hann kallar Hafgr\u00edm <em>skau\u00f0<\/em>, sem fyrir forvitna merkir allt \u00ed senn: forh\u00fa\u00f0 \u00e1 hestsg\u00f6ndli, kvensk\u00f6p, sver\u00f0ssl\u00ed\u00f0ur, bley\u00f0a), og f\u00e9ll Hafgr\u00edmur sj\u00e1lfur. \u00der\u00e1ndur vill n\u00e6st l\u00e1ta drepa drengina en \u00feykist hafa veri\u00f0 a\u00f0 gantast \u00feegar vi\u00f0t\u00f6kurnar ver\u00f0a dr\u00e6mar og f\u00f3strar drengina \u00feess \u00ed sta\u00f0. Nema hva\u00f0, hann sendir \u00fe\u00e1 s\u00ed\u00f0an \u00e1 laun til Noregs svo \u00feeir muni aldrei sn\u00faa aftur til F\u00e6reyja (me\u00f0 hva\u00f0a h\u00e6tti sem \u00fea\u00f0 er gert, tekur hann fram, og vi\u00f0 skiljum \u00feegar) og grei\u00f0ir silfur fyrir (kunnuglegt stef).<\/p>\n<p>En aldrei skal l\u00e1ta annan fremja s\u00edn eigin \u00f3d\u00e6\u00f0i og \u00feiggjandinn er enginn J\u00fadas, hann er meiri sk\u00f3garh\u00f6ggsma\u00f0ur. Margt hef\u00f0i \u00der\u00e1ndur geta\u00f0 l\u00e6rt af Disneymyndinni um Mjallhv\u00edti. \u00der\u00e1ndur \u00e1ttar sig heldur ekki \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er pers\u00f3na \u00ed s\u00f6gu og \u00fev\u00ed s\u00e9 auglj\u00f3st a\u00f0 br\u00e6\u00f0urnir sn\u00fai aftur og leiti hefnda. En \u00fea\u00f0 mun ekki fara eins og n\u00fat\u00edmalesanda er vant a\u00f0 b\u00faast vi\u00f0. \u00deetta er ekki\u00a0<em>Hrafninn fl\u00fdgur <\/em>(sem hefst \u00e1 \u00feeim spakm\u00e6lum a\u00f0 vopn s\u00e9u bitlaus gagnvart or\u00f0um, en sn\u00fdst s\u00ed\u00f0an mest um a\u00f0 halda kjafti og drepa sem mest).<\/p>\n<p>Hva\u00f0 um \u00fea\u00f0, sagan segir s\u00ed\u00f0an af \u00e6vint\u00fdrum Sigmundar Brestissonar \u00ed Noregi og v\u00ed\u00f0ar, sem bers\u00fdnilega er hi\u00f0 allra mesta hreystimenni sem nokkru sinni hefur komi\u00f0 \u00far F\u00e6reyjum og \u00fe\u00f3 v\u00ed\u00f0ar s\u00e9 leita\u00f0, \u00f6llum fremri \u00ed s\u00e9rhverri \u00ed\u00fer\u00f3tt a\u00f0 undanskildum \u00d3lafi Tryggvasyni Noregskonungi. Eftir heilmikinn herna\u00f0, sem af fara miklar fr\u00e6g\u00f0ars\u00f6gur sem berast \u00e1 undan Sigmundi heim, sn\u00fdr hann loks sj\u00e1lfur aftur, \u00fereyttur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e9r s\u00e9 brigsla\u00f0 fyrir a\u00f0 hefna ekki f\u00f6\u00f0ur s\u00edns. Omar m\u00e6ttur me\u00f0 haglarann \u00fat \u00ed Sk\u00fafey. Haglarinn \u00ed \u00feessu tilviki er n\u00fdfundinn \u00e1tr\u00fana\u00f0ur \u00e1 \u00deorger\u00f0i H\u00f6r\u00f0abr\u00fa\u00f0i, sem \u00ed \u00fdmsum fr\u00e1s\u00f6gnum er einhvers konar mag\u00edsk tr\u00f6llskessa e\u00f0a v\u00e6ttur, og vernd H\u00f6r\u00f0abr\u00fa\u00f0arinnar er bundin \u00ed hring sem hann skyldi aldrei l\u00f3ga. Hringurinn er haglarinn, en fram a\u00f0 \u00feessu haf\u00f0i Sigmundur a\u00f0eins tr\u00faa\u00f0 \u00e1 m\u00e1tt sinn og megin, eins og fleiri sagnahetjur fyrir kristnit\u00f6ku. Omar tr\u00fair mest \u00e1 sj\u00e1lfan sig; haglarinn er bara verkf\u00e6ri.