{"id":2160,"date":"2005-04-05T21:22:00","date_gmt":"2005-04-05T21:22:00","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/2005\/04\/05\/atli-freyr-hengir-bakara-fyrir-smi%c3%b0\/"},"modified":"2019-01-01T13:34:48","modified_gmt":"2019-01-01T13:34:48","slug":"atli-freyr-hengir-bakara-fyrir-smi%c3%b0","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2005\/04\/05\/atli-freyr-hengir-bakara-fyrir-smi%c3%b0\/","title":{"rendered":"Atli Freyr hengir bakara fyrir smi\u00f0"},"content":{"rendered":"<div>H\u00e1\u00e6ruver\u00f0ugur <a href=\"http:\/\/atallus.blogspot.com\/2005\/04\/g-er-orlaus-yfir-essari-sguskoun-svo.html\">Atli Freyr Stein\u00fe\u00f3rsson<\/a> hefur einnig sitt um m\u00e1li\u00f0 a\u00f0 segja, en segir \u00ed raun og veru ekkert sem ekki haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur komi\u00f0 fram \u00ed m\u00e1li h\u00e6stvirts Bj\u00f6rns R\u00fanars. Hef \u00e9g einnig svara\u00f0 honum, en leyfi m\u00e9r a\u00f0 fara yfir nokkra punkta, sem skerpt g\u00e6tu s\u00fdn lesenda \u00e1 meiningu umdeildrar f\u00e6rslu.<\/p>\n<p>1. P\u00e1finn var g\u00f3\u00f0ur ma\u00f0ur. Okkur greindi hins vegar \u00e1 um f\u00f3sturey\u00f0ingar og r\u00e9ttindi samkynhneig\u00f0ra. Hann frelsa\u00f0i P\u00f3lland fr\u00e1 komm\u00fanismanum sem \u00f3l af s\u00e9r ke\u00f0juverkandi \u00e1hrif um austantjaldsl\u00f6ndin sem var\u00f0 komm\u00fanismanum a\u00f0 falli.<\/p>\n<p>2. Ghandhi var einnig g\u00f3\u00f0ur ma\u00f0ur. Hann h\u00f3f bar\u00e1ttu gegn apartheid \u00ed Su\u00f0ur-Afr\u00edku og frelsa\u00f0i Indland undan j\u00e1rnh\u00e6l Englands.<\/p>\n<p>3. \u00deegnar g\u00f6mlu komm\u00fanistar\u00edkjanna s\u00e6ta enn fas\u00edskri stj\u00f3rn sko\u00f0anak\u00fagara og gl\u00e6pamanna. \u00dear eru mannr\u00e9ttindi \u00ed l\u00e1gmarki og \u00ed raun er \u00e1standi\u00f0 ekkert betra \u00fear n\u00fana. Jafnvel verra.<\/p>\n<p>4. Vi\u00f0 stofnun hins frj\u00e1lsa Indlands klufu m\u00faslimar sig fr\u00e1 hind\u00faum og stofnu\u00f0u Pakistan. Milli \u00feessara landa hafa geisa\u00f0 bl\u00f3\u00f0ugar erjur allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed sk\u00f6mmu \u00e1\u00f0ur en Ghandhi d\u00f3. Bo\u00f0skapur Ghandhis lifir enn, en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur gera deilurnar \u00fea\u00f0 l\u00edka.<\/p>\n<p>5. \u00c9g ber mikla og dj\u00fapst\u00e6\u00f0a vir\u00f0ingu fyrir Ghandhi, en ekki jafnmikla fyrir p\u00e1fa, s\u00f6kum \u00e1greinings okkar. B\u00e1\u00f0ir l\u00f6g\u00f0u \u00feeir sitt af m\u00f6rkum, \u00fe\u00f3 deila megi um hversu miklu \u00feeir hafi komi\u00f0 til lei\u00f0ar me\u00f0 bo\u00f0skap s\u00ednum.<\/p>\n<p>6. \u00c1 engan h\u00e1tt held \u00e9g \u00fev\u00ed fram a\u00f0 tilraunir \u00feeirra til mannbetrunar hafi ekki komist til lei\u00f0ar, einfaldlega vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir hafi veri\u00f0 \u201ehelv\u00edtis tr\u00faarlei\u00f0togar\u201c. Hefur Atli rifi\u00f0 tr\u00faarlei\u00f0togann \u00far samhengi og skoti\u00f0 \u201ehelv\u00edtis\u201c \u00fear fyrir framan, rangri t\u00falkun sinni \u00e1 bloggf\u00e6rslu minni til framdr\u00e1ttar.