<\/p>\n<p>Sigmundur tekur til \u00f3spilltra m\u00e1lanna a\u00f0 brytja \u00fe\u00e1 ni\u00f0ur sem myrtu f\u00f6\u00f0ur sinn og fr\u00e6nda og hef\u00f0u jafnvel drepi\u00f0 \u00fe\u00e1 br\u00e6\u00f0ur einnig, hef\u00f0i einn ma\u00f0ur ekki sta\u00f0i\u00f0 \u00ed vegi fyrir \u00fev\u00ed. \u00der\u00e1nd \u00e6tlar Sigmundur s\u00ed\u00f0an a\u00f0 lei\u00f0a til H\u00e1kons jarls til s\u00e6ttager\u00f0ar, sem \u00der\u00e1ndi l\u00fdst vitanlega ekkert \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 veit hann hva\u00f0 hans b\u00ed\u00f0ur \u00fear. Munurinn \u00e1 Sigmundi og Omar er a\u00f0 fyrrnefndi er hei\u00f0ursma\u00f0ur og ekki s\u00e9rlega slyngur, en \u00fe\u00f3 a\u00f0 Omar l\u00e1ti plata sig tvisvar sv\u00edfst hann einskis og er i\u00f0ulega m\u00f6rgum skrefum \u00e1 undan andst\u00e6\u00f0ingum s\u00ednum. Fer svo \u00e1 endum a\u00f0 Sigmundur eignast forr\u00e6\u00f0i yfir eyjum \u00f6llum og \u00fejarmar n\u00fa mj\u00f6g a\u00f0 \u00der\u00e1ndi. Gerist s\u00ed\u00f0an kristinn fyrir tilstilli \u00d3lafs Tryggvasonar, heldur samt haglaranum og reynir a\u00f0 kristna F\u00e6reyjar en f\u00e6r alla upp \u00e1 m\u00f3ti s\u00e9r fyrir tilstilli \u00der\u00e1ndar. Fer svo \u00ed skj\u00f3li n\u00e6tur me\u00f0 li\u00f0 og l\u00e6tur sk\u00edra \u00der\u00e1nd me\u00f0 valdi og alla hans menn, en g\u00e6tir hvorki a\u00f0 varna\u00f0aror\u00f0um \u00feess efnis a\u00f0 lifi \u00der\u00e1ndur ver\u00f0i \u00fea\u00f0 hans bani, og a\u00f0 l\u00f3gi hann ekki haglaranum ver\u00f0i \u00fea\u00f0 einnig hans bani.<\/p>\n<p>N\u00fa s\u00e9r lesandi a\u00f0 \u00fea\u00f0 er f\u00e1tt beinl\u00ednis sameiginlegt me\u00f0 Omar Little og Sigmundi Brestissyni, utan a\u00f0 \u00feeir eru \u00ed andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 gamla valdi\u00f0 og leita hefnda eftir s\u00edna. A\u00f0 lokum hallar svo undan f\u00e6ti hj\u00e1 b\u00e1\u00f0um og \u00f6rl\u00f6g \u00feeirra beggja eru ekki einasta sjokkerandi og \u00f3v\u00e6nt, heldur fur\u00f0u l\u00edk. A\u00f0 \u00fdmsu \u00f6\u00f0ru leyti minnir Sigmundur meira \u00e1 Stringer Bell, sem telur sig r\u00e9ttan arftaka valdsins og unir engum m\u00f3tb\u00e1rum gegn fyrir\u00e6tlunum s\u00ednum. Stringer trompast \u00feegar undirmenn hans skilja ekki hvers vegna stj\u00f3rn yfir g\u00f6tuhornum skiptir ekki \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r m\u00e1li \u00feegar hann m\u00e6tir me\u00f0 vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0im\u00f3deli\u00f0 sitt \u00e1 gangsterafund, eipsjittar s\u00ed\u00f0an \u00e1 Avon Barksdale me\u00f0 j\u00e1tningu \u00e1 mor\u00f0i fr\u00e6nda hans til a\u00f0 vir\u00f0ast st\u00e6rri ma\u00f0ur, og \u00fear me\u00f0 eru \u00f6rl\u00f6g hans r\u00e1\u00f0in. Sigmundur neitar a\u00f0 b\u00e6ta mor\u00f0i\u00f0 \u00e1 Leifi \u00d6ssurarsyni, sem frami\u00f0 var \u00ed hefndarskyni, enda hafi n\u00fa dau\u00f0ur jarl fyrir l\u00f6ngu \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 hann skyldi \u00f3b\u00e6ttur \u2014 og \u00fear r\u00e1\u00f0ast \u00f6rl\u00f6g Sigmundar a\u00f0 endingu.<\/p>\n<p>En v\u00edkur n\u00fa s\u00f6gu aftur a\u00f0 gildrunni sem l\u00f6g\u00f0 er fyrir Omar og Sigmund. Omar hefur veri\u00f0 duglegur a\u00f0 hreinsa \u00fat greni andst\u00e6\u00f0inga sinna me\u00f0 haglarann \u00e1 lofti og ber n\u00fa svo til a\u00f0 hann, \u00e1samt f\u00f6runeyti, br\u00fdst inn \u00ed blokkar\u00edb\u00fa\u00f0 \u00e1 a\u00f0 giska \u00e1 t\u00edundu h\u00e6\u00f0 e\u00f0a svo, og situr \u00fear li\u00f0 fyrir \u00feeim. F\u00f6runautar Omars eru vegnir vi\u00f0 litla vi\u00f0h\u00f6fn og Omar sj\u00e1lfur er kr\u00f3a\u00f0ur af \u00e1 bakvi\u00f0 s\u00f3fa, kemur engum v\u00f6rnum vi\u00f0, haglarinn hvergi \u00ed seilingarfjarl\u00e6g\u00f0, og \u00e1 um tvo kosti a\u00f0 velja: falla \u00fear e\u00f0a kasta s\u00e9r \u00fat um glugga upp \u00e1 von og \u00f3von um a\u00f0 lifa af falli\u00f0. \u00deetta er dautt val, eins og kennari minn R\u00f3bert Haraldsson kalla\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00ed f\u00edlunni for\u00f0um daga. \u00d3vinir hans hlaupa \u00feegar a\u00f0 glugganum og sj\u00e1 a\u00f0 Omar er horfinn, hvernig sem \u00e1 \u00fev\u00ed stendur.<\/p>\n<figure id=\"attachment_14779\" aria-describedby=\"caption-attachment-14779\" style=\"width: 660px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-14779 size-large\" src=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2024\/07\/Screenshot-2024-07-18-at-15.46.17-1024x693.png\" alt=\"\" width=\"660\" height=\"447\" srcset=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2024\/07\/Screenshot-2024-07-18-at-15.46.17-1024x693.png 1024w, https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2024\/07\/Screenshot-2024-07-18-at-15.46.17-300x203.png 300w, https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2024\/07\/Screenshot-2024-07-18-at-15.46.17-768x520.png 768w, https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2024\/07\/Screenshot-2024-07-18-at-15.46.17.png 1096w\" sizes=\"auto, (max-width: 660px) 100vw, 660px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-14779\" class=\"wp-caption-text\">Sigmundur Brestisson stingur s\u00e9r til sunds<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00der\u00e1ndur \u00e1 hinn b\u00f3ginn m\u00e6tir me\u00f0 li\u00f0 og brennir h\u00fas Sigmundar, en Sigmundur og \u00de\u00f3rir br\u00f3\u00f0ir hans hafa s\u00e9\u00f0 vi\u00f0 \u00feeim og eru ekki \u00e1 sta\u00f0num. Sigmundur vegur einn \u00far launs\u00e1tri en er \u00e1 fl\u00f3tta og stendur loks, haglaralaus, vi\u00f0 \u00feverhn\u00edpi og getur sig hvergi vari\u00f0. \u00deeir br\u00e6\u00f0ur kasta s\u00e9r fram af hamrinum \u00fat \u00ed sj\u00f3 og \u00e6tla s\u00e9r a\u00f0 synda \u00ed burt. \u201e\u00dear f\u00f3ru \u00feeir n\u00fa,\u201c segir \u00der\u00e1ndur og er \u00feeir leita Sigmundar og \u00de\u00f3ris, \u00fe\u00e1 finnast \u00feeir hvergi.