<\/p>\n<p>7. \u00c9g hef marx\u00edska sko\u00f0un \u00e1 tr\u00faarstofnunum, \u00fe\u00f3 \u00e9g kenni mig a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti l\u00edti\u00f0 vi\u00f0 \u00feann mann. \u00c1 lei\u00f0togum \u00feeirra hef \u00e9g enga eina sko\u00f0un, enda eru \u00feeir eins mismunandi og \u00feeir eru margir. \u00c1 p\u00e1fa hef \u00e9g enga and\u00fa\u00f0, og s\u00e9r \u00ed lagi hef\u00f0i \u00e9g ekki and\u00fa\u00f0 \u00e1 honum fyrir a\u00f0 vera tr\u00faarlei\u00f0togi. Gu\u00f0lega d\u00fdrkun \u00e1 p\u00e1fa skil \u00e9g hins vegar ekki og \u00feegar fregnir af p\u00e1fa birtast \u00e1 kort\u00e9rs fresti <i><b>eftir dau\u00f0a hans<\/b><\/i> finnst m\u00e9r n\u00f3g um, pirrast og asnast til a\u00f0 l\u00e1ta gamminn geisa \u00e1 bloggs\u00ed\u00f0u.<\/p>\n<p>8. Andv\u00edgur st\u00f3rmennas\u00f6gusko\u00f0unum, <a href=\"http:\/\/atallus.blogspot.com\/2005\/04\/g-er-orlaus-yfir-essari-sguskoun-svo.html\">segir hann<\/a>. Hreint ekki, en \u00e9g vil hvorki l\u00edta \u00e1 s\u00f6guna eing\u00f6ngu \u00ed lj\u00f3si st\u00f3rmennis e\u00f0a alm\u00faga, \u00fear sem b\u00e1\u00f0ir a\u00f0ilar eiga a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u hlut a\u00f0 m\u00e1li. E\u00f0a n\u00e1\u00f0i Adolf Hitler kannski kj\u00f6ri \u00e1n f\u00f3lksins?<\/p>\n<p>M\u00e9r \u00fe\u00e6tti gott a\u00f0 vita hvort <a href=\"http:\/\/atallus.blogspot.com\/2005\/04\/g-er-orlaus-yfir-essari-sguskoun-svo.html\">Atla Frey<\/a> \u00feyki \u00e9g enn ford\u00f3mafullur e\u00f0a hvort s\u00f6gusko\u00f0un m\u00edn s\u00e9 p\u00f3stm\u00f3dern\u00edsk e\u00f0a s\u00f3s\u00edal\u00edsk. M\u00e1 hann \u00fea\u00f0 vita, a\u00f0 m\u00ednir einu ford\u00f3mar beinast gegn ford\u00e6mendum, en \u00e1 \u00feeim hef \u00e9g dj\u00fapst\u00e6tt hatur. A\u00f0 endingu vil \u00e9g vita hvort deilur \u00feessar um keisarans skegg hafi \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta komi\u00f0 <a href=\"http:\/\/atallus.blogspot.com\/2005\/04\/g-er-orlaus-yfir-essari-sguskoun-svo.html\">Atla Frey<\/a> og Birni R\u00fanari \u00ed skilning um a\u00f0 \u00e9g hati ekki p\u00e1fa.\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e1\u00e6ruver\u00f0ugur Atli Freyr Stein\u00fe\u00f3rsson hefur einnig sitt um m\u00e1li\u00f0 a\u00f0 segja, en segir \u00ed raun og veru ekkert sem ekki haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur komi\u00f0 fram \u00ed m\u00e1li h\u00e6stvirts Bj\u00f6rns R\u00fanars. Hef \u00e9g einnig svara\u00f0 honum, en leyfi m\u00e9r a\u00f0 fara yfir nokkra punkta, sem skerpt g\u00e6tu s\u00fdn lesenda \u00e1 meiningu umdeildrar f\u00e6rslu. 1. P\u00e1finn var g\u00f3\u00f0ur &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2005\/04\/05\/atli-freyr-hengir-bakara-fyrir-smi%c3%b0\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Atli Freyr hengir bakara fyrir smi\u00f0<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[26],"tags":[],"class_list":["post-2160","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2160","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2160"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2160\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":12193,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2160\/revisions\/12193"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2160"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2160"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2160"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}