<\/p>\n<p>Omar skakklappast enn um Baldinnam\u00e6ri me\u00f0 sinn haglara eins og g\u00f6ngustaf (\u201eeigi skal haltur ganga me\u00f0an b\u00e1\u00f0ir f\u00e6tur eru jafnlangir\u201c, sag\u00f0i Omar, er manna v\u00edgfimastur var \u00feeirra er \u00fe\u00e1 voru einf\u00e6ttir) og murkar enn l\u00edfi\u00f0 \u00far f\u00f3lki. Fer s\u00ed\u00f0an inn \u00ed sjoppuna s\u00edna gamalkunnu a\u00f0 kaupa s\u00edg\u00f3 og prins p\u00f3l\u00f3, \u00feegar drengur sem l\u00edtt hefur komi\u00f0 vi\u00f0 s\u00f6gu fyrr \u00e1lpast inn \u00ed sjoppuna og ber \u00e1 hann kennsl. Omar s\u00e9r litla \u00f3gn \u00ed drengnum og \u00e6tlar s\u00e9r a\u00f0 grei\u00f0a fyrir g\u00f3ssi\u00f0, en veit ekki fyrr en hann hefur veri\u00f0 skotinn af sk\u00f6mmu f\u00e6ri \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0. Er \u00fe\u00e1 Omar Little \u00far s\u00f6gunni. Muni\u00f0 krakkar, a\u00f0 reykingar drepa.<\/p>\n<p>Er \u00fe\u00e1 a\u00f0 segja fr\u00e1 Sigmundi a\u00f0 honum skolar einum l\u00b4\u00edfs \u00e1 land \u00ed Su\u00f0urey eftir miki\u00f0 volk \u00ed illskeyttu hafi, \u201eog var \u00fe\u00e1 svo m\u00e1ttfarinn a\u00f0 hann m\u00e1tti eigi ganga og skrei\u00f0 upp \u00ed fj\u00f6runa.\u201c Af hendingu b\u00fdr \u00fear skammt fr\u00e1 einn af n\u00f3tum \u00der\u00e1ndar a\u00f0 nafni \u00deorgr\u00edmur illi (me\u00f0 svona vi\u00f0urnefni \u00fearf ma\u00f0ur enga \u00f3vini) og synir hans tveir. \u00deeir drepa Sigmund varnarlausan \u00fear \u00ed fj\u00f6runni, r\u00e6na l\u00edki\u00f0 og fela.<\/p>\n<p>H\u00e9r l\u00fdkur \u00feessum samlestri a\u00f0 sinni. \u00dea\u00f0 sem \u00e1n vafa er \u00f3v\u00e6ntast \u00ed F\u00e6reyinga s\u00f6gu er a\u00f0 \u00der\u00e1ndi \u00feykir illt hvernig fari\u00f0 er fyrir fr\u00e6nda s\u00ednum sem hann \u00fe\u00f3 sj\u00e1lfur \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 myr\u00f0a, og beitir fj\u00f6lkynngi til a\u00f0 komast a\u00f0 \u00fev\u00ed hver muni hafa komi\u00f0 Sigmundi fyrir kattarnef. \u00cd b\u00e1\u00f0um s\u00f6gum heldur p\u00f3lit\u00edkin \u00e1fram me\u00f0 s\u00ednum sk\u00e6rum \u00ed undirheimum F\u00e6reyja\/Baltimore. S\u00e6mdarv\u00edg ganga \u00e1fram \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga og a\u00f0 endingu er \u00der\u00e1ndi steypt af st\u00f3li og n\u00fdtt f\u00f3lk tekur vi\u00f0 G\u00f6tuhornunum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0takendur beggja sagna \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 skiptir engu m\u00e1li \u00fe\u00f3 a\u00f0 einhverjum einum e\u00f0a tveim sk\u00farkum s\u00e9 k\u00e1la\u00f0, \u00feeir spretta upp eins og gork\u00falur eftir sem \u00e1\u00f0ur, og hi\u00f0 sama gildir um stj\u00f3rnm\u00e1last\u00e9ttina sem kynsl\u00f3\u00f0 eftir kynsl\u00f3\u00f0 lofar \u00f6llu f\u00f6gru, vill \u00fatr\u00fdma sk\u00e6rum og gl\u00e6pum en stendur svo valdalaus gagnvart sj\u00e1lfri s\u00e9r og kerfinu me\u00f0an samf\u00e9lagi\u00f0 brennur. Starf hennar er tilgangslaust. Starf l\u00f6ggunnar er tilgangslaust. \u00dea\u00f0 eina sem hefur tilgang er hver hefur t\u00f6glin og hagldirnar \u00e1 g\u00f6tunni e\u00f0a \u00ed G\u00f6tu. \u00dea\u00f0 er eina f\u00f3lki\u00f0 sem kemst \u00e1fram \u00ed l\u00edfinu og hefur a\u00f0 einhverju a\u00f0 stefna, enda \u00fe\u00f3tt l\u00edfi\u00f0 s\u00e9 gjarnan stutt og dau\u00f0sm\u00e1tinn ferlegur.<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst \u00fe\u00e1 er enginn g\u00f3\u00f0ur kall og enginn vondur kall, \u00feetta er allt bara spurning um samhengi og hagsmuni. \u00dea\u00f0 er nefnilega alveg r\u00e9tt sem H\u00e1kon jarl varar Sigmund vi\u00f0 \u00feegar s\u00ed\u00f0arnefndi kve\u00f0st vilja til F\u00e6reyja, a\u00f0 \u201ehafi\u00f0 er tors\u00f3ttlegt til eyjanna og brim miki\u00f0\u201c; bara ekki \u00ed \u00feeirri merkingu sem auglj\u00f3sust er. Ofbeldi getur af s\u00e9r ofbeldi og F\u00e6reyjum ver\u00f0ur ekki bjarga\u00f0 frekar en Baltimore. \u00dear stendur til \u00feessa dags stytta af \u00der\u00e1ndi \u00ed G\u00f6tu, standandi keik \u00e1 einhverjum illskiljanlegum \u00e1s sem kannski heimamenn einir skilja.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>***Ekki er um a\u00f0 villast a\u00f0 h\u00e9r \u00e1 eftir fer efni sem spillt g\u00e6ti F\u00e6reyinga s\u00f6gu og The Wire fyrir f\u00f3lki*** Skammt er s\u00ed\u00f0an \u00e9g horf\u00f0i \u00e1 The Wire (\u00edsl.\u00a0\u00cd heyranda holti) fr\u00e1 upphafi til enda og haf\u00f0i ekki \u00e1\u00f0ur s\u00e9\u00f0. Eins og svo oft fannst m\u00e9r margt minna \u00e1 \u00cdslendingas\u00f6gu \u00ed n\u00fat\u00edmanum. \u00dea\u00f0 er &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2024\/07\/18\/omar-little-og-sigmundur-brestisson\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Omar Little og Sigmundur Brestisson<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":14767,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[32,36,16],"tags":[],"class_list":["post-14765","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-bkur","category-kvikmyndir","category-midaldir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14765","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14765"}],"version-history":[{"count":16,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14765\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":14786,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14765\/revisions\/14786"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media\/14767"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14765"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14765"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14765"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}